FRANZ GUNNARSSON SKRIFAR Sýnishorn neðst á síðunni
Fyrsti Ghostbusters leikurinn kom á markað 1984. Hann var ekki góður en síðan þá hafa margir Ghostbusters leikir verið gerðir en enginn þeirra hefur virkilega leyft spilurum að vita hvernig það er að vera draugabani fyrr en núna, 25 árum síðar.
Hið raunverulega framhald
Þegar kom að því að gera alvöru Ghost- busters leik dugði ekkert annað til en að fá alla upprunalegu höfunda og leikara mynd- arinnar. Já, allir helstu karakterarnir eru mættir til að gera þennan leik og það sem meira er, höfundar Ghostbusters hjálpuðu til við handritaskrif og voru leikjaframleiðendum innan handar við gerð leiksins. Fyrstu verkefni leiksins eru eins og klippt út úr fyrstu myndinni og svo tekur framhald sögunnar við. Baráttan við Gozer heldur áfram.
Orkupakkar og draugabanar
Það sem skiptir höfuðmáli í leiknum er að vera með eins góðan orkupakka á bakinu í baráttunni við hina framliðnu eins og hægt er. Þú græðir peninga í starfinu sem draugabani og getur því keypt viðbætur í orkupakka þinn ásamt fylgihlutum. Þó ber að varast að skemma ekki eignir annarra í vinnunni því skemmdir á persónulegum munum eru dregnar frá laununum þínum.
Orkupakkinn hefur fjóra orkugjafa. Proton strauminn, sem fangar drauga, ásamt boson bombum sem dugarvel á allan draugaganginn. Grænt slím er einnig gott vopn því þú getur sprautað því á opnar holur, sem eru hurðavíddir að draugaheiminum, en einnig getur þú skotið slímreipi í drauga og aðra hluti þegar þess þarf með. Einnig er blár straumur, sem virkar eins og haglabyssa, og gulur straumur, sem er vélbyssan í orkupakkanum. Með alla þessa orku í botni ertu óstöðvandi.
Einn fyrir alla en ekki allir fyrir einn
Þema leiksins snýst um samvinnu hópsins. Þú ert einn af draugabönunum og þeir hjálpa hver öðrum. Þegar á reynir munu drauga- banarnir falla í bardaga og það er undir þér komið að hjálpa félögunum á lappir því þeir gera það sama fyrir þig. Reyndar er það mjög pirrandi á köflum að halda lífi í félögunum og um leið og þú fellur og bíður eftir aðstoð þá falla félagarnir líka í einni runu og leikurinn endar. Þetta væri ekki mikið mál nema að í hvert skipti sem leikurinn endar tekur við langur hlöðunartími sem færir þig á byrjunarreit. Sem betur fer hljómar einkennislag Ghostbusters með Ray Parker Jr. á meðan leikurinn er að hlaðast á ný.
Hei, veiðum drauga!
Aðallinn í leiknum er að fanga drauga. Hérna skín í gegn snilldin sem hinir Ghost- busters leikirnir náðu ekki. Þegar proton straumurinn er búinn að yfirbuga drauginn er tími til kominn að landa draugsa í gildruna. Nú hefst mikil veiðimennska á fjar stýringunni og ég gæti trúað að Wii notendur séu himinlifandi með þennan hluta leiksins. Loksins veistu að það eru átök að veiða drauga.
Þegar veiðin nær hámarki er gamli góði Ecto-1 bíllinn fenginn til liðs við drauga- banana í baráttunni við Gozer. Ecto-1 er útbúinn öflugum geislum sem fanga stóru draugadurgana.
Metnaðarfull endurkoma
Ghostbusters er þrælfínn leikur umvafinn böggum. Framsetningin er glæsileg með öllum upprunalegu leikurunum og höfundunum. Öll tónlist er upprunaleg og hljóð- setning mjög góð. Reyndar spillir fyrir að NPC karakterarnir segja sömu setningarnar aftur og aftur o.s.frv.. Langir hlöðunartímar verða þreytandi.
Ég reyndi fjöldaspilunarmöguleikann! Skemmtilegir spilunarmöguleikar í boði. Átti erfitt með að tengjast leikjum, en þann stutta tíma sem ég náði sambandi við hina lifandi draugabana var góður tími.
Sem Ghostbusters aðdáandi frá upphafi hef ég verið frekar súr að hinir framliðnu hafa haft hægt um sig frá árinu 1984 þegar Ghostbusters komu, sáu og spörkuðu í rassgatið á Gozer. Nú er Gozer kominn aftur á kreik og er ekki sáttur við Ghostbust- ers. Sagan heldur áfram og draugarnir eru allir sloppnir út, eina ferðina enn í boði Peck. Þessi leikur er skyldueign fyrir Ghostbusters aðdáendur og tilvalinn fyrir yngri hasarleikjaspilara. Ekkert blóð, bara slím. Feðgaleikur á alla kanta.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.