NÝR LIÐSMAÐUR SAMÚELS
Njáll Gunnlaugsson ökukennari hefur gengið til liðs við Samúel og mun skrifa fyrir vefs iacute;ðuna um mótorhjól og bíla. Njáll er kunnur fyrir skrif sín um hvers konar mótorsport en hann var ritstjóri DV-bíla og tímaritsins Bílar og Sport og var um tíma formaður Bandalags íslens kra bila- blaðamanna (BÍBB). Njáll er höfundur bókarinnar Akstur og umferð bifhjóla, sem er sú kennslubók í mótorhjólaakstri sem að allir styðjast við í dag, en hann er einnig höfundur bókarinnar Þá riðu hetjur um héröð, en sú bók greinir frá 100 ára sögu mótorhjólsins á Íslandi.
NJÁLL GUNNLAUGSSON SKRIFAR
Ferðahjól til langferða eru vinsæl um þessar mundir, enda hafa myndir um ferðalög þeirra Ewan McGregor og Charlie Boorman umhverfis jörðina vakið mikla athygli. Afleiðingin er aukin sala í þessum geira um 30-40% og eru það frekar evrópsk merki eins og BMW og KTM sem ráða þessum markaði.
Freistar það margra að fara þangað sem fáir aðrir hafa farið áður, og þá á faratæki sem ræður við torleiði en fer um leið vel með ökumanninn á langkeyrslunni.
SKIPT Á BENSÍNVÉL YFIR Í DÍSELVÉL
Ferðahjól þessi eru oft aðþekkjanleg á farangri þeirra, tveimur til þremur hörðum töskum að aftanverðu og jafnvel tanktösku, og til að geta bjargað sér á vegum úti er oft annað sett af dekkjum með í för. Hér er þó dálítið annað á ferðinni, hvernig væri eiginlega að skipta á bensínvél fyrir dísilvél sem þolir betur svona langan akstur?
Hollenska fyrirtækið EVA hefur einmitt verið að þróa svona hjól fyrir almennan markað á síðustu árum, en ekki hefur verið um auðugan garð að gresja hingað til. Kawasaki hefur reyndar þegar þróað dísilútgáfu af hinu vinsæla KLR 650 torfæruhjóli en það er aðeins fyrir bandaríska herinn. Royal Enfield hefur einnig verið með olíbrennara í sölu en óhætt er að segja að það sé of gamaldags til að skapa einhverja eftirspurn. Dísilhjólið frá EVA, sem kallast reyndar Track, gæti þó breytt þessu viðhorfi.
EYÐSLAN MUN MINNI EN BENSÍNVÉLA
Vélin í því er 800 rsm og er með forþjöppu og millikæli og skilar 54 hestöflum og 102 Newtonmetrum af togi við aðeins 1800 snúninga. Það sem skiptir ferðalanginn þó mestu máli er eflaust sú staðreynd að eyðsla dísilvéla er mun minni en bensínvéla og þetta hjól eyðir aðeins tæpum 2,5 lítrum á hundraðið. Með 23 lítra tanki er því mögulegt að fara allt að 1000 km í einu á hjólinu.
GETUR GENGIÐ FYRIR LÍFDÍSEL OG GRÆNMETISOLÍU
Ekki skemmir heldur fyrir að vélin getur einnig gengið á lífdísil eða þess vegna grænmetisolíu. Hjólið er 227 kíló þurrt og er með nokkurs konar sjálfskiptingu og miðflóttaaflskúplingu eins og í Vespu. Rúsínan í pylsuendanum er svo vökvastýrt framdrif sem er fáanlegt sem aukabúnaður. Hjólið mun kosta 17.500 evrur þegar það kemur á markað í vor.
Njáll skrifar einnig um bíla og mótorhjól á adalbraut.is
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.