Þetta er sem sé hann Gassi sem þið hafið hlustað á í útvarpi í rúmlga sextán ár. Úr útsendingarstúdíói FM957 fer hann jafnan beint í nýja ljósmyndastúdíóið, sitt. Gassi er nefnilega líka ljósmynda- hönnuður , eins og hann kýs að kalla sig. Eldklár sem slíkur eins og sjá má hér í Samúel þessa dagana.
Rödd Jóhanns Garðars Ólafssonar hefur hljómað meira og minna í útvarpi í sextán ár. Kveikir þú ekki á perunni? Við erum að tala um hann Gassa, sem tekur morgun- vaktina í þættinum Zúúber á FM957 með þeim Siggu og Svala. FM957 hefur verið hans móðurstöð þó að hann hafi í tvígagn farið yfir á Bylgjuna og einnig á Sígilt FM og Matthildi. Þegar hann lýkur störfum í útsendingarstúdíóinu býður hans jafnan vinna í nýja ljósmyndastúdíóinu hans, en Gassi hefur verið að gera það gott með myndavélina.
Gassi sagði í viðtali við Samúel að sér líkaði öll þessi stúdíóvinna mjög vel. “Í báðum tilvikum er um fjölbreytileg störf að ræða. Störf sem ég hef ánægju af að vinna.”
STÓRI BRÓÐIR BYRJAÐI MEÐ SJÓRÆNINGJASTÖÐ
Það þarf ekki að spyrja að því hvað valdið hafi áhuga hans á útvarpi. Þegar hann var bara smá gutti var stóri bróðir hans farinn að spreyta sig á rekstri sjóræningjastöðva og um leið og frjálst útvarp varð að veruleika var stóri bróðir mættur á svæðið. Hann var ómissandi hluti af útvarpstríóinu Gulli, Þorgeir og … Jón Axel Ólafsson á Bylgjunni og Stjörnunni.
Það eru ekki nema fjögur ár síðan áhugi Gassa fyrir ljósmyndun vaknaði fyrir alvöru. Hann er sjálfmenntaður á því sviði og segist bara þakka það haldgóðum bókum og internetinu hve fljótur hann var að átta sig á ljósmyndatækninni.
EINN VINSÆLASTI LJÓSMYNDARI STJARNANNA
Víst er að Gassi hefur gott auga fyrir myndefninu því hann hefur haft nóg að gera síðan hann opnaði ljósmyndastúdíóið. Hann á heiðurin af fjölmörgum auglýsingamyndum og plötuumslögum sem við höfum verið að dáðst að. Hann hefur ekki enn náð að halda ljósmyndasýningu eða gefa út ljósmyndabók, en þegar litið er í albúm hans á netinu má sjá nokkuð af því sem hann hefur unnið fyrir auglýsingar og útgáfufyrirtæki. Augljóst að Gassi er að verða einn vinsælasti ljósmyndari stjarnanna í íslensku tónlistarlífi.
GASSI TEKUR ÖÐRUVÍSI BRÚÐKAUPSMYNDIR
Hann viðurkennir fúsleg að hann hafi mest gaman af því að taka andlitsmyndir og galdra fram leyndasta karakter fyrirsætunnar sem hann er að mynda. Samúel spyr hann að því, hvaða persónu hann hefði viljað fá í stúdíóið. Þessi spurning okkar var greinilega mjög létt.
"Það hefði verið frábært að fá tækifæri til að mynda Halldór Laxnes,” svarar hann án um- hugsunar. “Og svo líka hana móður mína, en hún lést í fyrra án þess að ég hefði náð að fá hana til mín í ljósmyndastúdíóið. Því miður.”Í albúminu á netinu eru stúdíómyndir í miklum meirihluta, en Samúel mælir líka með að þú skoðir brúðkaupsmyndirnar. Þær eru flestar teknir úti í guðs grænni. Athyglisverðar myndir. Alltof fáir ljósmyndarar sem rjúfa hefðina þegar þeir mynda brúðhjón.
Til að opna albúmið hans Gassa SMELLIR ÞÚ HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.