PM (Personal Mobility) er nýtt og forvitnilegt einstaklingsfarartæki frá TOYOTA sem stígur skrefinu lengra í að persónugera bílinn. Hefur hann hvarvetna dregið að sér einna mesta athygli og verðskuldaða hrifningu þar sem hann hefur sést á bílasýningum.
Rýmið fyrir ökumanninn minnir helst á belg og hefur farartækið tvo stýripinna fyrir rafstýrða hemlun, hröðun og stýrisbúnað. Burstalaus rafmótor að aftan knýr bílinn áfram. Hér fyrir neðan má sjá þetta undra farartæki á bílasýningu.
FÉLAGSLYNT FARARATÆKI
Sjónrænt samskiptakerfi heldur bílnum í sambandi við aðra PM-bíla svo þeir geti deilt upplýsingum og „spjallað saman“ um reynslu sína. PM eru nefnilega félagslynd tæki sem
geta ferðast í hópum þar sem eitt tekur forystuna og hin fylgja á eftir með öruggu millibili á sjálfstýringu. Aðeins fremsti bíllinn þarf að hafa ákvörðunarstaðinn forritaðan í leiðsögukerfið.PM tjáir einnig mismunandi „tilfinningar“ og notar til þess ljósdíóður á yfirbyggingunni, ljósunum og afturhjólunum sem sýna mismunandi liti. Aðalljósin líkjast helst fálmurum og því minnir bíllinn á framandi lífveru.
RÉTT LÍKAMSSTAÐA Í FYRIRÚMI VIÐ HÖNNUN
Stilling farþegarýmisins og lengd hjólhafsins laga sig að akstursskilyrðum, bíllinn stendur hátt til að auðvelda inngöngu, lækkar sig aðeins fyrir innanbæjarakstur og teygir alveg úr sér fyrir akstur á miklum hraða.
Farþegarýmið og hjóla- og fjöðrunarbúnaður eru aðskilin og því getur PM breytt stellingu sinni eftir hraða og til að auðveldara sé að fara inn í og út úr bílnum. Rétt líkamsstaða var sem sé höfð í fyrirrúmi við hönnunina og mikið lagt upp úr því að aðstaða ökumanns sé með besta móti. Ökumannsrýmið og lögun sætisins eru hönnuð til að falla eins og flís við rass, svo ökumaðurinn geti einbeitt sér að akstrinum og eiginleikum bílsins.
MARKIÐ SETT Á EININGU ÖKUMANNS OG ÖKUTÆKIS
Aukin lipurð fæst með afturhjólum sem hægt er að snúa í gagnstæðar áttir, þannig að hægt er að snúa bílnum á hérum bil á punktinum. Framhjólin hafa sjálfstæða stýringu og nýja öxulhönnun með hola miðju.
EINING ÖKUMANNS OG ÖKUTÆKIS
Snertiskjár með þrívídd skynjar staðsetningu fingra ökumanns og birtir upplýsingar um ökutækið, staðsetningu annarra PM-bíla og önnur gögn.
Það hefur verið komist þannig að orði um þetta farartæki, að það sé „klæðilegur“ einstaklingsbíll sem setur markið á einingu ökumanns og ökutækis.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.