Á síðustu árum hefur sala á hárvörum fyrir herra vaxið gríðarlega. Karlmönnum er orðið umhugaðra um útlit sitt og ímynd og eru um leið orðnir kröfuharðari kaup- endur. Á sama tíma eru karlmenn farnir að þora að prófa eitthvað nýtt í hárgreiðslu. Þetta hefur svo aftur leitt til þess að vöru- valið er fjölbreyttara og eiga menn nú auðveldara með að fá það sem þeim hentar hverjum og einum hvort heldur sem leitað er að hárvörum til notkunar hversdags eða tilstands. Flestir vilja karlmenn komast hjá því að vera að dúlla í hárinu á sér yfir daginn eftir að hárþvotti er lokið að morgni og gel eða vax hefur verið borið í það og hárinu komið í það horf sem til er ætlast.
Til að fræðast um hárvörur fyrir herra snéri Samúel sér til Óla Bogga, hárgreiðslu- meistara hjá Solid, hárgreiðslustofunni í gamla Sjónvarpshúsinu við Laugaveg.
VILJA EKKERT EKKERT KJAFTÆÐI
„Taktu eftir því að það er ekki sama litaflóran í hárvörunum fyrir herra og dömur,” segir Óli Boggi og sýnir okkur vöruvalið frá TIGI. „Herravörurnar eru einfaldlega í hvítu og svörtu. Karlmaður, sem mundi treysta sér til að rífa í sundur mótorhjól, smyrja það og setja saman aftur, nennir ekki að standa í neinu kjaftæði þegar kemur að því að velja hárvörur. Það er hins vegar svo að þegar strákarnir hafa fundið þær hárvörur sem þeim líkar eru þeir orðn ir tryggir kaupendur,” segir hann.
ALLTAF EN BARA MINNA Í HVERT SKIPTI
Áður en Óli Boggi tók til við að fræða Samúel um það nýjasta í hárvörum vildi hann koma þeim skilaboðum til lesenda að nota bæði sjampó og næringu saman í hvert skipti sem farið er í sturtu. „Jafnvel þó að það sé daglega. Þá er bara að nota minna af efnunum í hvert skipti,” segir Óli Boggi. „Þegar þú ert að nota góða vöru eins og TIGI þarftu eki að sprauta meiru í lófann en sem svarar til stærðar krónupenings.”
FRAMLEIDDAR UNDIR HANDLEIÐSLU HÁRGREIÐSLUFÓLKS
„Það góða við hárvörurnar frá TIGI er að þær eru þróaðar og framleiddar undir handleiðslu hárgreiðslufólks,” sagði hárgreiðslumeistarinn. Að svo mæltu dró hann fram nýjung í B-línunni frá TIGI.
CLEAN UP er sjampó sem hentar öllum hártegundum og hreinsar burtu allt gel eða annað sem situr í hárinu. Sjampóið hefur róandi áhrif á hársvörðinn og það má glöggt sjá hvað sjampóið hefur haft góð áhrif á hárið.” Óli Boggi vekur athygli á því að af sjampóinu er notalegur piparmyntuilmur.
CHARGE UP er heiti á sjampói og jafnframt næringu í sínum hvorum brúsanum. Þetta eru réttu efnin fyrir þá sem fíla þykkara hár og hentar um leið þeim sem hárið er farið að þynnast á. Charge Up gefur hárinu mikla fyllingu.”
MATTE SEPARATION er mest selda varan frá TIGI. Matte Seperation er vax sem all ir fíla. Það er auðvelt að forma hárið léttilega með fingrunum. Þó að það veiti gott hald hefur hárið samt náttúrulegt yfirbragð.”
POWER PLAY er þetta gamla góða gel sem er hvorki of stíft eða hart. Þú klárar dæmið eftir hárþvott og næringu með Power Play,” segir Óli Boggi að lokum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu umboðsaðilans HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.