Til að senda Gillzenegger póst smellir þú HÉR
ERU BARA NÚNA MEÐ ALLT LÁRÉTT
Heyrðu Störe. Svoldið magnað, bankamaðurinn minn, sem ég er búinn að hafa síðustu ár. Já, í mjög langan tíma, þvílíkur töffari, viðskiptafræðingur og allur pakkinn. Heldurðu að hann sé ekki bara farinn að vinna í lúgunni á McDonalds! Ég man bara eftir honum á síðasta ári á neðri hæðinni á B5 með 4 flöskur að bjóða öllum kellingunum drykk en núna var hann bara með derhúfu eins og gómur á McDonalds.
Kv, Nonni.
Sv: Sæll Nonni minn. Já staðan er bara þannig núna að gæjarnir sem voru the shit undanfarin ár eru bara með allt lóðrétt. Ég á marga félaga sem eru fasteignasalar, það er svipað dæmi með þá og bankagæjana. Þeir eru búnir að missa Range Roverinn, komnir á Golf, flati skjárinn farinn og komnir með túpusjónvarp. Síðan er erlent lán á öllu þannig þeir eru með allt lóðrétt. Og einhversstaðar þurfa þeir að fá money þannig að McDonalds er ekkert vitlaust.
En þú sérð ekki mikið af bankagæjum og fasteignasölum í hvíta herberginu á B5 lengur.
BLOKKAÐI HELVÍTIS SPEGILINN
Blessaður Gillzi. Ég var í ræktinni um daginn og það var alltaf eitthvað DICKWAD fyrir mér þegar ég sat í preacher bekknum að krulla byssurnar! Hann blokkaði helvítis spegilinn!!!
Hvað á maður að gera í svoleiðis stöðu? Ég datt úr stuði því í staðinn fyrir að sjá byssurnar á mér þá sá ég bara þennan feita ógeðslega gæja!! Endaði með að ég fór heim bara!!
Kv, Siggi Brjálaði
Sv: Já sæll Siggi. Já ég veit hversu hrikalega pirrandi þetta er! Mín skoðun er sú að það eigi að vera STRANGLEGA bannað að blokka spegilmyndina hjá öðrum karlmanni þegar hann er að taka á því í gymminu. En vandamálið er bara að þú hefur ekki virðingu í gymminu þínu. Þetta gerist aldrei fyrir mig í Sporthúsinu því að ég er í ákveðnu crewi þar sem heitir Fit4Life og menn vita að þeir eiga ekki að vera að skottast í kringum okkur meðan við tökum á því!
Þú verður að „establish a hardcore gym image“ eins og það er talað um í þjálffræðinni. Næst þegar einhver blokkar spegilmyndina þina, girtu þá niðrum hann eða öskraðu á hann eins hátt og þú getur „DRULLASTU Í BURTU!!!“ Það ætti að verða til þess að allir í gymminu haldi að þú sért geðveikur og þá lendirðu ekki í þessu aftur.
ÆFINGIN EIN SKAPAR EKKI MEISTARANN
Blessaður Gilli. Ég þarf að missa fitu, er búinn að reyna og reyna en það gerist ekki neitt. Mataræðið er bara búið að vera mjög gott hjá mér undanfarið og æfingar líka, samt gerist ekki neitt. Hvað á ég að gera?
Kv, Þórður.
Sv: Blessaður Þórður. Þetta er í raun ekkert mjög flókið. Ef að það er ekkert að gerast þá er mataræðið ekki nógu gott. Þú getur æft þrisvar á dag en ef að mataræðið er í rugli þá gerist ekki neitt! Borðaðu próteinríkan mat, 2-3 tíma fresti yfir daginn, mátt borða meira af kolvetnum fyrri part dags og passa þau á kvöldin. Einnig grimmur í ávöxtum og grænmeti. Þú verður að lyfta líka með. Það gerist ekki rassgat ef þú ætlar að brenna bara.
KYNSLÓÐABILIÐ
Den Störe. Ég er að vinna í stóru fyrirtæki og ég er með marga starfsmenn á msn. Ég þekki samt ekkert alla vinnufélagana á msn-inu. En það er ein eldri kona sem vinnur með mér í fyrirtækinu sem bætti sér inn hjá mér um daginn. Eg var ekkert að æsa mig yfir því en eina sem hun talar um núna er hvað hún vill að ég limi hana í gang og hvað henni langar að narta í eyrnarsnepilinn minn í vinnunni og láta mig hamra sig siðan inn á salerni. Ég meina hún er fimmtug og feit og ég er bara flottur 28 ára gamall náungi sem stundar ræktina.
Hvað er málið, er ég eitthvað ógeðslegur eða ...?
Kv, Kristinn Sigurjónsson
Sv: Blessaður Kristinn. Hummm já ætli þú sért ekki bara ógeðslegur.
VILTU FJÖLGA SLYSUM, EÐA HVAÐ?
