TIL BAKA Á FORSÍÐU FYRRI FRÉTTIR AF GUNNARI
Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson tekur um helgina þátt í ADCC glímukeppninni í Abu Dhabi, sem er af mörgum talin erfiðasta glímukeppni heims. ADCC (Abu Dhabi Combat Club), iðulega stytt í Abu Dhabi í heimi bardagaíþróttanna er haldin annað hvert ár og þar keppa 16 keppendur í hverjum þyngdarflokki, en munurinn milli flokka hleypur á 11 kg.
Átta undankeppnir eru haldnar í öllum heims- álfum (ein í Evrópu) og gullverðlaunahafar hvers þyngdarflokks vinna sér inn þátttökurétt í keppninni. Síðan er 8 öðrum úr hverjum þyngdarflokki boðin þátttaka. Gunnar mun þó keppa í þyngri flokki en hann er vanur því þegar honum bar boðin þátttaka, eftir frábæra frammistöðu á heimsmeistaramótinu í brasi- lísku jiu jitsu, var h ans þyngdarflokkur (-77 kg) orðinn fullskipaður og honum því boðin þátttaka í -88 kg flokki.
Auk þess að vera flokkur vel yfir þyngd Gunnars er flokkurinn talinn sá sterkasti í keppninni með margverðlaunuðum köppum eins og Braulio Estima, André Galvão, Rafael Lovato Jr., Tarsis Humphreys og Bruno Bastos svo fáeinir séu nefndir.
Það var Sheik Tahnoon Bin Zayed Al Nahyan af Abu Dhabi, sonur Sheik Zayed (sem þá var forseti sameinuðu arabísku furstadæmanna) sem kom ADCC keppninni á fót 1998, en markmiðið var að fá bestu glímumenn heims úr hinum ýmsu greinum, Jiu-Jitsu, Wrestling, Judo, Sambo, Shooto o.fl., saman í eina keppni með sameiginlegum reglum þar sem flestir stílar gætu notið sín.
Auk þess að vera léttastur í sínum flokki er Gunnar lang yngstur keppenda (nýorðinn 21 árs) og óreyndastur. Samkvæmt erlendum veðbönkum er möguleika Íslendingsins u nga líka taldir engir (no change), enda hægt að þrjátíufalda pund sitt með því að veðja á hann.
Samúel er þó bjartsýnn á árangur Gunnars. Strákurinn hefur nú áður komið aldeilis á óvart ...
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.