MEÐ LJÓSU KJÖTI OG FISKI
Auxerrois: Hér er rétta hvítvínið með ýmsum fiskréttum og svo ljósu kjöti eins og fugla- og svínakjöti. Auxerrois er ljós- sítrónugult á lit. Létt fylling, hálfþurrt, fersk sýra. Ananas og apríkósa. Afar skemmtilegt hvítvín.
MEÐ FEITUM SJÁVARRÉTTUM
Cep D´or Riesling: Þurrt með góða sýru, ljós ávöxtur, sítrus og epli. Hentar einstaklega vel með feitum sjávarréttum.
Hjónin Karl H. Hillers varðstjóri hjá Tollgæslunni í Leifsstöð og Edda Guðmundsdóttir skrifstofumaður hjá Gigtarfélagi Íslands hrepptu aðal vinninginn í happdrætti innflutnings- fyrirtækisins Létt & Gott / Lögg ehf, sem Samúel sagði frá í sumar. Vinningurinn var fyrir tvo til Luxembourg ásamt einka leiðsögumanni í vínsmökkunarferð um Móseldalinn.
Heimsóttu þau þrjá vinframleiðendur og þótti Samúel forvitnilegt að heyra hvað af þeim vínum sem þau smökkuðu þau mæltu með fyrir áramótaveislurnar. Það stóð ekki á svörum, enda voru þau iðin við að skrifa hjá sér punkta í ferðinni.
Karl kvað eiginkonnu sína hafa kvatt til þess að hann sendi kassastrimilinn frá Vínbúðinni í keppnina þegar hún tók eftir að hann hafði keypt vín frá Luxembourg. Það var allt og sumt sem þau þurftu að gera. Senda inn strimilinn ásamt nafni og símanúmeri.
Þrjátíu aukavinningar voru einnig í boði og eru nöfn vinningshafa á heimasíðu fyrir- tækisins. Þú getur líka séð nöfnin með því að smella HÉR. Hlýtur hver vinningshafi flösku af Luxemborgarvíni.
Hér er lýst rauvíni og freyðivíni sem þau Karl og Edda smökkuðu í Lux og hrifust af.
LAMBAKJÖT OG REYKT KJÖT
Vinsmoselle - Pinot Noir Rough:
Þó að Luxembourg sé einkum rómað fyrir hvítvínið eru margar góðar rauðvínstegundir í boði frá vínbændum þar. Þetta er tvímæla- laust eitt af þeim bestu. Það er þurrt, fersk sýra, lítil tannín. Berjaríkt vín þar sem meðal annars má finna jarðarber, ögn laufkennt. Hentar vel með lambi og reyktu kjöti.
FORDRYKKUR OG TÆKIFÆRISVÍN
Cremant Poll-Faba ire Cuvee Brut: Létt fylling, þurrt og f ersk t. Sítrus, pera og melóna í bragði. Hentar vel sem fordrykkur eða sem tækifærisvín. Cremant er það samheiti sem Luxembourg notar yfir freyðivín líkt og Frakkar um kampavín, sem er þeirra freyðivín.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.