Franz Gunnarsson skrifar
Tölvuleikir sem gerðir eru eftir kvik myndum eru oftast nær taldir lélegir og til eins að græða pening. Því var ég með efasemdir þegar ég fékk nýja bond leikinn í hendurnar en flokkast undir bíómyndaleik eins og gefur að skilja.
Leikurinn er í grunninn fyrstu persónu skotleikur og kom það mér nokkuð á óvart. Leikurinn er gerður eftir Call Of Duty 4 vélinni og fá framleiðendur plús í kladdann með þeirri útfærslu. Bond fylgir söguþræði myndarinnar ásamt þeirri síðustu og fá því leikmenn að upplifa sömu hasaratriðin og eru í myndunum. Þar sem myndin er ekki komin í kvikmyndahús á íslandi var ég frekar ráðvilltur í sögunni sem er keyrð áfram af samtölum MI6 aðila á milli verkefna og ákvað því bara að fókusa á verkefnin sjálf.
FJARSTÝRINGIN OG FJANDMENNIRNIR
Í fyrstu varð ég heillaður af leiknum því hann er ágætlega útfærður sem skotleikur. Stjórnun er þægileg og nýting á skjóli fyrir Bond í skotbardögum virkar vel og í raun nauðsynlegt að skýla hann ef 007 á að lifa af.
Óvinir Bond eru sniðugir en alls ekki snjallir í aðferðum sínum í að murka lífið úr hetju hennar hátignar. Þeir reyna að umkringja 007 og hrópa á vini sína þegar þeir falla í valinn eða þegar þeir vita hvar Bond er niðurkominn. Þeir færa sig í skjól þegar skotið er á þá en oft á tíðum eru þeir of auðveld skotmörk. Það tekur ekki langan tíma að læra inn á aðferðir og hreyfingar óvina sem gerir skotbardaga að síendurteknum aðgerðum.
Ef Bond kemst í návígi við óvin getur hann gert hann óvígan með fantabrögðum en sú útfærsla reynir á spilarann að ýta á einn takka á fjarstýringunni um leið og taki er náð á óþokkanum. Þetta eru fjögur brögð sem hann kann en það er alltaf gaman að gera þau. Þessi tækni er svo nýtt til hins ýtrasta þegar 007 berst við sterka og stæðilega andstæðinga.
BROTIST INN Í TÖLVUKERFI OG GLÍMT VIÐ JAFNVÆGIÐ
Til þess að undirstrika spæjarann þarf Bond endrum og eins að brjótast inn í tölvukerfi og þarf spilarinn einnig að ýta á réttu takkana á fjarstýringunni í samræmi við það sem er að gerast á skjánum. Þetta gerir ekki mikið fyrir leikinn og er í raun hálf asnalegt.
Það eru fleiri svona takkaútfærslur í leiknum þegar Bond er að elta óþokka því þá þarf hann að ýta á hopp takkann í tíma svo hann missi ekki af skotmarki sínu. Einnig þarf hann að halda jafnvægi þegar hann gengur yfir spýtur á milli háhýsi eða á t.d. byggingarkrönum.
FLOTT GRAFÍK
Umhverfi leiksins er ágætlega hannað þó svo hann er mjög lokaður. Aðeins ein leið er í gegnum leikinn og gerir það að verkum að spilarinn þarf ekkert að skoða sig um og er það miður. Það eru margir hlutir viðkvæmir skotum í leiknum og er því hægt að skjóta þá svo þeir springi í loft upp eða gefa frá sér raflost eða gas. Það er fínt fyrir Bond sem getur notað þessa hluti sér í hag í skotbardögum.
Leikurinn er flottur grafíklega séð og hljóðsetning er fín með leikurum úr myndinni sem gefur henni aukið vægi. Ekki skemmir svo að Bond tónlistin er nýtt til hins ýtrasta.
FÁRÁNLEGA STUTTUR LEIKUR
Quantum Of Solance er alveg fáránlega stuttur leikur sem ýtir undir það að pressa var á framleiðendum til að koma honum út samhliða myndinni. Sem betur fer geta 12 spilarar barist á netinu sem eykur lífadaga leiksins eitthvað. Þessi titill er ágætis skotleikur en ekki meira en það. Ég bjóst svosem ekki við miklu en það var gaman að spila hann á meðan hann entist en mun líklegast gleymast fljótt.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.