Vinsældir svokallaðs gosbjórs í Vínbúðum fer skiljanlega vaxandi. Hvað snertir verð og fyrirhöfn er hentugra að kippa með sér tveimur til fjórum gosflöskum í teitið heldur en áfengisflösku og blandi. Hver flaska svarar nokkurn veginn til þess að blanda sér einn tvöfaldan í glas. Í Vínbúðunum kostar flaska af t.d. hinum vinsælu blöndum Mojito, Tropical eða VK-Ice aðeins kr. 327. Peli af vodka kostar aftur á móti hátt í fimm þúsund kall. Ólíkt þægilegra að hafa bara með sér í teitið akkúrat það sem maður getur hugsað sér að innbyrða í það skiptið, ekki satt.
Það sem kvenfólk kann líka að meta við VK drykkina er að þeir innihalda mikið minna sykurmagn en sambærilegir drykkir án þess þó að vera súrir.
Tískudrykkurinn Mojito frá VK fæst á öllum bestu börum landsins. Hann er sömuleiðis til sölu í öllum helstu Vínbúðunum.
Mojito þurftu barþjónar lengi að blanda í glös gestanna, en nú er kokkteikllinn sem sé fáanlegur tilbúin á 275 ml flöskum. Bragðið er minta og læm, hálfsætt, ferskt og kolsýrt. Drykkurinn er skýjaður og fyllingin létt.
VK Ice Lemon í (silfurlitu flöskunum) hefur stöðugt verið að sækja á í vinsældum. Hann er hvítur, skýjaður, með léttri fyllingu, hálfsætur og ferskur eins og Mojito, en með sítrónubragði.
VK Tropical er þriðji drykkurinn sem fikrar sig upp vinsældalistann. Eins og nafnið gefur til kynna er þessi skærgula blanda sótt til vinsælustu drykkjanna á sólarströndum. Ananas og suðrænir ávextir kæta bragðlaukana. Drykkurinn er skýjaður, hálfsætur, léttkolsýrður og fyllingin létt.
Svo eru það VK Apple og VK Orange þar sem eplabragðið er alls ráðandi annars vegar og svo appelsínubragðið hins vegar. Þriðji VK drykkurinn er svo öllu blandaðri. Hann heitir VK Mixed Fruit (eða VK Blue) og er ljósgullinn. Berjabragð og hunangskeimur er það sem bragðlaukarnir skynja fyrst.
Sem fyrr segir kostar VK flaska ekki nema kr. 327 í Vínbúðinni og tilvalið að grípa með sér ólíkar blöndur í innkaupakörfuna til að kynnast einhverju nýju og fersku næst þegar skal gera sér glaðan dag og hafa áfengi um hönd.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.