Tony Bennett var í sérstöku uppáhaldi hjá Amy Winehouse, sem fór á tvenna tónleika með honum þegar hann heimsótti London í byrjun ársins. Hún tók því líka fegins hendi að fá að taka með honum dúett fyrir næstu plötu hans. Hún óttaðist að þetta væri síðasta tækifærið til að sjá þennan aldraða mann. Nú hefur hún sjálf verið jarðsett en hann er að halda upp á 85 ára afmæli sitt í dag. Smelltu á fyirsögnina.
Samúel safnaði saman tenglum inn á djass í flutningi nokkurra af stórmeisturum djassins. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á almennilegan djass.
Vinsældalistar ársins 1969, árs- ins sem Samúel hóf göngu sína, eru afar merkilegir. Þá mátti t.d. sjá svo ólíka tónlistarmenn sem Presley og Zeppelin samtímis á lista. Samúel rifjar upp þrjátíu vinsælustu lög þessa merkisárs. Þú smellir á nafn lagsins sem þú vilt sjá og heyra og lest helstu upplýsingar um það í leiðinni.
Efnisyfirlit yfir ýmislegt forvitnilegt sem gæti hafa farið framhjá þér á Samúel.is.
Það eru liðin rúm 20 ár frá því Samúel keypti útgáfuréttinn á tímaritinu Bleikt & Blátt. Efni úr tímaritinu mun fljótlega rata á síður Samúels.is. Smelltu á fyrir- sögnina til að lesa meira.
Smelltu á fyrirsögnina og söktu þér niður í síðu um Dean Martin. Sjáðu frábæra innkomu hans í sjónvarpsþátt Johnny Carson 1969, (árið sem Samúel hóf göngu sína). Hlustaðu líka á 100 af hans eftirminnilegustu lögum.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvað kínverska stjörnuspekin segir um merkið þitt og hvað nýja árið beri í skauti sér.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu brot úr sjónvarpsviðtali þar sem Keith Richard ræðir um fíkniefni og það hve auðvelt er að falla, en erfitt að rífa sig upp á ný.
Hér má sjá Stellu Kristinsdóttur sem prýddi forsíðu Samúels þegar hann fagnaði 10 ára afmæli árið 1979. Samúel sendi Stellu í myndatöku á ný. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá meira.
Umræðan um þóðaratkvæða- greiðslu hefur orðið síifellt há- værari hér á landi. Jón Björg- vinsson hefur búið í Sviss í yfir 20 ár, en hvergi í heiminum eru almennar atkvæðagreiðslur algengari. Skrif Jóns koma áreiðanlega mörgum á óvart. Fróðlegur og bráðskemmtilegur lestur. Smelltu á fyrirsögnina.
SAMMÚEL hefur safnað saman lögum með 20 bestu flytjendun- um á Woodstock 1969. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu m.a. á Arlo Guthrie, Ten Years After, Greatful Dead, CCR, Joan Baze, Crosby, Stills og Nash, Santana, Hendrix, Santana, The Who og Blood, Sweat and Tears.
Af fallegustu afmælisbörnum dagsins kemst Alda Jónasdóttir næst því að fella Kelly Morgan úr fyrsta sæti. Alda var á meðal þátttakenada í Samkeppni Samúels í vetur. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndir fimm ljósmyndara af Öldu á Pressunni.
Hver stórstjarnan tekur við af annarri í stórkostlegu grínatriði sem áhorfendur Jimmy Kimmel fengu að sjá á ABC fyrir stuttu. Þar er sýnt frá fundi í Klúbbi myndarlegra karlmanna þar sem vegið er og metið hverjir séu nógu flottir til að eiga rétt á aðild í klúbbnum. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá allt atriðið þér til mikillar ánægju.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá myndir frá tíu sérkennilegustu söfnum heims. Þeirra á meðal er Reðursafnið á Húsavík.
Sjáðu listann yfir svakalegustu eiturlyfjabaróna heims. Noriega, García, Guzman og Escobar og þeir kumpánar veltu milljörðum. Útrásarvíkingarnir okkar komust ekki í hálfkvist við þá nema ef til vill í glæsilifnaði.
Prófaðu léttvín frá Luxembourg um helgina og njóttu við valið leiðbeininga hjóna sem fóru í vínsmökkunarferð til Lux í vetur. Smelltu á fyrirsögnina.
Leikarinn Morgan Freeman var að fá heiðursverðlaun fyrir aðdáunarvert framlag til kvik- myndalistarinnar. Smelltu á fyrirsögnina.
Þú færð bók Guðmundar Sigur- freys um Spádóma Nostradam- usar í öllum 17 bókaverslunum Eymundssonar. Þetta er 240 síðna bók, sem kom fyrst út á níunda áratugnum. Hún seldist upp í þrígang og hefur síðan verið ófáanleg. Hér er hún komin í endurbættri útgáfu. Þegar svo ófriðlega horfir í heimsmálum, sem raun ber vitni, vekur það hroll að lesa það sem Nostra- damus skrifar um okkar nánustu framtíð með tilliti til þess að hann spáði nákvæmlega fyrir um heimsstyrjaldirnar og einnig efnahgshrunið. Er þriðja heims- styrjöldin yfirvofandi? Náðu þér í eintak í Eymundsson eða smelltu á fyrirsögnina og pantaðu eintak á sértilboði Samúels.
Nýr diskur með Begga Smára í Mood er kominn í sölu. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra lagið No Sense.
Ítalska kynbomban Monica Bellucci varð 43 ára 30. sept. Hún var því að læra að ganga þegar Samúel hóf göngu sína 1969. Smelltu á fyrirsögnina.
Ástralska söngkonan Olivia-Newton John er orðin 63 ára en hún var þrítug þegar hún lék á mót Travolta í kvikmyndinni Grease. Hún kemur enn fram og syngur víða um heim. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu leiðbeiningar tímaritsins Esquire varðandi rakstur.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndasyrpur sem sýna Emmu Lovísu líkamsfarðaða og hins vegar syrpu af Emmu teknar af fimm ljósmyndurum.
