Vínrækt heur verið stunduð í Pfalz-héraðinu í Þýskalandi alveg frá dögum Rómverja fyrir meira en 2000 árum. Þeir vissu að þar sem möndlu- og gráfíkjutré blómstruðu ætti vínviðurinn góða möguleika á að þroskast og bera ávöxt. Þeir fluttu því vínmenningu sína með sér til greifadæmanna þegar þeir lögðu landið undir sig og náðu fljótt góðum árangri við vínrækt- ina vegna góðra skilyrða. Í dag telst Pfalz-hérað besta vínræktarhéraðið í Þýskalandi og hvergi annars staðar í landinu er framleitt eins mikið af hágæða vínþrúgum.
Í hlíðum Middle-Haardt eru hinar frægu Rheinpfalz (Pfalz) vínekrur, sem eitt sin voru í eigu biskupsins af Spire. Á því svæði eru Palatinate svæðið vínekrur Deimel fjölskyldunnar, sem framleitt hefur gæðavín síðan í byrjun sextándu aldar.
Upphaflega var aðeins um hefðbundna heimilisframleiðslu að ræða en gæði hennar spurðust fljótt út þannig að árið 1977 stofnaði fjölskyldan sitt eigið vín- ræktarbú, Weingut Manfred Deimel, og hóf sölu á flöskuvínum á almennum markaði.
Ræktunin fer fram á sextán hekturum og eru 70% hektaranna lögð undir hvítar tegundir en 30% rauðar. Aðal áherslan er lögð á framleiðslu Riesling vína en meðal annara tegunda eru Spatburgunder, Dornfelder, Grauer Burgundir, Muller-Thurgau og Silvaner.
Það eru feðgarnir Manfred of Stephan Deimel sem stjórna framleiðslunni og þykja þeir hafa náð frábærum árangri við vínframleiðsuna. Bæði er notast við hágæða tæki auk þess sem haldið er í gamlar hefðir við framleðslu ákveðinna tegunda.
Þegar Manfred kom hingað til lands á dögunum til að fylgja sölu vínframleiðslu sinnar hér úr hlaði taldi hann það eiga stóran þátt í ágæti vína sinna, að hann notaði hvorki áburð eða annað við ræktunina. Hann léti jafnvel náttúruna sjálfa um alla vökvun, en þeir sem rækta vínvið eru í langflestum tilvikum með öflugt úðunarkerfi í gangi.
Eina sem Manfred segist gera til að hafa áhrif á ræktunina er það, að eftir að hann hefur pressað berin tætir hann niður úrganginn, hýðið og annað af vínberjaklasanum, og dreifir á vínekrunni.
RIESLING-vínin, sem gjarnan eru kölluð konungur hvítvínsins, þykja mjög ljúffeng með framandi aprikósu- og sítrónuangan. Frískur ávxtakeimur einkennir þau og gott eftirbragð, auk þess sem gott jafnvægi er milli sæt- og súrleika.
Passar vel með fiski, ljósu kjöti, svína- og kálfasteik, gæsasteik og alls konar eftirréttum.
KERNER-hvítvínið hefur verið framleitt frá því 1979. Kerner vínið er fágað og margslungið hvítvín með ölkelduvatns- og ávxtakeim. Það státar af mjög góðu jafnvægi milli þess að vera milt og sýrukennt. Ilmur þess minnir á aprikósur og epli og vínið hefur sterkan blómailm.
Hentar vel með ljósu kjöti, svínakjöti, kjúklingakjöti, fiski og eftirréttum.
DORNFELDER -rauðvínið hefur verið framleitt frá árinu 1982. Dornfelder er dökkrautt, bragðmikið, þurrt rauðvín með mikla fyllingu. Ilmurinn er eins og villiber og kirsuber. Vínið hefur tæra, glitrandi uppbyggingu og bragð sem býr yfir innri samhljómum, er í jafnvægi og með langvarandi flauelsmjúkt eftirbragð.
Hentar t.d. vel með steiktu og grilluðu dökku kjöti, roast beef, villibráð og ýmsum tegundum af sterkum ostum.
SPARKLING-vínin eru framleidd með hefðbundnum hætti með flöskugerjun og ilmurinn er ósvikinn Mousseux-ilmur í bland við ferskan hvítvínsilminn. Ljúffengur ávaxtakeimur út í gegn í bland við frískandi súrleika.
Passar vel sem listauki fyrir ýmsa sjávarrétti, fisk, grænmeti, kalt borð og eftirrétti. Auk þess er það mjög svalandi og vinsælt sem veisludrykkur. Þetta er vínið fyrir áramótateitið.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.