Samúel hefur það eftir ekki ómerkari heimildum en Forbes.com að spjall- þáttakóngurinn Jay Leno eigi meira en 50 sport- og fornbíla. Þá geymir hann í þremur bílskúrum, eða öllu heldur bílasölum, sem hvaða bílasala gæti verið stolt af. Þar inn á milli kemur hann svo mótorhjólunum sínum haganlega fyrir þar sem glufa gefst á svæðinu, en hjólin eru viðlíka mörg og bílarnir.
Sökum mikilla anna gefst Jay Leno ekki mikill tími til bílaviðgerðanna sjálfur, en hann er með tvo bifvélavirkja í fullu starfi við að sinna þeim málum.
TVEIR BIFVÉLAVIRKJAR Í FULLU STARFI
Hann lætur sér ekki nægja að fullnægja söfnunaráráttunni heldur leggur hann allt kapp á að koma fornbílunum í upprunalegt horf og fullkomlega ökufært ástand. Það sem gerir bílasafn Leno enn merkilegra er það prinsipp hans að hýsa þar ekki neina nýja bíla.
Jay Leno ekur hverjum einasta bíl reglulega til að halda þeim við og njóta ánægjunnar af því að aka aldrei sama bílunum tvo daga í röð. Það tekur hann raunar um tvo mánuði að viðra þá þannig hvern á fætur öðrum auk mótorhjól- anna. Svo er hann sagður reiðubúinn til að lána bílana bestu vinum sínum ef þess er óskað.
SELDI ÞRJÚ FARARTÆKI FYRIR JAFNVIRÐI 240 MILLJÓNA KRÓNA
Spjallþáttastjórinn vinsæli styrkir góðgerðastarf duglega og þá kemur mótoráhugi hans gjarnan við sögu. Sjónvarpsáhorfendur muna sjálfsagt eftir því þegar hann árið 2001 kom akandi í vinnuna einn daginn á Harley-Davidson, stillti hjólinu upp á sviðinu og hóf að safna á það eiginhandaráritunum stjarnanna sem heimsóttu hann í þættinum um skeið. Hjólið seldi hann svo á uppboði og fékk jafnvirði 40 milljóna íslenskra króna fyrir gripinn. Upphæðin rann til fórnarlamba flugárásar- innar á Tvíburaturnana í New York.Hann endurtók leikinn 2004 og halaði þá inn ríflega helmingi hærri upphæð sem hann gaf til hjálparstarfsins í kjölfar flóðanna við strendur Indlandshafs. Aftur sama ár tókst honum að safna upphæð, sem nemur jafnvirði 110 milljóna íslenskra króna, til styrktar fórnarlamba fellibylsins Katrínar.
BÍLARNIR ALLT FRÁ UPPHAFI SÍÐUSTU ALDAR
Einn áhugaverðasti bíllinn í eigu Leno er hinn fágæti 6,5 m langi Blastolene Special, sem hann keypti af framleiðendunum árið 2004. Þetta 810 hestafla farartæki sýndi hann í þætti sínum árið 2005 þegar Arnold Schwarzenegger var gestur hans. Bílinn, sem metinn er á um 30 milljónir króna, skýrði hann við það tækifæri Terminator Car.Af öðrum bílum má nefna McLaren F1, Porsche Carrera GT, Ariel Atom, Mercedes-Benz SLR McLaren, Lamborghini Miura, Ford GT, Audi R8 og sérsmíðaðan Corvette C6RS (Z06 smíðaðan undir handleiðslu Pratt & Miller). Bílaáhugi Jay Leno er gríðarlegur og getur hann unað sér við samræður um hestöfl og tog tímunum saman.
Leno lætur ekki stærstu bílasýningar framhjá sér fara ef þar er að finna áhuga- verða sport- eða fornbíla. Þess má svo geta, að hann heldur úti föstum dálki um bíla í hinu vinsæla tímariti Popular Mechanic og skrifar líka öðru hverju um bíla fyrir London Times.
EIGINKONAN VEIT ALLTAF HVAR HÚN GENGUR AÐ KARLINUM VÍSUM
Þegar hann er spurður um viðhorf eiginkonu hans til bíladellurnar svarar hann eins og hans er von og vísa: „Bíladellan er ódýrara tómstundagaman en mellur og kókaín. Flestir náungar hér í Hollywood eiga tuttugu vinkonur og einn bíl. Ég á nokkra tugi bíla og eina konu. Hún veit alltaf hvar mig er að finna. Ég er hér í bílskúrnum.”
sp; „Að vera þeirrar gæfu aðnjótandi að lifa og hrærast innan um alla þessa eðal- bíla er stórkostleg skemmtun,” segir Leno að lokum. „Við eigum í rauninni ekki þessa bíla. Við erum að varðveita þá fyrir næstu eigendur.”
SMELLA HÉR til að sjá þrælflotta heimasíðu bílasafnarans Jay Leno.
Hér fyrir neðan er fyrri hluti heimsóknar Dennis Gage í bílageymslur Jay Leno.
SMELLA HÉR til að sjá síðari hluta þáttarins.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.