FRANZ GUNNARSSON SKRIFAR SJÁ VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐUNNI
Opnir leikjaheimar verða sífellt fyrirferðameiri á markaðinum og það er bara gott mál. Infamous er einn slíkur og nær hann að teygja geirann lengra og blanda saman skemmtilegum atriðum úr öðrum leikjageirum.
Sagan af hinu góða og illa
Infamous gerist í Empire City sem líkist helst New York. Gríðarleg sprenging verður. Þú ert sjálfur Cole og lifir af sprengjuna þó ótrúlegt megi virðast þar sem Cole er mjög nálægt bombunni þegar hún jafnar hálft hverfi við jörðu. En Cole er breyttur maður, hann hefur öðlast ofurkraft í formi rafmagns. Þessi kraftur þróast með söguþræðinum og gefur Cole ýmsa rafmagnaða hæfileika.
Sprengingin orsakar mikla skelfingu í Empire City sem hefur verið einangruð frá restinni af landinu og undirheimarnir ná fljótt völdum með viðeigandi ruddaskap. Lögreglan er yfirbuguð. Cole er stimplaður sem hryðjuverka- maður því hann var með sprengjuna í sínum fórum en ekki er allt sem sýnist. Það er kominn tími til að hann komist að sannleikanum og endur- heimti ást konu sinnar, sem kennir honum um dauða systur sinnar, sem féll í sprengingunni.
Karma kamelljónið
Það kemur fljótt í ljós að Cole þarf að velja sér braut í leiknum. Að vera góður eða vondur eða jafnvel sitt á hvað. Stemmingin í leiknum ræðst á því hvora brautina Cole velur. Umhverfið og athygli íbúa miðast við hvort Cole er hetja eða skúrkur. Verkefnin og ofurkraftarnir eru mismunandi eftir því hvora brautina er valið. Á vissum tímapunktum fær Cole valkosti sem njörva niður brautina. Þetta gefur leikmönnum mikið frelsi og ending leiksins lengist svo um munar.
Ofurkraftar og rennibrautir
Þegar Cole klárar ákveðin verkefni öðlast hann nýja krafta eins og öflug rafskot, flug og rafskjöld. Einnig getur Cole gert kraftana betri með því að safna reynslustigum. Þau fást með því að klára söguþráðinn og hin fjölmörgu hliðarverkefni sem fyrirfinnast í borg- inni. Cole getur stytt sér leið um borgina með því að renna sér eftir rafmagnslínum og járnbrautarteinum. Minnir mikið á leikinn Jet Set Radio sem er gott. Cole endurnærir kraftana í nærliggjandi rafmagni. Með einum hnappasmell sér Cole á staðsetningarradar sínum hvar næsta rafmagn er að finna. Hann sýgur rafmagnið í sig og er til í slaginn.
Er Cole hinn nýi köngulóarmaður?
Stór hluti leiksins fer fram á húsþökum. Cole getur prílað allar byggingar og þegar mest á lætur er hann sveimandi á milli bygginga eins köngu- lóarmaðurinn. Cole getur líka handsamað óvini með rafmagni líkt og köngulóarmaðurinn gerir með vefnum sínum. Cole klæðist hinsvegar ekki kjánalegum búning og þykist ekki vera nörd á daginn eins og köngulóar- maðurinn og ofurmennið.
Endurtekningar
Helsti löstur Infamous er að síendurtekning á sömu aukaverkefnum verða leiðigjörn. Til þess að auka kraftana þarftu að leysa þessi verkefni. NPC karakterarnir eru frekar litlausir og bílaumferðin í borginni furðuleg. Annars er umgjörðin mjög fín og spilun góð. Cole er áhugaverður karakter sem mótast af vilja leikmanns. En hvort hann sé góður eða vondur þá nennir hann engu kjaftæði, hann vill berjast með rafmagni.
Framhald
Það er nokkuð ljóst að Cole mun snúa aftur. Of mörgum spurningum í söguþræðinum er ósvarað og hefnd hans óefnd. Eftir að hafa spilað þennan leik sem góður Cole þá er ég tilbúinn í næsta kaflann.
Í millitíðinni renni ég aftur í gegnum Infamous sem vondi Cole og hef gaman af og það munt þú líka hafa. AFTUR Á FORSÍÐU
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.