BMW frumsýndi nýlega mjög sérstakan tilraunabíl, svo ekki sé meira sagt. Bílinn, sem kallast GINA Light Visionary Mode l, er með annars konar yfirbyggingu en hefðbundnir bílar. Hönnuðum BMW var sagt að henda út öllum hefðbundnum viðmiðum í hönnun. Komu þeir þá með bíl þar sem ytra byrðið er úr textílefni.
Flugvélar fyrri heimsst s/advanced/langs/en.js" type="text/javascript"> yrjaldar voru margar hverjar með skel úr tjörubornum striga en útgáfa BMW er töluvert þróaðri.
GETUR BREYTT UM ÚTLIT EINS OG UMSKIPTINGUR
Grindin undir efninu er úr stáli og kolrefjaþráðum sem er stjórnað með tölvustýrðum vökvadælum. Þræðirnir hreyfast þannig til og getur bíllinn því breytt um útlit eins og nokkurs konar umskiptingur. Til að mynda geta framljósin opnast eða lokast eins og mannsaugu og vélarhlífin opnast út frá miðjunni eins og fortjald í leikhúsi.
HURÐIRNAR LYFTAST EINS OG VÆNGIR
Svipað er uppi á teningnum innandyra, en þar sjást aðeins þeir mælar sem eru nauðsynlegir hverju sinni.
Bíllinn líkist helst Z4 Roadster sportbílnum og það er alveg ótrúlegt hversu líkt efnið er hefðbundnu stáli, eða alveg þar til hurðir bílsins opnast. Þær opnast nefnilega þannig að þær lyftast upp eins og vængir frá hjörunum og krumpa þannig efnið.
Þótt bíllinn sé hugsaður sem hönnunar- stúdía fyrir hönnuði BMW hefur hann vakið töluverða athygli bílaáhugamanna, enda ekki á hverjum degi sem að bíll sem getur skipt um útlit kemur fram í dagsljósið.
Sjá nánar á síðu autoblog með því að SMELLA HÉR
Njáll skrifar einnig um bíla og mótorhjól á adalbraut.is
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.