Efnahagskreppan dró skyndilega athyglina frá langvinnum vandræðagangi í Ráðhúsi höfuðborgarinnar og tíðum borgarstjóraskiptum.
En ein er þó sú hugmynd sem síðan hefur ekki horfið úr huga Samúels, hún er sú að tína brjóstmyndirnar af borgarstjórunum ofan af veggjunum og koma þeim á stöpla í sýningarsalnum á fyrstu hæð. Þeim hefur snarfjölgað á skömmum tíma. Fimm borgarstjórar á jafn mörgum árum er töluvert og enn ganga margir núverandi borgarfulltrúa vafalaust með borgarstjóra í maganum. Ef fram fer sem horfir stefnir í að við getum dregið að fjölda túrista til að skoða þennan einstæða minnisvarða í lýðræðisríkinu.
Margir vildu eflaust láta mynda sig við hlið borgarstjórans sem síðar varð Seðlabankastjóri og rústaði efnahagslífi heimsins.
Til að menn átti sig betur á hversu tilkomumikið safnið gæti fljótlega orðið birtir Samúel hér mynd af leirher fyrsta kínverska keisarans Chin Shiuang Di. Leirherinn hafði hann með sér í gröfina um 200 árum fyrir Krist og kom þessi merkilegi her í leitirnar fyrir algjöra tilviljun árið 1974 þegar nokkrir bændur voru að reyna að bora eftir vatni.
Hugmyndinni er hér með komið á framfæri við rétta aðila.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.