Smelltu á fyrirsögnina til að lesa allt um keppnina. Á myndinni er formaður dómnefndar, Berglind Ólafsdóttir, sem á miðnætti tilkynnir úrslit Samkeppninnar. Þá verða einnig tilkynnt úrslit í Like-keppni sem stendur yfir á Superman.is. Stúlkurnar í Sam- keppninni koma fram þrisvar um kvöldið undir handleiðslu Haffa Haff, sem einnig tekur lagið og kynnir skemmtiatriði í samvinnu við stjörnur útvarpsstöðvarinnar Flass 104,5, sem munu koma sér fyrir með útsendingarstúdíó á sviðinu. Kvöld sem þú gleymir aldrei. Mættu bara nógu snemma til að missa ekki af neinu!
Miðaverð aðeins kr. 1.500. Mojito eða annar VK-eðaldrykkur innifalinn í verði. Splæstu þúsund kalli í viðbót og fáðu lostafullan sixtís hamborgara með sósu, frönskum og salati. Síminn á Broadway er 5 33 1100.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.