Silvio Berlusconi varð 75 ára í síðustu viku. Samúel efast um að karlinn hafi látið það eftir sér að sletta jafn ærlega úr klaufunum og á meðan hann taldi öllu vera óhætt í þeim efnum. Smelltu á fyrirsögnina.
Linda Eastman giftist Paul McCartney 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Hún fæddist fyrir 70 árum og lést árið 1998. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á Paul syngja um síðhærðu dömuna sína.
Leikarinn Wesley Snipes, sem þénaði ríflega 400 milljónir króna í kringum aldamótin, hóf þriggja ára afplánun í steininum um áramótin vegna vangoldinna skatta. Bankareikningarnir voru tæmdir og leikarinn vinsæli segir að fjölskyldan hans hafi ekki til hnífs eða skeiðar. Smelltu á fyrirsögnina.
Jeremy Irons er orðinn 63 ára. Hann hefur hlotið og öll helstu kvikmyndaverðlaunin, er vellauðugur og býr í kastala á Írlandi. Meðan á tökum stóð á sjónvarpsmyndaflokknum The Borgais í Búdapest í fyrra fór hann allra sinna ferða á öflugu BMW mótorhjóli. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina til að komast í snertingu við tengil inn á 100 laga syrpu með kanadíska djassistanum Oscari Peterson sem hefði orðið 86 ára 15. ágúst.
Fullvíst má telja að ef þessar tvær fara með aðalhlutverkin í laufléttri stelpumynd muni ekki skorta aðsóknina. Natalie Portman gengur með hugmynd að slíkri mynd í maganum - auk síns fyrsta barns. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira.
Hitchcock, Fidel Castro og erfingi Pálma i Hagkaup eru á meðal þeirra sem fæddir eru 13. ágúst.
Hvíldu þig á dægurlögunum og leggðu eyrun eftir klassík eins og hún gerist best. Smelltu á fyrirsögnina, stilltu hátalarana í botn og hlýddu á flottan kafla úr Carmen í boði Samúels. Hér er Sinfóníuhljómsveit Bostan í essinu sínu undir stjórn James Levin.
Þeir George Michael og Elton John endurnýjuðu vinskapinn nýverið eftir að Michael hafði verið upp á kant við Elton. Þeir hyggja nú á dúett. Smelltu á fyrirsögnina.
Ronnie James Dio söng mest með Black Sabbath. Dio þótti hafa kröftugustu röddina í þungarokkinu. Hann lést í fyrra af völdum magakrabba, 67 ára að aldri. Hlýddu á viðtal við hann og 100 lög með Black Sabbath.
Hann gaf sjálfur út sinn fyrsta disk og lét pressa hann í 500 eintökum. Í dag, ellefu árum síðar, er eintakið af þeirri frumútgáfu selt á e-Bay fyrir jafnvirði 112 þúsunds íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um söngvarann og heyra í honum.
Hér má sjá hvaða stakkaskiptum bandaríska leikkonan Rooney Mara tekur þegar hún bregður sér í hlutverk Lisbeth Salander fyrir kvikmyndina The Girl With the Dragon Tatto, sem gerð er eftir bókinni Karlar sem hata konur. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fyrsta úrdráttinn sem kemur fyrir sjónir almennings. Myndin verður ekki frumsýnd fyrr en um jól.
Lesendur vefsíðunnar ASK MEN hafa kveðið upp dóm. Komin eru úrslit í vali þeirra á 99 fegurstu konum heims 2011. Gossip leikkonan Blake Lively, sem situr í fyrsta sæti, sat í 85. sæti í fyrra. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu Bob Dylan taka sitt besta lag, að mati álisgjafa tímaritsins Rolling Stone, á Stones hljómleikum. Þú getur líka séð tvær 90 mínútna heimildarmyndir um Dylan.
Jagger hefur staðfest að hann hafi æft leynilega í hálft annað ár með nýrri súpergrúppu. Smelltu á fyrirsögnina tll að lesa meira og heyra lag með Jagger af síðustu sólóplötu hans.
Aretha Franklin sendi í síðustu viku loksins frá sér nýjan disk, en liðin eru 13 ár síðan hún gaf út nýtt efni. Sjáðu hana flytja eitt nýju laganna í sjónvarpsþætti.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hvort þú hafir séð allar 10 bestu rómantísku gamanmyndirnar.
Samúel kemur þér í snertingu við tengil með niðurstöðum vinsældakosningar lesenda vefsíðunnar TripAdvisor sem er með lesendur af báðum kynjum og á öllum aldri. Sjáðu vinsældalista síðunnar yfir 25 áhugaverðustu borgirnar að þeirra mati. París er þar efst á blaði. Samúel tekur heilshugar undir með þeim sem skipa borginni í fyrsta sæti. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá listann og fínar upplýsingar um borgirnar.
Er þriðja heimsstyrjöldin yfirvofandi? Óveðursskýin hrannast upp og horfur eru uggvænlegar í alþjóðamálum þegar þjóðir ógna hver annarri. Allt er á öðrum endanum í Arabalöndum og erfitt að sjá hvort þar komist á lýðræði eða hvort öfgafullum öflum muni takast að nota glundroðann til að koma ár sinni fyrir borð. Nosatradamus, sem spáði m.a. nákvæmlega fyrir um nasismann og heimsstyrjöldina og nefndi Hitler með nafni, spáði á miðri 16. öld fyrir um þá atburði sem bíða okkar ef við erum ekki á varðbergi gagnvart ófriðarseggjum. Meðal þess sem lesa má í bókinni eru fyrirsagnir eins og þessar: Íranir ráðast inn í Sviss, múslímar leggja Ítalíu í rúst, páfinn myrtur, Íslendingar afla hermönnum matvæla, her Kína ræðst inn í Tyrkland, íslenskur heimsleiðtogi, kafbátaárás á Natóríki, yfirstjórn Bretlands í höndum Bandaríkjamanna, hungursneyð og dauði. Í bókarlok er umtalaður kafli sem fjallar sérstaklega um alla spádómana um Ísland. Þessi óviðjafnanlega bók Guðmundar Sigurfreys var prentuð þrisvar á níunda áratugnum en hefur verið ófáanleg í 20 ár. Smelltu á fyrirsögnina til að fá hana á hálfvirði.
