FRANZ GUNNARSSON SKRIFAR UM TÖL VULEIKI
Það er alltaf gaman þegar góðar leikjahugmyndir verða að frábærum tölvuleikjum því oft vill verða að framleiðendur leikja ná ekki að yfirfæra góðar hugmyndir í vöru sem sátt er um. Dead Space er leikur sem uppfyllir allar kröfur og kemur sterkur inn í jólaútgáfuna.
Leikurinn hefst á því að aðal söguhetjan vaknar á sjúkradeild í fangelsi eftir að hafa legið í dái eftir mikla sprengingu sem varð í enda fyrri leiksins. Verið er að taka umbúðirnar af söguhetjunni og hefst þá einn fídusinn í leiknum sem er að hanna útlit og hreyfingar karaktersins. Þegar því er lokið fær hann aðstoð samfanga við að brjótast út úr fangelsinu og er það einskonar æfing á stjórnun karaktersins í leiknum. Strax er hoppað í djúpu hasar laugina því þeir þurfa að skjóta sér leið í gegnum aragrúa af laganna vörðum og má segja að adrenalínið hefjist strax og hættir ekki fyrr en leiknum er lokið.
Leikurinn gerist í stórborginni Stillwater og þarf aðal söguhetjan að berjast til vegs og virðingar og ná 3rd street Saints klíkunni saman aftur og yfirráðum í borginni sem hefur fallið í skaut óvina. Af nógu er að taka því þrjár aðrar klíkur ásamt Ultor samsteypunni bítast um völdin.
Til að sjá annað kynningarmyndband fyrir leikinn SMELLTU HÉR .
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.