FRANZ GUNNARSSON SKRIFAR UM MIRRORS EDGE - Playstation 3
Öðru hverju koma á markað leikir sem eiga sér engan líkan og skapa sér ótrulega mikla sérstöðu. Mirrors Edge er einn slíkur og hefur hann nú þegar hlotið mikið lof í tölvuleikjapressunni.
Hér er á ferðinni leikur byggður á götustílnum XXXXX sem gengur út á að þeysast um götur, húsþök og önnur mannvirki borga með tilheyrandi príli og brölti.
Framtíðin er í gíslingu
Í framtíðinni stýrir stóri bróðir öllu og virðist meirihluti mannfólksins sátt við það svo lengi sem það fær að halda sínum lífsgæðum og vera öruggt. Ekki eru allir sáttir við þetta fyrirkom
ulag og eru því sérstakir hlauparar fengnir til að ferðast á milli aðila með skilaboð eða pakka og að sjálfsögðu eru þessir hlauparar hundeltir af lögreglunni.
Ótrúlegir loftfimleikar
Leikurinn hefst á kynningu á stjórnun leiksins og mæli ég með því að allir kynni sér hana í þaula því það er alls ekki gott príla uppi á húsþökum me
ð lögregluna á hælunum.
Þegar þjálfunarferli er lokið hefst kapphlaupið. Þú ert hlauparinn XXXX og byrjar á auðveldum verkefnum. Hátt fyrir ofan götukjarnana stundar þú ótrúlega loftfimleika. Þegar fram líða stundir verða verkefnin erfiðari og í senn meira spennandi.
Opinn heimur me
eth; sérstöðu
Leiðirnar sem þú getur farið í leiknum eru þó nokkrar og auka á frelsi leikmanna til komast á leiðarenda eftir sínum leiðum. Leikurinn er sem sagt opinn en um leið færðu leiðbeiningar um hvert þú átt að fara.
Það þýðir ekkert að hangsa því lögreglan er á eftir þér og það er ansi magnþrungið að hafa hana á hælunum. Með þessari spennu er auðvelt að misstíga sig og falla langt niður til jarðar með tilheyrandi afleiðingum.
Töff hönnun fyrir stílistana
Umgjörð leiksins er mjög smart og smekklega útfærð. Allur arkitektúr er raunverulegur og hafa framleiðendur klárlega viljað hafa stílinn fágaðan en töff. Enginn leikur getur talist eins og þessi og er það fjöður í hattinn fyrir Dice sem gerir þennan leik.
Ekki fyrir alla
Mirrors Edge er mjög sérstakur leikur sem á kannski ekki erindi inn á öll heimili en þeir sem eru orðnir þreyttir á sömu, gömlu leikjaklisjunum og vilja prufa eitthvað nýtt eru vinsamlegast beðnir um að tékka á þessum leik. Hann er mjög sérstakur og kemur ferskur inn í leikjageirann.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.