Þær voru tólf sem tóku þátt í Samkeppni Samúels 2010. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá myndir af þeim og lesa svör þeirra við misjafnlega ágengum spurningum.
Söngkonan stórkostlega Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Houston var ein vinsælasta söngkona Bandaríkjanna á níunda áratugnum og fram á þann tíunda og ruddi leiðina fyrir margar söngkonur sem á eftir komu, sérstaklega á sviði R&B tónlistar. Þá var hún margfaldur Emmy, Grammy og Billboard verðlaunahafi.Whitney Houston seldi yfir 170 milljónir platna, smáskífa og myndbanda. Þeim miklu tekjum sem hún hafði fengið á tónlistarferlinum hafði hún nær eytt öllum og var á barmi gjaldþrots. Hún átti lengi við vímuefnavanda að stríða og fór síðast í meðferð í fyrra. Whitney lætur eftir sig eina dóttur, Bobbi Kristina, sem hún átti með fyrrverandi eiginmanni sínum, Bobby Brown. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá vídeó með söngkonunni og lesa um það þegar Samúel afþakkaði það tilboð að Whitney Houston kæmi til Íslands til að veita Samúel viðtal og jafnvel koma fram á hljómleikum sem Samúel héldi.
Skoðanakönnun sem hin vnsæla ferðamálasíða TripAdvice gerði á meðal lesenda sinna leiddi í ljós hvaða áfangastaðir í heiminum þeim þættu mest spennandi á þessu sumri. Smelltu á fyrirsögnina og láttu þig í það minnsta dreyma ...
Fyrstu plötu ofurhljómsveitarinnar SuperHeavy hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu og nú er biðin loks á enda. Í SuperHeavy er samankomið flott tónlistarfólk með ólíkan bakgrunn í tónlist. Þar er að sjálfsögðu mest áberandi rokkarinn Mick Jagger. Honum hefur vafalaust verið farið að finnast ástæða til að breyta til eftir að hafa starfað með Rolling Stones í næstum hálfa öld. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra lag með hljómsveitinni.
Þessar nýtískulegu byggingar eru að rísa hver af annari í Dubali. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu 93 viðlíka framúrstefnulegar byggingar. Nýja Tónlistarhúsið okkar við Reykjavíkurhöfn virðist ósköp pent í samanburð við margar þeirra bygginga sem myndasyrpan sýnir.
Móeiður Sif Skúladóttir bar sigur úr bítum í Samkeppni Samúels 2010 og hlaut að launum verðlaun sem eru samtals að verðmæti um tvær milljónr króna, sem eru fólgin í ítölskum leðurstól frá CASA, afnot af þessari iQ bifreið frá Toyota og módelmyndatöku erlendis á næsta ári. Hér má sjá Móeiði Sif komna á Toyotuna vandlega merkta keppninni af fyrirtækinu G3. Móa er í jakkanum frá Pelsinum sem hún sýndi á lokahófi Samkeppninnar á Broadway. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá fleiri myndir af Móu og svör hennar við spurningum Samúels. Mynd: ÞJM
Lítur vissulega illa út við fyrstu sýn. Tónlistarmaðurinn Mugison virðist vera hér afar illa út leikinn, limlestur og svakalegur. En það er ekki allt sem sýnist. Myndin er úr einni af frábærum myndasyrpum ljósmyndarans Jónasar Valtýssonar. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá myndasyrpur Jónasar og fleiri snjallra ljósmyndara.
Upphafsár internetsins er 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Nánar tiltekið 30. september. Internetið er því orðið 40 ára. Saga netsins er yfirleitt rakin til ársins 1962, en á því ári setti Bandaríkjamaður að nafni J.C.R Licklider saman nokkra minnispunkta, sem lýstu hugmyndum hans um heimsnet tengdra tölva, sem gerði fært að skiptast á upplýsingum, forritum og öðru tölvutæku efni tölva á milli. Þegar árið 1967 varð til hið svokalla "ARPANET", sem ætlað var til þess að senda og taka á móti efnispökkum tölva á milli, og árið 1969 höfðu fjórar móður- tövlur tengst netinu. Árið 1972 varð tölvupóstur til og forrit honum tengt, sem gat lesið, sett í skrár, sent áfram og svarað tölvupósti. Í tilefni af 40 ára afmæli netsins afsöluðu Bandaríkin sér yfirráðum yfir Ican (áður Arpanet), sem er einskonar eftirlitsstofnun netsins. Rod Beckstrom, yfirmaður Icann, sagði viðeigandi að Icann hljóti formlegt sjálfstæði á þessum degi, enda sé internetið löngu orðið alþjóðlegt.
Vefsíðan ASK MEN gerði gæðamat á borgum heims og raðar upp lista yfir þær 29 borgir sem þykja henta best piparsveinum sem vilja njóta lífsins þegar sletta skal úr klaufunum í sumarfríinu. Smelltu á fyrirsögnina.
Silja Magg hefur verið valin í hóp 30 bestu ljósmyndara sem fram hafa komið í Bandaríkjunum undanfarið að mati PDN-vefritsins, leiðandi fagtímarits á sviði atvinnuljósmyndunar. Að valinu komu tugir ljósmyndara og ljósmyndaritstjóra blaða, tímarita og vefrita í Bandarikjunum auk forstöðumanna myndasafna. Myndin hér fyrir ofan er verk Silju Magg. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá fleiri myndir eftir hana.
