Franz Gunnarsson skrifar um tónlist og tölvuleiki fyrir Samúel. Fyrstu skrif hans birtust í Undirtónum en síðar átti hann eftir að skrifa fyrir Sánd , Frétta- blaðið, Tölvuheim, Dagskrá Vikunnar og Morg u nblaðið. Um tíma stýrði hann vef- síðu um tækni og tölvuleiki á visir.is. Hann starfaði á XFM 91,9 sem markaðs- fulltrúi og þáttastjórnandi. Síðar var hann ráðinn til að reka útvarpsstöðina Reykjavík FM 101,5. Franz er tónlistarmaður og á þeim vettvangi hefur hann spilað með Bubba Morthens, Quarashi, Bang Gang, Mugi- son, Ensími og Sverri Bergmann. Nú um stundir spilar hann aðallega með Dr. Spock. Þess má svo geta að Franz rekur, ásamt nokkrum félögum sínum, viðburðafyrirtækið Icelandic Music Factory og Dillon við Laugavegi. Er nokkur furða þó Samúel hafi sóst eftir samstarfi við Franz?
FLEIRI TÖLVULEIKJADÓMAR EFTIR FRANZ, SMELLA HÉR
Lost Planet 2 er þriðju persónu skotleikur sem gerist á plánetunni E.D.N. 3 tíu árum á eftir fyrsta leiknum. Leikurinn fjallar um borgarastríð til að öðlast valdi yfir T-ENG (Thermal Energy). Á plánetunni eru verur sem kallast Akrid en það eru skordýr sem geta orðið alveg hrikalega stór og öflug. Þessi leikur hefur verið að fá misjafna dóma í leikjapressunni en hann kom mér skemmtilega á óvart og get ég hiklaust mælt með honum fyrir þá sem hafa gaman af skotleikjum en þá sérstaklega fyrir vini til að spila saman því þar er mesta fjörið.
Red Dead Redemption gerist í Ameríku og Mexíkó árið 1911 þegar villta vestrið er á undanhaldi og tækninýjungar eins og fólksbíllinn eru að ryðja sig til rúms. Þú leikur útlagann John Marston, sem hefur sagt skilið við glæpalífið, stofnað fjölskyldu og hafið búskap. Útsendarar ríkistjórnarinnar neyða John til að elta uppi gömlu klíkuna sína og útrýma henni annars fari illa fyrir honum og fjölskyldu hans. Stóri bónusinn er án efa fjöldaspilunin þar sem 16 manns geta spilað saman í opna heiminum og gert allan andskotann. Skylduspilun fyrir alla sem hafa náð aldri til að spila hann. Ofbeldisfullur … en hrikalega skemmtilegur. MEIRA
Kane & Lynch 2: Dog Days. Skotleikir eru skemmtilegri ef fleiri en einn spila saman. Kane & Lynch 2: Dog Days snýst nákvæmlega um það að minnsta kosti tveir eða fleiri spili leikinn í sameiningu. Eftir átökin í Venezuala sem áttu sér stað í fyrri leiknum fóru Kane & Lynch í sitthvora áttina. Lynch fór til Shanghai og byrjaði nýtt líf með kærustu sinn Xiu. Hann er þar á kafi í glæpastarfsemi með enska krimmanum Glazer sem segir honum frá ábatasömu vopnasmygli til Afríku sem gæti gefið bæði Kane & Lynch tækifæri á að setjast í helgan stein. Lynch biður Kane um aðstoð við vopnasmyglið og hittast þeir á ný í Shanghai. Þrælskemmtilegur skotleikur en hefði mátt vera lengri. Fjöldaspilunin heldur honum samt á lífi um ókomna tíð. Tilvalinn fyrir harðjaxla sem finnst ekkert skemmtilegra en að salla niður ógrynni af austurlandabúum. MEIRA
Leikurinn Uncharted: Drakes Fortune kom verulega á óvart þegar hann kom á markað 2007. Í Uncharted blandaðist saman ævintýra og hasargeirinn með dassi af þrautum. Leikurinn var vel heppnaður með nýja hetju innanborðs með augastað á frægðarpalli Indiana Jones og Löru Croft. Fyrir stuttu kom annar leikurinn með Drake og er hann heljarinnar rússíbanaferð. Nathan Drake er að slappa af þegar gamall félagi að nafni Harry Flynn leitar hann uppi ásamt hinni föngulegu Chloe Frazer. Þau lokka hann í för til að finna hina týndu borg Shambhala en þar er steinninn Cintamani geymdur. Fjöldaspilunarhluti Uncharted 2 er veglegur þar sem t.d. er hægt að vista leiki og horfa á þá síðar frá öllum sjónarhornum. Á meðan þú spilar á netinu eru Naughty Dog að lagfæra og bæta upplifunina. Þú munt ekki sjá eftir því að upplifa Uncharted 2. MEIRA
God Of War 3. Þriðji leikurinn í hinni gífurlega vinsælu og vönduðu seríu. Þetta er fimmti kaflinn og sá síðasti í þeirri sögu sem hefur fylgt eftir stríðsguðinum Kr at os. Þó svo leikurinn setur endapunkt á söguna er klárt að fleiri God Of War leikir munu koma út enda væri annað bara tóm vitleysa. God Of War 3 er alls ekki fyrir viðkvæma enda mjög blóðugur og á köflum hreint ógeðfelldur í miskunnarlausri slátrun Kratos á þeim vættum sem standa í vegi fyrir hann. Leikurinn er jafnframt ótrúlega flottur og risastór og þá sérstaklega risarnir sem eru hreint listaverk. Það má með sanni segja að God Of War 3 fór fram úr öllum mínum væntingum og voru þær nú miklar fyrir og því fær leikurinn fullt hús stiga og er hann algjör skyldueign fyrir alla sem eiga Playstation 3 og hafa náð aldri til að spila leikinn. MEIRA
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.