FORSÍÐA FYRRI SKRIF UM ADCC FYRRI SKRIF UM GUNNAR
Gunnar Nelson átti ótrúlega endurkomu í opnum flokki á ADCC í Barcelona um síðustu helgi eftir að hafa fallið naumlega úr keppni í þyngdaflokknum á laugardag eftir gríðarlega naumt tap á umdeildum dómaraúrskurði. Á sunnudeginum kom hann öllum gjörsamlega á óvart með að sigra í viðureeign sinni við „snjómanninn ógurlega".
Á sunnudeginum gerði Gunnar sér hins vegar lítið fyrir og náði fjórða sæti í opnum flokki. Mesta athygli vakti glíma hans gegn þyngsta manni keppninnar, hinum goðsagnakennda bandaríska vöðvafjalli Jeff Monson sem sennilega er í kringum 40 kílóum þyngri en Gunnar. Monson er heimsfrægur í heimi bardagaíþrótta og hefur viðurnefnið „snjómaðurinn ógurlegi“ en hann hefur m.a. unnið tvisvar til gullverðlauna í þessari keppni og vann núna til bronsverðlauna í þyngsta flokknum í ADCC keppninni í Barcelona.
Eftir 20 mínútna glímu, þ.e. hefðbundnar 10 mínútur og tvöfalda framlengingu í 5 mínútur hvora, náði Gunnar að skora 3 stig á vöðvafjallið og tryggja sér einn óvæntasta sigur í sögu ADCC.
Braulio Estima, margfaldur heims- og Evrópumeistari, sem bæði sigraði sinn þyngdarflokk og opna flokkinn, sagði eftir mótið að glíma Gunnars og Jeff Monson hefði verið ein sú ótrúlegasta sem hann hefði séð á ferlinum og var það mál manna að ef valin væri glíma keppninnar þá væri valið auðvelt. Gunnar tryggði sér síðan fjórða sætið á mótinu með hengingartaki á Bandaríkjamanninum David Avellan.
ÞJÁLFARINN TÓK Á MÓT GUNNARI MEÐ SVARTA BELTIÐ
Fjórða sætið í opnum flokki á ADCC er stórkostlegur árangur hjá hinum kornunga Íslendingi sem gjörsamlega stal senunni á sunnudeginum með frammistöðu sinni. Í framhaldi af því var honum veitt svarta beltið í brasilísku jiu jitsu og er hann fyrsti Íslendingurinn til að hljóta það. Þjálfari hans, Renzo Gracie, afhenti Gunnari beltið þegar hann til New York kom úr fræfðarför sinni til Barcelona.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.