Þær ofurskvísur Berglind Icey og Angelina Jolie eiga það ekki bara sameiginlegt að deila sama afmælisdegi, 4. júní, heldur njóta þær aðdáunar sama stjörnu- ljósmyndarans. Sá heitir Marcel og er með ljósmyndastúdíó við Sunset Boulevard í Los Angeles þar sem hann myndir stírstjörnur í leiklist og tónlist af kappi. Meðfylgjandi myndir af Berglindi og Angelinu eru einmitt úr tökum hjá honum. Bæði áttu þau sæti í dómnefnd Samkeppninnar sem Samúel efndi til á síðasta ári. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fleiri myndir.
Hanna Rún Óladóttir, Íþróttamaður Garðabæjar 2010, hefur unnið árlega einn eða fleiri Íslandsmeistaratitil í samkvæmisdönsum síðan 1997 og eru titlarnir nú orðnir hátt í 30 talsins. Það ætti því ekki að fara á milli mála, að hún er einhver færasti dansari landsins. Hún varð 21 árs 17. júlí og það er jafn víst og að Angela Merkel er kanslari Þýskalands, að Hanna Rún er flottasta afmælisbarn sunnudagsins. Smelltu á fyrirsögnina. Mynd: SAM/ÞJM/Aurora:Kristján Logason.
Eitt þeirra áhugamála, sem Pierre Cardin hefur komið sér upp í ellinni, er að safna sögufrægum húsbyggingum í frönskum þorpum. Hann er búinn að fá nóg af tískuhönnun eftir að hafa verið afar afkastamikill í sextíu ár á því sviði. Stórveldi hans er til sölu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá hvort verðið henti þér.
Hér fyrir ofan má sjá nokkra þeirra þekktu tónlistarmanna sem fæddir eru 23. september, á fyrsta degi vogar. Smelltu á fyrirsögnina.
Brigitte Bardot varð 77 ára 28. september. Hún brást hin versta við um daginn þegar henni bárust til eyrna þær fréttir að kvikmyndaleikstjórinn Kyle Newman hefði hug á að gera kvikmynd um ævi hennar og fela eiginkonu sinni, Jaime King, aðalhlutverkið. "Það er engin kvikmyndaleikkona fær um að taka að sér það hlutverk. Þær hafa sinn eigin persónuleika en ekki minn," segir Bardot, kyntákn og ein skærasta stjarna kvikmyndanna á fimmta og sjötta áratugnum. Hún hóf kvikmyndaleik árið 1952 en hætti honum með öllu árið 1973 og helgaði sig dýravernd. Bardot er ósátt að gerð verði kvikmynd um ævi hennar. "Ég er ekki sátt við að gerð sé mynd um mig og allra síst þegar það á að gerast án samrráðs við mig og án þess að ég hafi nokkuð um það að segja hver leikur mig," sagði Bardot í viðtali á franskri útvarpsstöð. "Kvikmynd um ævi mína? En ég er ekki dauð ennþá. Ef þeir voga sér að gera það án smvinnu við mig fá þeir svo sannarlega að kenna á því." Smelltu á fyrirsögnina.
Þýska ofurfyrirsætan og kvikmyndaleikkonan Claudia Schiffer varð 41 árs i gær. Á ferlinum hefur hún prýtt meira en 500 tímaritaforsíður og jafnvel þegar hún var að því komin að eiga sitt þriðja barn í fyrrasumar var hún ljósmynduð nakin fyrir forsíðu þýsku útgáfunnar af Vogue. Börnin þrjú á hún með Matthew Vaughn framleiðanda kvikmynda, sem hún giftist sumarið 2002. Schiffer lék í fimmtán kvikmyndum á árunum 1994 til 2003, en hefur síðan að mestu helgað sig barnauppeldinu. Hún ætti líka að geta leyft sér það fjárhagslega. Eiginir hennar eru metnar á jafnvirði ríflega sex milljarða íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá afmælisdagbók Samúels.
Söngkonan, lagahöfundurinn og nú einnig fatahönnuðurinn Gwen Stefanie er jafnaldra Samúels, en hún er fædd 3. október 1969 og varð því 42 ára i fyrradag. Hún er söngkona rokkhljómsveitarinnar No Doubt . Þau hafa selt milljónir hljómplatna síðan þau skiptu úr punk-rokki yfir í nútímalegri tónlist 1995. Nú er svo komið að fatahönnun hennar hefur náð svo miklum vinsældum, að söngurinn hefur meira og minna mátt sitja á hakanum. Smelltu á fyrirsögnina.
Enski söngvarinn Sting (eða Gordon Matthew Thomas Sumner eins og hann heitir réttu nafni) varð sextugur 2. október. Í tilefni af afmælinu hefur verið safnað í afmælispakka því besta sem hann hefur látið frá sér fara á sólóferli sínum sem söngvari, en hann spannar aldarfjórðung. Afmælisútgáfan er vegleg harðkiljubók með völdum myndum frá þessum árum, textar Sting og æviágrip. Lögin eru á þremur geisladiskum og eru 40 talsins. Þau hafa öll verið endurhljóðblönduð. Þeirra á meðal eru lögin Seven Days, Englishman In New York, If You Love Somebody Set Them Free, If I Ever Lose My Faith In You og Fields Of Gold. Að auki er svo í afmælispakkanum mynddiskur með Sting í Irving Plaza Show árið 2005. Síðar í mánuðinum kemur svo út tveggja diska albúm sem hefur að geyma 31 lag með Sting. Það eru endurhljóðblanaðar hljómleikaupptökur með lögunum Message In A Bottle, Demolition Man og Heavy Cloud No Rain og áður útgefin lög í bland við hans þekktustu lög. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á eitt besta lag Sting, en það flytur hann í félagi við Eric Clapton.
Jóhanna Sig, Þorgerður Katrín, Ólöf Rún Skúladóttir, Alicia Silverstone og Playboy-fyrirsætan Christine Smith eru meðal annara á lista Samúels yfir þekktar persónur sem áttu afmæli 4. október. Smelltu á fyrirsögnina.
