Sigurganga bardagaíþróttamannsins íslenska Gunnars Nelson hélt áfram laugardagskvöldið 18. apríl er hann vann gull- og bronsverðlaun á New York á opna meistaramótinu í Jiu Jitsu.
Sigraði Gunnari í sínum þyngdarflokki og lenti í þriðja sæti í opnum flokki. Þess má geta að Gunnar var hársbreidd frá því að komast í úrslit í opnum flokki en hann tapaði í undanúrslitum fyrir sér miklu þyngri andstæðingi á minnsta mögulega stigamun.
Gunnar er aðeins tvítugur að aldri og kom gríðarlega á óvart 29. mars síðastliðinn þegar hann vann til gullverðlauna í sínum flokki á næsta stærsta móti sem haldið er árlega í Jiu Jitsu, Pan Jiu-Jitsu Championship 2009. Gunnar lagði fimm andstæð- inga á því móti, þar af þekkt nöfn úr Jiu Jitsu heiminum eins og Clark Gracie, Daren Roberts og Bruno Alves.
Gunnar stefnir núna á þátttöku í heimsmeistarakeppninni í byrjun júní, en keppendur þar eru hátt í 2000 og áhorfendur iðulega á annan tug þúsunda.
Gunnar varð þrefaldur Íslandsmeistari í Jiu Jitsu á síðasta Íslandsmeistaramóti sem haldið var í október.
Nánari upplýsinar um Gunnar, m.a. myndbönd af bardögum hans og glímum, eru á opinberu vefsetri hans: www.gunnarnelson.info
Smella hér til að sjá eldri skrif um Gunnar Nelson
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.