FRANZ GUNNARSSON SKRIFAR:
Leikurinn Uncharted: Drakes Fortune kom verulega á óvart þegar hann kom á markað 2007. Í Uncharted blandaðist saman ævintýra og hasargeirinn með dassi af þrautum. Leikurinn var vel heppnaður með nýja hetju innanborðs með augastað á frægðarpalli Indiana Jones og Löru Croft. Fyrir stuttu kom annar leikurinn með Drake og er hann heljarinnar rússíbanaferð.
Á vit nýrra ævintýra
Nathan Drake er að slappa af þegar gamall félagi að nafni Harry Flynn leitar hann uppi ásamt hinni föngulegu Chloe Frazer. Þau lokka hann í för til að finna hina týndu borg Shambhala en þar er steinninn Cintamani geymdur. Cintamani er afar verðmætur og dularfull
ur og týndist í svaðilför Marco Polo á leið frá Kína árið
1292. Aðeins eitt skip komst á leiðarenda en 14 týndust á leiðinni og Marco Polo greindi aldrei frá hvernig fór fyrir týndu skipunum. Drake ferðast frá Ista
nbul til Borneo og upp í Himalaya fjöllin í leit að sannleikanum. Svik og prettir leiða hann alla leiðina.
Einstök upplifun
Hasar og aftur hasar
Það er erfitt að leggja niður stýripinnann þegar hasarinn er annarsvegar. Uncharted 2 er ein runa af hasar með einstaka pásum til að segja söguna og þegar Drake er að príla um fjöll og firnindi. Drake hefur val á því hvernig hann tæklar bardaga. Hann getur læðst að óvinum og gert þá óvíga einn í einu eða varpa handsprengjum og hlaupa inn í bardaga með byssuna á lofti.
Drake getur borið tvö skotv
opn ásamt handsprengjum. Nóg er af vopnum og skotfærum fyrir Drake til að nýta allt frá lásabogum til flugskeyta.
Tímamót
Uncharted 2 er í alla staði gæða leikur. Naughty Dog hafa náð að hækka staðalinn töluvert. Nú þegar leikurinn er kominn á markað eru liðsmenn Naughty Dog að uppfæra hann þegar fjöldaspilun er í gangi. Fjöldaspilunarhluti Uncharted 2 er veglegur þar sem t.d. er hægt að vista leiki og horfa á þá síðar frá öllum sjónarhornum. Á meðan þú spilar á netinu eru Naughty Dog að lagfæra og bæta upplifunina. Þú munt ekki sjá eftir því að upplifa Uncharted 2.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.