FRANZ GUNNARSSSON SKRIFAR:
Ég spilaði ekki fyrsta leikinn og var því frekar grunlaus um hvað ég væri með í höndunum. Jú, ég vissi að þetta væri skotleikur sem er gerður fyrir fjöldaspilun á gerist á óvinveittri plánetu en meira vissi ég ekki um titilinn fyrr en ég setti hann í Playstation 3 vélina.
Lost Planet 2 er þriðju persónu skotleikur sem gerist á plánetunni E.D.N. 3 tíu árum á eftir fyrsta leiknum. Leikurinn fjallar um borgarastríð til að öðlast valdi yfir T-ENG (Thermal Energy). Á plánetunni eru verur sem kallast Akrid en það eru skordýr sem geta orðið alveg hrikalega stór og öflug.
Sagan skiptist í kafla og söguþráðurinn afhjúpast í kaflaskiptum
Hægt er að spila leikinn einsamall og láta tölvuna stýra aukakarakterum, með tvískiptan skjá og tvo spilara eða þá að spila kaflana með þrem alvöru spilurum á netinu og er eindregið mælt með að spila leikinn þannig. Spilarar fá fyrirmælin beint í æð jafnt og þétt í gegnum leikinn. nóg er af óvinum til að berjast við og reglulega þarf að kljást við risa Akrid í lokaorustum (boss fight).
Lokaorrusturnar eru tilþrifamiklar en hægt er að berjast við kvikindin á nokkra vegu (jafnvel að láta þau gleypa sig og berjast við þau innanfrá).
Kaflarnir eru sex talsins með sinn eigin söguþráð og hetju en þræðirnir koma saman í enda leiksins í loka uppgjörinu. Umhverfið er breytilegt frá geimorustum, frumskógum og eyðimerkum.
Leikurinn breytist einnig eitthvað efti
r því hvernig leikmaður háttar sínum leikaðferðum.
Lost Planet 2 lúkkar og sándar
Það fyrsta sem ég tók eftir í leiknum var hversu flottur hann er og ekki var hljóðvinnslan að eyðileggja fyrir honum heldur. Fjöldaspilunin er skemmtileg og það er rosa stuð að geta notað VS (Vital Suits) en það eru stór vélræn farartæki með alvöru vopnabúnað. Einnig er hægt að taka vopnin af VS og nota eitt og sér. Karakterinn getur borið tvö vopn ásamt sprengjum.
Spilarar fá reynslustig og með þeim er hægt að bæta og breyta karakternum á ýmsan máta. Í fjöldaspilun er gott að hafa heyrnatól með hljóðnema til að eiga samskipti við samherja.
Er leikurinn þess virði að spila
Þessi leikur hefur verið að fá misjafna dóma í leikjapressunni en hann kom mér skemmtilega á óvart og get ég hiklaust mælt með honum fyrir þá sem hafa gaman af skotleikjum en þá sérstaklega fyrir vini til að spila saman því þar er mesta fjörið.
AFTUR Á FORSÍÐU FLEIRI LEIKJADÓMAR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.