Svo sannarlega fjölskrúðugur listi sem finna má í afmælisdagabók Samúels yfir þá sem fæddur eru 1. október. Valið um mynd á forsíðuna af einu þeirra stóð á milli svo ólíkra persóna sem frægasta píanóleikara heims, einhvers frægasta morðkvendis glæpasögunnar, Hinriks III Englandskonungs og fleiri. Niðurstaða var sktjótfengin, Playboy-kanínan Cindy Margolis þykir flottust. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá listann yfir afmælisbörnin, sjá fleiri kanínumyndir - og rifja upp lagið um Bonnie og Clyde.
Bandaríski rapparinn Lil Wayne varð 29 ára í gær. Hann hefur hlotið Grammy fyrir tónlist sína og drjúga tugthúsvist fyrir byssueign. En hvers virði er nú líka amerískur rappari sem ekki er með tugthúsvist á ferlsskránni? Smelltu á fyirsögnina og sjáðu lista Samúels yfir afmælisbörn gærdagsins úr heimi hinna frægu og ríku. Hvað getur talist sterkari sönnun þess að Lil Wayne sé frægur en að hann hafi náð á forsíðu MAD?
Afmælisbörn gærdagsins, sem Samúel tínir til úr afmælisdagabókinni, koma úr öllum áttum. Á meðal þeirra eru töff Hollywood-leikarar, ein kynþokkafyllsta leikkona Íslands, stórskytta úr NBA og fyrrum leiðtogi Palestínumana, sem komst til valda árið sem Samúel hóf göngu sína. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá allan listann og heyra lagasyrpur með fjórum erlendum stjörnum tónlistarlífsins, en á síðunni má sjá Eirík Hauksson taka lagið með einni þeirra á rokktónleikum í Serbíu.
Leikkonan og Playboy-fyrirsætan Jaime Bergman er fallegasta afmælisbarn föstudagsins að mati Samúels. Smelltu á fyrirsögnina.
Leikkonan Catherine Zeta-Jones átti afmæli í gær og sömuleiðis eiginmaður hennar, bandaríski leikarinn Michael Douglas. Á þeim er 25 ára aldursmunur, en hann var að leika í sinni þriðju kvikmynd þegar hún fæddist. Catherine Zeta-Jones varð 42 ára í gær. Önnur þokkafull leikkona fagnaði líka 42 ára afmæli í gær ... Smelltu á fyrirsögnina.
Enginn snókerspilari hefur landað eins mörgum meistaratitlum og Norður-Írinn Steve Davis. Hann varð fyrstur til að verða milljarðamæringur með kjuðann að vopni. Sjáðu lista Samúels yfir fólk úr röðum hinna frægu sem fæddust 22. ágúst.
Kvöldið áður en Keith Moon, trommuleikari The Who, fannst látinn var hann á frumsýningu kvikmyndar í boði Bítilsins Paul McCartney. Það var kvöldið sjötta september 1978. Trommarinn hefði orðið 64 ára í dag. Smelltu á fyrirsögnina.
„Ég vildi frekar ganga um nakin en í loðfeldi", skrifar leikkonan Dominique Swain á skólatöfluna í auglýsingu fyrir dýraverndunarsamtökn Peta, sem berjast gegn loðfeldasölu. Nektin virkar ef til vill hér í áróðurskyni, en Samúel er nokkuð viss um að nakin skvísa eins og Swain mundi draga athyglina frá námsefninu væri hún að kenna í strákabekk í framhaldsskóla. Swain átti afmæli í gær. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lisa Samúels yfir afmælisbörn gærdagsins.
Art Nouveau listamaðurinn Abrey Beardsley fæddist 21. ágúst, sömuleiðis einn þekktasti sveitasöngvari samtímans, íslenskur sóknarprestur og fjölmiðlamaður, sem og nokkrar snoppufríðar Hollywood-leikkonur. Ein þeirra stormaði inn í sendiráð Íslands í Washingthon til að mótmæla hvalveiðum okkar. Smelltu á fyrirsögnina.
Samúel birtir vænan lista yfir merkisfólk sem fætt er 19. ágúst. Smelltu á fyrir- sögnina til að komast í snertingu við lagasyrpur með sjö tónlistarmönnum sem áttu afmæli í gær. Þeirra á meðal er Ian Gillian, söngvari Deep Purple, sem hér má sjá á sviði Laugardalshallarinnar 2004. LJM.: SAM/ÞJM
Hver man ekki eftir því þegar Ivan Rebroff söng lögin Bjórkjallarinn og Ef ég væri ríkur? Hann var fenginn til að koma fram á tónleikum vítt og breitt um heiminn en óskaði sérstaklega eftir því að fá tækifæri til að syngja fyrir íslenska áheyrendur. Setti hann það raunar sem skilyrði fyrir því að taka á móti blaðamanni frá Sam- útgáfunni og veita honum viðtal og leyfi til myndatöku á heimili hans í Þýskalandi fyrir Hús & Híbýli, sem Sam gaf þá út. Smelltu á fyrirsögnina og rifjaðu upp eftirminnilegustu lögin með Rebroff.
Bandarísku fyrirsætuna og leikkonuna Devon Edwenna Aoki vantar aðeins eitt ár í þrítugt. Hún var uppgötvuð 13 ára gömul og náði skjótum frama sem fyrirsæta og tískusýningarstúlka. Kvikmyndatilboðin fylgdu í kjölfarið og hefur Aoki farið með stór hlutverk í myndum eins og Sin City og 2Fast 2Furious. Smelltu á fyrirsögnina.
Á lista Samúels yfir afmælisbörn dagsins eru sex stjörnur skemmtanaiðnaðarins sem við þekkjum öll. Athyglisvert að tvær þær stærstu eiga við mjög alvarlegan vanda að etja varðandi áfengis- og eiturlyfjafíkn. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu lista Samúels yfir afmælisbörn gærdagsins úr röðum fræga fólksins. Sérlega sprækur hópur.
Á næsta ári kemur á markðinn bíll, FS-86 II, sem Toyota og Subaru hafa unnið að í sameiningu. Sá er afturhjóladrifinn og afar sportlegur í alla staði. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu lýsingu á bílnum, ljósmyndir og vídeó.
