Franz Gunnarsson skrifar. Sýnishorn neðst á síðunni.
Fyrir nokkru skrifaði ég umfjöllun um leikinn Infamous og má segja að PROTO- TYPE eigi margt sameiginlegt með þeim leik. Báðir gerast í opnum heimi byggðum á New York og aðal persónurnar vakna til lífsins með ofurkrafta og þurfa að berjast með kjafti og klóm til að komast að stórum leyndarmálum.
Frumgerðin
Þú ert Alex Mercer sem vaknar upp í New York með gífurlega öfluga eiginleika en mjög götótt minni um fyrra líf. Þú ert meðvitaður um að eitthvað hræðilegt er að gerast. Þú ert staðráðinn í að komast að sannleikanum hvað sem það kostar. Þú ert frumgerð í líffræðilegri tilraun með vírus sem gerir þig að vopni sem leynilegar deildir innan hersins vilja ná. Til að komast að sannleikanum Þarf Alex að heyja stríð við þessar deildir hersins með öllum tiltækum ráðum og púsla saman minningum um fyrra líf.
Ótrúlegir eiginleikar
Alex er mjög öflugt líffræðilegt vopn þegar hann vaknar og í gegnum leikinn getur hann bætt enn frekar alla þá eiginleika sem búa innra með honum. Fyrst má nefna að hann getur hlaupið upp og niður byggingar og svifið langar vegalengdir og hlaupið ótrúlega hratt. Einnig getur hann umbreytt sér og orðið að líffræðilegu vopni. Hendurnar breytast í stjaka, hamra eða sveðjur til að slátra öllu því sem á vegi hans verður ásamt nokkurs konar svipu sem hann nýtir til að ná í manneskjur og farartæki úr fjarlægð. Alex er ótrúlega sterkur og því getur hann lyft bílum og öðrum þungum hlutum sem hann fleygir svo langar vegalengdir. Til að verjast árásum getur Alex breytt hönd í skjöld eða brynvarið sig með sterkum hjúp.
Vefur leyndarmálsins
Alex hefur þá eiginleika að taka á sig mynd karaktera í leiknum og getur sogað í sig minni þeirra. Með því fær hann glefsur í formi myndbanda sem tengja sögufléttuna saman. Þetta er einstaklega hress aðferð til að koma sögunni til skila og einnig getur Alex þá spókað sig um óáreittur innan um óvinina og komist inn í virki þeirra og gert árás innan frá. Að taka á sig mynd hátt settra hermanna eykur kraftinn og færnina hjá Alex til að berjast.
Byssur og þungavopn
Alex getur notað skotvopn sem hermennirnir bera en þó er betra fyrir hann að stela skriðdrekum og þyrlum til að nota í orrustum. Það er einstaklega flott hvernig Alex notar fimleikahreyfingar til að ná valdi á farartækjunum. Þessi viðbót á vopnanýtingu gefur leiknum mikla innspýtingu í spilun.
Vírus breytir New York
Leikjaheimurinn er opinn og mjög lifandi. Eftir því sem líða tekur á leikinn eru heilu hverfin í borginni orðin sýkt af veirunni og breytist andrúmsloftið því mikið eftir því hvar Alex er staddur. Í sýktu hverfunum er allt á öðrum endanum þar sem herinn berst við sýkta borgarbúana og þá óvætti sem vírusinn hefur leyst úr læðingi. Hræ- gammar svífa yfir og mikill drungi fylgir.
Umgjörð og spilun
Leikurinn er ekki sá flottasti á markaðnum en bætir það upp með frábærri spilun. Það er nóg af verkefnum til að leysa en leikurinn hefði verið fullkomnari ef fjöldaspilun hefði verið í boði. Hljóðvinnslan er mjög góð og í heildina litið stendur Prototype undir þeim væntingum sem ég gerði til leikjarins.
Hvað verður um Alex?
Ég tel það mjög líklegt að framhald af leiknum verði gert að því gefnu að Prototype seljist þokkalega vel. Vangaveltur hafa verið um að Prototype endi í trílógíu. Fram- leiðandi leikjarins er alla vega með mjög góðan efnivið í höndunum og sagan getur haldið áfram. En nóg um það, ef þú hefur ekki spilað þennan leik nú þegar mæli ég eindregið með því að þú gerir það. Prototype rokkar.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.