LE LOUVRE
París, Frakklandiwww.louvre.fr
Á miðöldum var Louvre aðsetur konunga Frakklands og höfuðvígi. Málverkið af hinni dularfullu Mónu Lísu og styttan af Venusi frá Mílanó hafa átt stærstan þátt í að beina sjónum almennings að safninu. Þú hefur ekki fullkomnað Parísarferðina fyrr en eftir ferð upp í Eiffelturninn og skoðunarferð um Louvresafnið.
Svo verður enginn svikinn af því að skoða hið magnaða Pompidousafn í París.
SMITHSONIAN INSTITUTION
Washington, DC, Bandaríkjunum
www.si.edu/museums
Þetta er langstærsta vísinda- og listasafn heims. Listaverkaeignin telur 14 milljónir verka sem eru til sýnis í 19 söfnum og svo eru þarna 9 söfn, tengd tækni og vísindum. Auk þess á Smithsonian aðild að 140 söfnum víða um heim. Safnaþyrpingin í Washinghton er svo sannarlega eitthvað fyrir alla fjölskylduna.
HERMITAGE
St. Pétursborg, Rússlandi
www.hermitagemuseum.org
Þetta er eitthvert athyglisverðasta listasafn í heiminum, með um þrjár milljónir sýningarmuna sem spanna listasöguna allt frá steinöld til okkar daga.
Pétur mikli lét reisa safnið, Vetrarhöllina, með stórum stæl og þar var ekkert til sparað við öflun listmuna.
Heimasíðan er ein vandaðasta heimasíða listasafns í heiminum.
BRESKA LISTASAFNIÐ
London, Englandi
www.thebritishmuseum.ac. uk
Listasafn Bretlands kemst næst safninu í Kaíró í sýningu á egypskum fornminjum, með sýningargripi allt frá því 196 fyrir Krist. Menningarsagan er varðveitt þar í formi þriggja milljóna forngripa víðs vegar að úr heiminum.
EGYPSKA SAFNIÐ
Kaíró, Egyptalandi
www.egyptianmuseum.gov.eg
Öll stóru söfnin í heiminum leggja metnað sinn í að sýna eitthvað af fornminjum frá Egyptalandi. Það ætti þó ekki að koma neinum á óvart að mikilfenglegasta safnið sé að finna í Egyptalandi. Safnið í Kaíró hefur að geyma 120 þúsund fornminjar.
THE PRADO
Madrid, Spáni
www.museoprado.mcu. es
Hin konunglega spænska fjölskylda hefur verið ábyrg fyrir því að Pradosafnið eignaðist almennilega sýningarmuni í gegnum tíðina. Því hlutverki hefur fjölskyldan sinnt af ástríðuþrunginni alúð og smekkvísi í gegnum aldirnar.
LISTASAFN VATIKANSINS
Vatíkanið (Páfagarður), Róm
mv.vatican.va
Hvorki fleiri né færri en 22 aðskilin söfn heyra til the Musei Vaticani og eru þau hvert öðru stórfenglegra. Sixtínsku kapelluna lætur vitaskuld enginn fram hjá sér fara. Kapella páfans í Vatíkanhöll var byggð 1473-81 fyrir Sixtus 4. páfa og var sjálfur Michelangelo fenginn síðar til að mála freskurnar í loftinu.
METRPOLITAN-LISTASAFNIÐ
New York, Bandaríkjunum
www.metmuseum.org
Hér er um að ræða eitt merkasta og stærsta listasafn heims. Safnið á um 142 milljónir sýningarmuna frá öllum menningarskeiðum mannkynssögunnar.
UFFIZI-SAFNIÐ
Flórens, Ítalíu
www.polomuseale.firenze.it
Uffizisafnið er eitt auðugasta listasafn heims með mikið úrval grísk-rómverskrar höggmyndalistar og evrópskrar málaralistar frá tímabilinu 1300-1800. Af frægum verkum má nefna Fæðingu Venusar og Vorið eftir S. Botticelli, Heilaga fjölskyldu eftir Michelangelo og Lotningu vitringanna eftir Leonardo da Vinci.
Safnið er í glæsilegri byggingu sem reist var á árunum 1560-74.
RÍKISLISTASAFNIÐ
Amsterdam, Hollandi
www.rijksmuseum.nl
Nærri ein milljón aðdáunarverðra listaverka eru í eigu Rijksmuseum, stærsta safns sögu og myndlistar í Hollandi.
Það er frægast fyrir stórkostlegt safn málverka hollenskra listamanna á 17. öld. Jafnframt er þar líka einkar áhugavert safn listmuna frá miðöldum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.