Goðsögnin
Jerry Lohr
Texti: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON
„Það er hreint ótrúlegt að sjá hve sprækur Jerry Lohr er þrátt fyrir að hann sé kominn vel á áttræðisaldur. Í hjarta sínu er hann greinilega enn þá bóndi og iðulega má sjá hann aka um víngarðana á dráttarvélinni seint að kvöldi til að fylgjast með vínviðnum,“ segir Pétur Sigurgunnarsson, umboðsmaður vínframeiðandans Jerry Lohr á Íslandi. Hann hitti goðsögnina í heimi vínframleiðenda þegar hann heimsótti höfuðstöðvar þess gamla á búgarði hans í Kaliforníu í fyrra.
„Jerry Lohr tekur enn þá fullan þátt í daglegum rekstri og sækir sýningar um heim allan til að gefa fólki tækifæri til að fá svör frá honum sjálfum varðandi vín hans,“ segir Pétur og fer ekki leynt með aðdáun sína á þessum virta vínframleiðanda og víninu hans.
En hver er maðurinn? Jerry Lohr fæddist inn í bændafjölskyldu í Suður-Dakota á búgarði sem nú myndi teljast búgarður með lífræna ræktun. Mikilvægi þess að sá hverju sæði á réttum stöðum eftir eiginleikum er honum í blóð borið og átti síðar á lífsleiðinni eftir að gagnast honum vel sem víngerðarmanni.
Hann útskrifaðist frá South Dakota State University árið 1958, M.S. frá Stanford 1959 og Ph.D í borgarverkfræði tveimur árum síðar. Staða kapteins í bandaríska flughernum tryggði honum starf sem rannsóknarvísindamaður hjá NASA Ames Research Center frá 1961 til 1964. Eftir það hallaði Jerry sér að lóða- og fasteignamarkaðinum en ástríða hans fyrir landinu og áhugi á góðum vínum varð brátt til þess að hann sneri sér að víngerð.
J. Lohr er í dag á meðal 30 stærstu nafnanna í vínframleiðslu i Bandaríkjunum með sölu á meira en einni milljón kassa af víni á ári.
J.Lohr getur líka státað af því að hafa síðastliðið haust verið valin Besta víngerð Bandaríkjanna 2010. Ætti það að í rauninni að segja allt sem segja þarf um ágæti vinframleiðslu fjölskyldunnar. Viðurkenninguna veitir Wine Enthusias tímaritið sem er leiðandi tímarit um vín og hefur mikil áhrif í greininni.
Jerry hóf strax í lok sjötta áratugarins að leita sér að heppilegu landsvæði með mikilvægi veðurfars, jarðvegs og staðsetningar að leiðarljósi. Loks varð 280 ekra spilda fyrir valinu árið 1971. Jerry var líka einn af þeim fyrstu sem áttuðu sig á ótrúlegum ónýttum möguleikum á Paso Robles svæðinu í San Luis Obispo County.
Árið 1986 hóf hann að gróðursetja Cabernet Sauvignon og Merlot-þrúgur, auk annarra, þar sem í dag er 2000 ekra víngarður. Síðan þá hafa margir víngerðarmenn fetað í fótspor hans og í dag er Paso Robles svæðið að verða vinsælla en t.d. Napa og Sonoma og á Jerry að miklu leyti heiðurinn af því. Hann hefur verið formaður víngerðarmanna í Paso Robles og Arroyo Seco. Á hann á margan annan hátt þátt í að opna augu fólks fyrir gæðum vína frá þessum svæðum. Í dag ræktar Jerry Lohr vínvið á meira 3700 hekturum lands.
Það hefur alltaf verið takmark Jerrys að framleiða vín sem geta keppt við bestu vín heims og það gerir hann með því að einblína á bragð og allt það margslungna sem tengist vali víngarðsins, tækni og þekkingu. Hann nýtir styrkleika hinna ýmsu klóna af sama afbrigðinu, eins og t.d. með því að klóna saman Cabernet Sauvignon, sem ættað er frá Paso Robles, og Cabernet Sauvignon frá Frakklandi eða Napa.
Þetta hefur gefið af sér mismunandi línur vína en þrjú þeirra eru svokölluð – J. Lohr Cuvée Series (ekki fáanleg hérlendis), J. Lohr Vineyard Series, en þar má nefna J. Lohr Hilltop, J. Lohr Arroyo Seco Chardonnay og J. Lohr Carols Sauvigno Blanc, sem eru öll fáanleg hérlendis. Síðast en ekki síst má geta Estate-línunnar, en þar er án efa J. Lohr Estate Seven Oaks Cabernet Sauvignon, langvinsælasta vínið hérlendis. Einnig er hér fáanlegt J. Lohr Riverstone Chardonnay.
Svo eru þessi svokölluðu dag frá degi vín, eða jafnvel lífsstílsvín, en þau eru Crosspoint Vineyards, lífsstílsvínin frá Cypress, eins og Shiraz, Merlot og hið feikivinsæla Blush Cypress White Zinfandel. Að lokum er það svo Painter Bridge Chardonnay, sem einnig hefur náð umtalsverðum vinsældum hérlendis.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.