Barack Hussein Obama Bandaríkjaforseti varð fimmtugur síðastliðinn fimmtudag. Samúel veltir því fyrir sér hvernig hann hefði puntað upp á sig í tilefni dagsins hefði faðir hans haldið sig í Afríku og lagt afrískri konu tll forsetaefnið í stað bandarískri. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu lista Samúels yfr afmælisbörn föstudagsins. Myndir, fróðleikur og tenglar inn á tónlist afmælisbarna úr tónlistarheiminum.
Hún hefur hlotið Grammy, Emmy, Tony og fleiri eftirsóknarverð verðlaun fyrir leik í kvikmyndum og sjónvarpi. Snotur stelpa, Mary Louise Parker, ekki spillir það fyrir. Smelltu á fyrirsögnina.
Leikkonan Kelly Monaco úr sjónvarpsþáttunum General Hospital var að mati Samúels fallegasta afmælisbarnið 23. maí. Grammy-söngkonan Jewell er líka falleg, en það var þó söngröddin sem kom henni á lista Samúels yfir markverð afmælisbörn. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndir af Kelly og um leið getur þú séð og heyrt Jewell syngja eitt af sínum bestu lögum - og 99 til viðbótar.
Svo sem kunnugt er af fréttum sleit kærasta Hugh Hefners trúlofun þeirra aðeins viku fyrir brúðkaupið sem átti að halda með miklum glæsibrag. Svo óheppilega vildi til að búið var að prenta júlíheftið af PLAYBOY með tilvonandi eiginkonu ritstjórans á forsíðu með tilvísun á umfjöllun um „Frú Crystal Hefner". Smelltu á fyrirsögnina til að sjá myndirnar sem koma í stað brúðkaupsmynda ...
Börn leikarahjónanna Will Smith og Jada Pinkett hafa bæði leikið í kvikmyndum og auk þess aflað sér drjúgra tekna með söng og dansi. Foreldrarnir kunna að hafa átt þáttt í að sviðsljósin beindust að börnunum í upphafi, en hæfileikarnir reyndust svo sannarlega vera fyrir hendi og þau orðin eftirsótt í bransanum. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu lista Samúels yfir afmælisbörn 6. júlí. Þar eru leikarar áberandi að venju sem og tónlistarmenn. Sex tenglar inn á lagasyrpur með svo ólíkum tónlistarmönnum sem 50 Cent og Bill Haley. Svo má ekki gleyma Magga Kjartans. Hann varð sextugur.
Stórt skarð var hoggið í The E-Street Band, hljómsveitina sem hefur annast undirleikinn hjá Bruce Springsteen, þegar saxafónleikarinn Clarence Clemons féll frá fyrir nokkrum dögum, 69 ára að aldri. Hann hafði þá spilað með Springsteen í 40 ár. Smelltu á fyrirsögnina til að komast í snertingu við tengil inn á syrpu með 67 lögum Springsteens og sveitarinnar. Samúel vekur jafnframt athygli á Roy Bittan hljómborðsleikara, en hann varð 62 ára í fyrradag. Bittan hefur spilað með Bandinu síðan 1974 og gengið undir viðurnefninu Prófessorinn.
Enski söngvarinn og lagasmiðurinn Patrick Wolf er fæddur í Suður-London 30. júní 1983. Hann hefur aflað sér mikilla vinsælda fyrir tónlist sína, sem spannar allt frá rómantískri alþýðutónlist til teknó-rokks. Tuttugasta næsta mánaðar kemur út nýr diskur frá honum sem ber nafnið Lupercalia. Sýnishorn sem hefur komið fram lofar vissulega góðu. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu og heyrðu Wolf taka lagið House í fantagóðu vídeói.
John Bonham, sem lék á trommurnar með Led Zeppelin, hefði orðið 63 ára 1. júní, en áfengisneysla varð honum að bana 25. september 1980. Zeppelin höfðu þá átt gríðarlegum vnsældum að fagna í heilan áratug, en hljómsveitin var lögð niður í kjölfar dauða Bonhams. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu vídeó þar sem gamlir vinir hans og kunningjar minnast persónu hans og dauða. Sjáðu líka og heyrðu John Bonham taka Moby Dick og fleiri lög með Zeppelin þar sem trommuleikur hans fékk best notið sín.
Hratt flýgur stund, það er liðinn meira en aldarfjórðungur síðan Hófi var kjörin Ungfrú heimur og hún nálgast óðfluga fimmtugt. Svo er eins og Bubbi hafi verið að fagna fimmtugsafmælinu sínu með stórtónleikum í Höllinni í gær, en síðan er liðinn hálfur áratugur. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra 100 lög með kónginum og sjá nöfn fleiri frægra sem áttu afmæli í gær. Mynd: SAM/Magnús Hjörleifsson
Þau Cher og Joe Cocker eru bæði komin hátt í sjötugt en láta það ekki aftra sér frá stífu hljómleikahaldi. Cocker gaf út flottan disk í fyrra og Cher vinnur nú að upptöku á nýjum diski. Að þessu sinni með sveitasöngvum. Síðastliðin þrjú ár söng hún fullum hálsi kvöld eftir kvöld í Ceasers Palace í Las Vegas og lét sig ekki muna um að leika líka í kvikmyndinni Burlesque í fyrra á móti Christinu Aguilera. Smelltu á fyrirsgönina og þú kemst í snertingu við tengla inn á 100 laga syrpur með þeim Cher og Joe Cocker.
