ÓKEYPIS FYRIR TVO TIL LÚXEMBOURG Í VÍNSMÖKKUN
30 aukavinningar. Ein flaska af völdu víni frá Lúx
EF HEPPNIN ER MEÐ gætir þú komist í ókeypis vínsmökkunarferð til Lúxembourg 14. til 17. október næstkomandi með íslenskum einkaleiðsögumanni. Ferðin er fyrir tvo. Eina sem þú þarft að gera er að halda til haga kassakvittuninni frá Vínbúð ÁTVR næst þegar þú kaupir léttvín frá Lúxembourg.
Flöskurnar er að finna í Heiðrúnu og Vínbúðunum í Skútuvogi og Kringlunni og er sama hvort um er að ræða hvítvín, rauðvín, rósavín eða freyðivín, það þarf bara að vera frá Lúxembourg.
Vínsmökkunarferðin er fyrir tvo og stendur frá fimmtudegi til sunnudags. Innifalið er flug til og frá Lúx, akstur um vínhéruðin með leiðsögumanni, ásamt gistingu og veitingum í boði vínframleiðendanna.
Heimsóttir verða þeir þrír vínframleiðendur við Móseldalinn í Lúx sem taka þátt í leiknum, fræðst um vínframleiðslu þeirra og að sjálfsögðu smakkað á því besta sem þeir hafa fram að færa.
Öllum er kunnugt um fegurðina í Móseldalnum og gestrisnir vínframleiðendur bíða spenntir eftir að taka á móti íslensku gestunum sem hljóta ferðavinninginn og gera þeim glaðan dag.
Vínframleiðsla í Lúx byggir á aldagömlum hefðum sem er fróðlegt að kynnast af eigin raun og sjá um leið hvernig vínframleiðendur hafa á síðari árum verið að taka upp nýja tækni hægt og rólega.
Skrifaðu umbeðnar upplýsingar um þig hér fyrir neðan og sendu þær ásamt kassastrimlinum úr Vínbúðinni (ekki ljósriti) fyrir 4. október.
Utanáskrift:
Létt & Gott – Lögg ehf (LÚX) – Pósthólf 66 - 222 Hafnarfjörður
Nafn ____________________________________________________
Kennitala ________________________________________________
Heimilisfang _____________________________________________
Póstnúmer_______ Bæjarfélag _______________________________
Sími ___________ Netfang _________________________________
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.