AFTUR Á FORSÍÐU FLEIRI TÖLVULEIKIR
Fyrir stuttu kom út nýjasti smellurinn frá Rockstar Games en það er stórleikurinn Red Dead Redemption, sem hefur verið að gera þvílíka lukku um allan heim. Mikil eftirvænting fylgdi útgáfu leiksins og engin furða þegar framleiðendur Grand Theft Aut o seríunnar eru annar svegar.
Upplifðu villta vestrið í andaslitrunum
Red Dead Redemption gerist í Ameríku og Mexíkó árið 1911 þegar villta vestrið er á undanhaldi og tækninýjungar eins og fólksbíllinn eru að ryðja sig til rúms. Þú leikur útlagann John Marston, sem hefur sagt skilið við glæpalífið, stofnað fjölskyldu og hafið búskap. Útsendarar ríkistjórnarinnar neyða John til að elta uppi gömlu klíkuna sína og útrýma henni annars fari illa fyrir honum og fjölskyldu hans.
Söguþráðurinn magnast
Red Dead Redemtio n hefur mjög sterkan söguþráð sem heldur þ > cute;r við efnið í gegnum leikinn. Karaktersköpun er til fyrirmyndar og handritið er það vel skrifað að þú tekur afstöðu með karakterunum. Í gegnum leikinn fræðist þú meira og meira um bakgrunn söguhetjunnar og þá sem hann á í útistöðum við ásamt vinum og samferðamönnum. Stór uppgjör verða til þess að leikurinn stendur uppúr í handritsgerð.
Heimurinn er rosalegur
Eins og við var að búast er heimur villta vestursins, sem Rockstar hefur skapað, ótrúlega raunverulegur. Heimurinn er risastór og uppfullur af lífi og verkefnum sem tengjast ekki söguþræðinum beint. Það er hrein unun að ríða um sléttur og fjöll á traustum fáki og skoða landslagið. Það er í raun hægt að slæpast í heiminum svo klukkutímum skiptir án þess að eltast við söguþráðinn.
Virðing, vopn og búnaður
Ásýnd söguhetjunnar markast að því hvernig hún hagar sér í leiknum. Þú getur annaðhvort verið þekktur sem góður kúreki eða algjör fantur og hefur það áhrif á hvernig íbúar og yfirvöld koma fram við þig. Vopnabúnað er hægt að kaupa ásamt öðrum búnaði til að hjálpa söguhetjunni til að lifa af í villta vestrinu. Aukapeningur fyrir vopnum og búnaði fæst með því að veiða og selja dýr eða elta uppi eftirlýsta óþokka. Nú, eða ráða sig í vinnu á hinum ýmsu búgörðum, sem eru staðsettir víðsvegar um heiminn. Einnig geturð þú grætt eða tapað á fjárhættuspilum.
Skotgleði og einvígi
Það er mikill hasar í villta vestrinu og söguhetjan þarf oft að grípa til frethólksins til að halda lífi. Leikurinn býður upp á bullet time þar sem tíminn hægist til að gefa þér tækifæri á að miða á fjölmörg skotmörk í einu. Einnig er nóg um einvígi þar sem ókunnugir hrottar skora á þig í einvígi. Bardagakerfið er mjög gott og andstæðingar eru ágætlega verðugir andstæðingar.
Flottur leikur sem hljómar vel
Það er greinilegt að framleiðendurnir hafa nostrað við leikinn til að gera hann eins flottan og hægt er. Grafíkin er mjög góð og framsetning öll til fyrirmyndar. Tónlistin er framúrskarandi og kryddar leikinn rækilega. Talsetning er fagmannlega gerð.
Stóri bónusinn
Stóri bónusinn er án efa fjöldaspilunin þar sem 16 manns geta spilað saman í opna heiminum og gert allan andskotann. Fjöldaspilunin mun fleyta þessum leik langt og halda lífi í honum um langt skeið. Þessi leikur er skylduspilun fyrir alla sem hafa náð aldri til að spila hann. Hann er vissulega ofbeldisfullur … en hrikalega skemmtilegur.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.