Gamli þungarokkarinn Gulli Falk lauk nýverið hljóðtritun á frumsömdu lagi sem ber nafnið A Glimpse in Time. Það er sungið af Stebba en Diddú syngur bakrödd. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á þetta ljúfa lag.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hvað bílaframleiðendur eru með á teikniborðunum. Svo finnur þú líka í Heimsmynd dagsins tengil inn á videó, sem sýnir bíl, sem er búinn vængjum - svona ef ökumaðurinn yrði leiður á umferðarhnútum og vildi hefja sg til flugs. Fllugbíllinn kemst hæglega í bilskúrinn þegar vængirnir hafa verið brotnir saman, sem er jafn fljótlegt og að leggja saman þakið á blæjubíl.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáð vídeó þar sem Ralph Lauren tískuhönnuður sýnir einstakt bílasafn sitt og útskýrir bíladelluna sem hann er haldinn.
Upphafstriði lokahófs Samkeppninnar á Broadway í gærkvöldi. Haffi Haff tekur sitt vinsæla lag umvafinn kvenfólki, nánar tiltekið keppendunum tíu. Þær eru hér í pelsum frá Pelsinum í Kirkjuhvoli. Þegar þær köstuðu pelsunum af sér voru þær í undirfötum frá versluninni Þú og ég. Afburða þokkafullar á sviði á Alþjóðadegi karla. Hárgreiðsluna hafði Carter í Hafnarfrði annast, en förðunin var í höndum stúlkna úr Förðunarskóla Snyrti-Akademíunnar. Nagaskólinn hafði svo sett á þær flottar neglur. Síðar komu stúlkurnar fram í fatnaði frá Grand Collections í Kringlunni og sömuleiðis bráðskemmtilegu pin-up atriði þar sem þær voru í mini-fatnaði sem Elín Hreindal, sérlegur hönnuður Haffa Haff, hafði hannað og saumað fyrir það atriði. Mynd: Bragi Kort.
Jórunni Steinsson varð í þriðja sæti Samkeppni Smúels 2010. Mynd: Arnaldur Halldórsson. Hár: Carter, Firði, Hafnarfirði. Förðun: Dýrleif Sveins, Snyrti-Akademían.
Hinn kunni tískuljósmyndari Sam Norval átti sæti í dómnefnd Samkeppni Samúels 2010. Hann er fæddur og uppalinn í Höfðaborg í Suður-Afríku, flutti þaðan til Englands og ferðaðist um Evrópu þvera og endilanga sem aðstoðarmaður vinsælla, enskra tískuljósmyndara. Hann flutti loks til þriðju heimsálfunnar, fyrirheitna landsins, Bandaríkjanna. Nánar titekið New York. Þar er hann orðinn einn af eftirsóttustu tískuljósmyndurunum í dag. Hér má sjá eina af ljósmyndum Sam Norval.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu þessa stórmeistara dægurlagatónlistarinnar taka saman lagið. Lagið heitir All for Love og upptakan var gerð árið 1993. En hún eldist vel og Samúel getur ekki stillt sig um að rifja upp þessa perlu ...
Jæja, strákar, nú er að taka á honum stóra sínum og reyna að hemja sig. Könnun hefur nefnilega leitt í ljós að karlmenn eru yfirleitt ekkii nema um sjö mínútur að hespa kynlífsleiknum af, en eftir liggur óánægður rekkjunautur, sem hefði viljað fara hægar í sakirnar og njóta ásta í rúma klukkustund. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa meira um málið.
Smelltu á fyrirsögnina og lestu um níu af ömurlegustu kærustum heims. Einn falsaði HIV-niðurstöður til að komast í bólið hjá kærustunni, annar banaði sinni vegna þess að hún vildi ekki aðstoða hann við að grafa þá fyrrverandi og enn annar gerði 11 ára dóttur unnustunnar ófríska, en það var ekki nóg með það ...
Samúel leitast við að standa sig sem best í leiðbeiningaþjónustunni við karlmenn. Að þessu sinni er annars vegar birtur listi yfir tíu atriði sem mikilvægt er að halda leyndum fyrir nýju vinkonunni á meðan vinskapurinn er tryggður. Hins vegar eru svo birt sex atriði sem gagnlegt er að hafa í huga við skiilnað ef hugmyndin er að skilja á grænu nótunum. Þær leiðbeiningar pikkaði Samúel upp af Náttúra.is.
Hinn þekkti ljósmyndari fallega og fræga fólksins í Hollywood, Marcel Indik, hefur tekið sér sæti í dómnefnd Samkeppninnar 2010 við hlið Berglindar Ólafsdóttur, sem er formaður dómnefndar. Meðfylgjandi mynd tók Marcel nýverið af Berglindi, en bæði búa þau í Los Angeles. Marcel Indik hefur í mörg ár verið einn af eftirsóttustu ljósmyndurum útbreiddra tímarita eins og Max, Maxim og Playboy. Myndaði hann meðal annars Ásdísi Rán fyrir milljón dollara keppnina hér um árið. Hann er vinsæll tísku- og auglýsingaljósmyndari og hefur hlotið aðalverðlaun The Advertising Photographers of America.
Suðurnesjastúlkur komust í fyrsta og þriðja sæti Samkeppni Samúels 2010, en úrslitin voru tilkynnt á stórglæsilegu lokahófi á Broadway í gærkvöldi. Móeiður Sif Skúladóttir settst í krýningarstólinn, en Hulda Lind Kristinsdóttir komst í annað sæti og Jórunn Steinsson í það þriðja. Það var Berglind Ólafsdóttir sem tilkynnti úrslitin, en hún var formaður fimm manna dómnefndar, sem annars var skipuð karlmönnum frá fjórum heimsálfum. Einni ofurfyrirsætu og þremur ljósmyndurum. Studdist dómnefndin við netkosningu sem fór fram á Samúel.is, en jafnfram fór fram netkosning á Superman.is. Þar röðuðust í efstu sætin þær, Hulda Lind (1), Jórunn (2) og Karítas Ósk(3). Mynd: Bragi Kort.
Pressan birtir forvitnilega samantekt Samúels á ummælum fréttamanna árið 1979 um helstu viðmælendur fjölmiðla á Alþingi. Þar kemur fram hvers vegna þeim fannst Geir Hallgrímsson verstur viðmælenda og Svavar Gestsson bestur. Auk þess eru birt nokkur ummæli um Gunnar Thoroddsen og Lúðvík Jósepsson, en sá síðarnefndi þótti sérlega varasamur sökum þess hve lyginn hann var.
