Áramótin, sem við Íslendingar gerðum síðast rækilega tiltekt í buddunni og breyttum gjaldmiðli okkar, efndi hópur lífsglaðra manna og kvenna til svokallaðrar Nýkrónuhátíðar trong> á Nausti. Hátíðin fór fram á nýjárskvöld 1981 og nutu menn þess að versla á barnum með nýkrónunum sínum eftir að tvö núll höfðu verið skorin aftan af henni. Ritstjórar Sam- úels voru þar með myndavél- arnar sínar og flasskubba.
“Ég hef bara ekki skemmt mér svona vel síðan tengdamamma dó,” sagði einn skipstjórinn á hátíðinni er hann sté á svið til að kynna áhöfn sína. Hann var raunar ekki alvöru skipstjóri, en það kom ekki að sök, því áhöfnin var ekki alvöru og fleyið ekki heldur. Baldvin Jónsson, sem þá var auglýsingastjóri Moggans, var veislustjóri og tilkynnti að skemmtikraftarnir skiptu tugum. Enginn að vísu á launum, heldur væri ætlast til að gestirnir skemmtu sér og öðrum eins og þeir ættu lífið að leysa. Allir sem einn urðu gestirnir við tilmælum foringjans. Mikið var sungið og gat enginn skorast undan á þeim foresendum, að hann kynni ekki textana. Samúel hafði nefnilega gefið hverjum einasta gesti bók með söngtextum.
Hljómsveitin var að mestu skipuð liðsmönnm hljómsveitarinnar Brimkló en hún fékk ýmsa viðstadda til liðs við sig eftir þörfum, svo sem Magnús Kjartansson, Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíusson, Helga Pétursson, Jakob Magnússon og Þorgeir Ástvaldsson, sem var einnig plötusnúður kvöldsins.
Tilþrif kvöldsins sýndi Ingvi Hrafn Jónsson þingfréttaritari sem söng hvern rokkslagarann á fætur öðrum við dúndrandi undirtektir. Var það mál manna, að sjálfur kóngurinn Elvis Presley, hafði getað lært margt af honum í sviðsframkomu.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.