Til að vega upp á móti allri væmninni sem við heyrðum um þessa Valentínusar-helgi ákvað Samúel að tína til nokkra góða brandara sem flokkast engan veginn undir væmni.
Góð eiginkona fyrirgefur ætíð eiginmanni sínum þegar hún hefur haft rangt fyrir sér. (Milton Berle)
Við giftum okkur hjá dómara. Ég hefði líklega átt að óska eftir úrskurði kviðdóms! (George Burns)
Leyndardómurinn að baki hamingjusömu hjónabandi virðist vera helv… vel varðveitt. (Henny Youngman, uppistandari)
Farðu aldrei reiður í rúmið. Stattu í lappirnar og haltu áfram að berjast fyrir máli þínu. (Phyllis Diller)
Ég keypti nýjan bíl handa eiginkonunni. Hún hringdi og sagði að það væri vatn í karbratornum. Og hvar er bíllinn, spurði ég? Í tjörninni, svaraði hún. (Henny Youngman)
Áhrifaríkasta leiðin til að fá karlmann til að koma einhverju í verk er að gefa í skyn að hann sé trúlega orðinn of gamall til þess. (Ann Bancroft)
Veistu hvað ég gerði áður en ég kvæntist? Allt sem mig langaði til. (Henny Youngman)
Hér eru svo nokkrir sem Samúel hefur eftir óáreiðanlegum heimildum:
Ég var algjört fífl þegar ég giftist þér, segir konan eftir rifrildi.
Já, elskan, en ég var svo ástfanginn að ég tók ekki eftir því.
Þegar maður stelur frá þér konunni er besta hefndin fólgin í því að láta hann halda henni.
Ég hef ekki yrt á konuna mína í 18 mánuði. Ég vil ekki grípa frammí fyrir henni.
Nei, elskan, mér er ekkert illa við fólkið þitt. Mér líkar t.d. mikið betur við tengdamóðir þína en tengdamóður mína.
Kunningi Samúels segist hafa auglýst eftir eiginkonu á Einkamál.is. Það stóð ekki á svörum. Strax á öðrum degi var hann búinn að fá yfir hundrað svör sem öll voru á sömu leið: Þú mátt eiga mína!
Hvernig skilgreina flestir eiginmenn hjónaband? Sem mjög dýra leið til að fá þvottinn sinn þveginn ókeypis.
Maður nokkur sagði frá því að kreditkortinu hans hafi verið stolið. Honum var eiginlega bara létt. Þjófurinn var ekki eins eyðslusamur og eiginkonan.
Besta leiðin til að muna alltaf eftir afmælisdegi konunnar er að gleyma honum einu sinni.
Þessa illkvitni heyrði konan mín í saumaklúbbnum og í kaffistofunni:
Eiginkonan kom askvaðandi heim úr vinnunni og sagði óðamála við eiginmanninn: - Pakkaðu niður í hvelli. Ég vann þann stóra í lottóinu!
- Og á ég að pakka niður hlýjum fötum eða fötum fyrir sólarströnd?
- Pakkaðu þeim öllum, væni, þú ert alfarinn!
Vinkonurnar tóku eftir því að ein í hópnum var komin með þennan líka svaka demantshring.
– Vá, svaka hringur! sögðu þær í kór.
– Já, hann er voða flottur og svakalega dýr. En það hvílir á honum bölvun. Það fylgir honum eiginmaður.
Þegar karlmaður opnar bíl fyrir kvenmann getur þú verið viss um að annað hvort er bíllinn nýr eða þá konan.
Fyrir hjónabandið liggur maðurinn andvaka alla nóttina, pælandi í því sem þú hafðir verið að segja. Eftir að þið eruð gift steinsofnar hann áður en þú hefur lokið máli þínu.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.