Frísklegur, öruggur, hagkvæmur,
umhverfisvænn og sparneytinn
iQ er forvitnileg ur smábíll sem sver sig í smábílahefðina sem verið hefur meðal aðalsmerkja Toyota í áratugi. Með nafinu iQ er í senn verið að draga fram hinn einstaklingsbundna bíl (i) sem mætt getur fjölbreyttum þörfum og hins vegar gæðin (q) sem Toyota hefur líka gegnum árin stært sig af og með talsverðum rétti. Ekki þykir verra að nafnið iQ vísar einnig til hinnar erlendu skammstöfunar á greindarvísitölu mannsins.
Undirbúningur iQ hófst fyrir allmörgum árum með aukinni umræðu og auknum kröfum til bílaframleiðenda um að bjóða farartæki sem hafa sem minnst umhverfisáhrif og taka lítið pláss í ofurþéttri borgarumferð Japans. Hann er þó ekki eingöngu miðaður við heimamarkað heldur og Evrópu þar sem sala hefst fljótlega á nýju ári.
Gert er ráð fyrir að framleiddir verði um 100 þúsund bílar á ári þegar allt er komið í fullan gang.
Lögð áhersla á sparneytni og nóg pláss
Forráðamenn Toyota settu því fram kröfur um sparneytinn og hagkvæman smábíl sem þó gæti boðið uppá nóg pláss. Af þeim sökum var lögð sérstök áhersla á farþegarýmið og allt endurskoðað með tilliti til þess að ganga ekki á það þótt bíllinn yrði stuttur. Tæknimenn Toyota leystu það meðal annars með því að breyta hjólaupphengjum að framan sem taka minna pláss og gefa færi á að hafa framhjólin nánast frammi í stuðara. Einnig með nýrri hönnun miðstöðvar sem tekur minna pláss og leiddi af sér að hægt var að minnka mælaborðið og ,,þynna“ – allt fyrir stærra farþegarými.
Í útliti er iQ frísklegur, aðalljós sitja ofarlega á litlu vélarhúsinu, hliðarnar eru með skemmtilegum sveigjum og þverskorinn afturendinn með áberandi ljósum og góðum hlera.
Dregið úr mengandi útblæstri
iQ, sem er fjögurra sæta, er innan við þriggja metra langur, örlítið styttri en Aygo, og þegar litið er á hliðar bílsins sést að hurðirnar ná nánast á milli hjóla en hjólhafið er sléttir tveir metrar. Þetta þýðir þokkalega góðan umgang en í iQ fer vel um þrjá fullorðna og barn eða þrjá farþega og farangur. Í mælaborði eru hefðbundnir mælar beint framan við ökumann og til hliðar er V-laga bretti með miðstöðvarstillingum og ofan við það allstór upplýsingaskjár.
iQ verður boðinn með bensín- eða dísilvél. Bensínvélin er þriggja strokka og 68 hestöfl en dísilvélin 1,4 lítrar, 90 hestöfl og fjögurra strokka.
iQ er liður í því framlagi Toyota verksmiðjanna að draga úr mengandi útblæstri frá umferð og gefa vélarnar rétt undir 100 g af koltvísýringi á kílómetrann. Bíllinn vegur 935 kg og er hámarkshraðinn 150 km á klst.
Níu loftpúðar í bílnum
Öryggið er einnig ofarlega á blaði því í þessum litla bíl eru níu loftpúðar. Loftpúðar eru fyrir framan ökumann og farþega, hnéloftpúði fyrir ökumann og loftpúði í sessu framsætisfarþega sem þrýstir hnjám upp. Hliðarloftpúðar, loftpúðagardínur og loftpúði í afturrúðu. Telja forráðamenn Toyota að bíllinn eigi eftir að koma vel út úr hlutlausum árekstraprófunum en bíllinn var í haust valinn bíll ársins í Japan.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.