Sæll Störe. Ég er nú ekki beint með spurningu heldur kvörtun. Ég var að keyra um daginn og þar sá ég þig aftan á strætó helköttaðann og með mjög sexy svip að auglýsa fjarþjálfun.is. Ég natturulega byrjaði að rífa í hana þarna á miðjum veginum og endaði siðan á að keyra aftan á einhvern jeppa. Þetta kostar mig svona 250 þúsund krónur og það er ekki eitthvað sem ég þurfti í kreppunni. Spurning hvort þú getir sleppt því að setja svona sexy myndir af þer á strætó, viltu að slysum fjölgi eða!!!
Kv, Þórunn pirraða
Sv: Sæl Þórunn mín. Ég biðst bara afsökunar á þessu. Ég hugsaði ekki út í þetta þegar ég ákvað að taka þennan strætó. En ef að umferðarslysum fer að fjölga eitthvað verulega þá skal ég íhuga að taka auglýsinguna af.
Kv, Störe
VÖRUSVIK ...?
Hæ Stúre.
Heyrðu ég kynntist stelpu á netinu og hún leit bara mjög vel út og ég var þvílíkt spenntur. En síðan mætti hún heim til mín og var miklu þéttari en hún leit út á myndunum.
Eg ætlaði bara að horfa á vídjó með henni en ég var helfokking graður og endaði á að njóta ásta með henni. Og nuna er hún orðin ástfangin af mér! Ég hef engan áhuga á því að vera með þessari feitu konu. Ætti ekki að vera bannað að senda myndir af sér á netinu þar sem maður virkar 15-20 kílóum léttari en maður er?
Sv:
Gemli gemli, þetta skrifast bara alfarið á þig! Ef að kelling er bara að sýna þér andlits- myndir eða myndir sem hun er með á face- bookinu sínu þá er ekkert að marka það. Farðu á myspace og facebookið hjá VINKON- UM hennar. Þar getur hun ekki stjórnað hvaða myndir fara inn og þá sérðu nákvæmlega hvað er að frétta.
Það sem er líka sniðugt er að ákveða að hitta hana einhversstaðar, eins og t.d. á bensínstöð eða sjoppu. Þu keyrir siðan þangað og hringir í hana fyrir utan. Þú athugar hver svarar í símann, hringdu úr leyninúmeri. Ef að þér lýst ekki á kvenmanninn sem svarar þá gólfarðu bílinn í burtu. Sendir henni síðan sms og segir að þú hafir þurft að aðstoða móðir þína.
Kv, Störe
VIL GRENNA MIG
Hæ ég er 29 ára stelpa, á ég að taka kreatín? Langar að grenna mig.
Sv:
Já sæl. Kreatín er að sjálfsögðu ekki fitubrennsluefni. En kreatín hjálpar til við uppbyggingu og styrktarþjálfunina. Ef að þú bætir á þig vöðvum þá hækkar hvíldarbrennslan og þá verður auðveldara fyrir þig að losna við fituna.
En ef að þú ert venjuleg stelpa sem hefur ekki mikið verið í lyftingum um ævina, slepptu kreatíninu til að byrja með. Taktu æfingarnar og mataræðið í gegn.
Kv, Störe
TILBÚINN?
Störe. Ég er búinn að lyfta núna í sirka ár. Ég er 67 kíló og einhver 12 % fita. Má ég lyfta í hlýrabol?
Sv:
Nei.
Kv, Störe
FOKKING EKKERT AÐ GERAST!
Blessar Störe. Heyrðu ég er 18 strákur og búinn að lyfta straight í hálft ár og mér finnst ekkert vera að fokking gerast maður!! Má ég ekki bara að fara á stera eða eitthvað?
Kv, Einn óþolinmóður
Sv:
Já sæll óþolinmóður. Hálft ár er ekki rassgat. Þú ert nýbyrjaður að lyfta og ætlarðu að fara að stera þig í gang. Nei ég get alls ekki mælt með því. Í fyrsta lagi værirðu að henda peningunum þínum út um gluggann því að þú ert 18 ára og testósterón framleiðslan í hámarki. Á þessum aldri þarf maður að horfa á lóð og massast upp.
Ég man eftir gömlum kunningja mínum sem steraði sig þegar hann var 18 ára gamall. Ég fór með honum í hádegismat einn daginn og það er dagur sem ég gleymi aldrei. Afgreiðslustúlkan átti í einhverjum erfiðleikum með að taka niður pöntunina hans, líklegast nýbyrjuð að vinna þarna. Áður en ég vissi af var hann búinn að rífa hana yfir afgreiðsluborðið, og byrjaður að skúra gólfið með henni á staðnum.
Nokkrum dögum seinna fékk hann stöðumælasekt niður í bæ og sektin endaði inn í rassinum á greyið stöðumælaverðinum.
Það er ekkert sem virkar betur en grjótharðar æfingar og gott mataræði. Korkaðu sterana dreng.
Kv, Störe
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.