Róbert Reynisson, framkvæmdastjóri bílaþvottastöðvarinnar Löðurs, afhendir Móeiði kort sem er ávísun á vikulegan þvott á verðlaunabílnum allan tímann sem hún hefur bílinn til afnota. Ekki amalegt það. Mynd: ÞJM
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.
Vissir þú að Ronnie Wood er mikls metinn listmálari og seljast málverk hans fyrir jafnvirði milljóntuga íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndirnar.
Þegar skilaboðin eru "Bring your own boos" er heppilegt að geta kippt með sér 2-4 gosbjórum, eða hvað það nú er sem þú getur hugsað þér að innbyrða í teitinu. Hvað þá að geta tekið með sér Mojito eða aðra uppáhalds kokkteila klára á gosflöskum. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um vnsæla gosbjóra.
Hérlendis flokkast ljótur munn- söfnuður þjálfara knattspyrnuliðs undir óspektir. Hvað segið þið um það þegar sagt er frá láti 120 áhorfenda á knattspyrnuleik? Sjáðu upptalningu á 10 verstu atburðunum í sögu boltans.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu nýtt vídeó með tíu glæsilegustu mörkum Steven Gerrards fyrirliða Liverpool F.C..
Samúel tínir til myndir úr fjöl- miðlum af stúlkunum þremur sem komust í þrjú efstu sæti samkeppninnar. Smelltu á myndina og síðan fyrirsögnina.
Bridget Moynahan er flottasta afmælisbarnið 21. september að mati Samúels. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá nöfn þekktra einsaklinga sem eiga afmæli 22. september.
Mönnum brá í brún þegar skoski leikarinn Sean Connery afboðaði óvænt komu sína á árlegt hóf sem ber nafnið Dressed til Kilt þar sem karlar mæta í skotapilsum. Connery hafði verið auglýstur sem sérstakur heiðursgestur. Strax var leitt að því getum, að heilsa Bond leikarans gamla væri farin að gefa sig (hann varð 81 árs 25. ágúst). Ástæðan reyndist þvert á móti vera sú að hann langaði meira til að fara og spila golf á Bahama. Hann hefur nú gefið það út, að hann nenni ekki lengur að sitja heilu kvöldin í samkvæmum fína fólksins. Smelltu á fyrirsögnina.
Sophia Loren er orðin 77 ára. Hún hefur elst vel og pósaði fyrir dagatal Pirelli fyrir aðeins fjórum árum. Smelltu á fyrirsögnina.
Robert Plant er orðinn 63 ára en hefur ekkert dregið úr tónleika- haldi. Hann neitaði að taka þátt í að endurvekja Led Zeppelin til að geta sungið sem mest með söngkonunni Alison Krauss. Árið 2009 hlutu þau fimm Grammy-verðlaun fyrir plötu þar sem þau sungu saman. Plant græðir á tá og fingri, en eignir hans eru metnar á jafnvirði 15 milljarða íslenskra króna. Smelltu á fyrirsögnina til að heyra 100 laga syrpu með Led Zeppelin og aðra 100 laga syrpu með samantekt á því besta með Plant.
Madonna varð 53 ára á þriðju- daginn. Hún hefur selt meira en 300 milljónir platna. Smelltu á fyrir- sögnina til að tengjast 100 laga syrpu með drottninguna.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfir afmælisbörn sunnudagsins og heyra hálfrar aldar gamlan smell með einu afmælisbarnanna.
Vinurinn Matthew Perry fagnaði afmæli á fimmtudag, en hann fæddist hálfum mánuði eftir að Samúel hóf göngu sína árið 1969. Daginn áður áttu tveir aðrir vinsælir leikarar afmæli, þeir Edward Norton og Christian Slater, báðir fæddir 1969. Það væri ekki lélegt teiti þar sem Samúel og þessir vinsælu leikarar Samfögnuðu. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá nafnalistann.
Tveir af allra vinsælustu Hollywood leikurunum áttu afmæli 17. ágúst. Sama dag fögnuðu tveir þekktir Reykjavíkur leikarar afmælum. Smelltu á fyrirsögnina.
Síðastliðinn mánudag voru liðin 242 ár frá fæðingu Napolenos Bonaperte herforingja í Frönsku byltingunni. Ekki ólíklegt að einhverjir hafi notað það tækifæri til að skála í koníaki. Smelltu á fyrirsögnina.
Hin fagra Halle Berry varð 43 ára á sunnudaginn. Hún var hreint ekki sú eina fallega á lista Samúels yfir afmælisbörn þann daginn ...
Ásdís Rán, ókrýnd fyrirsæta Íslands, varð 32 ára 12. ágúst. Smellt á fyrirsögnina til að sjá myndasyrpur af henni.
Ian Anderson, aðal sprautan í Jethro Tull, varð 64 ára í gær og trommuleikari INXS 50 ára. Fimm aðra tónlistarmenn er að finna í afmælisdagabók okkar, það eru Eddie Fischer, Michael Bivins í New Edition og Bell Biv Deveo, söngkonunarnar Patti Austin og Neneh Cherry og loks Bobby Hatfield, sem söng Unchained Melody. Smelltu á fyrirsögnina og hlustaðu á lagasyrpur með þeim öllum.
Gítarleikarinn, söngvarinn og aðal sprautan í Metallicu varð 48 ára í gær. Metallica spókaði sig á sviði Egilshallar eigi alls fyrir löngu. Bandið verður þrítugt á þessu ári og hefur selt meira en 100 milljónir platna. Smelltu á fyrirsögnina og hlýddu á 100 laga syrpu með Metallicu.
Ósk Norfjörð er lang flottasta afmælisbarn mánudagsins að mati Samúels. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá listann.
Hin nýbakaða Íslandsvinkona Charlie Theron er fallegasta afmælisbarn sunnudagsins að mati Samúels. En nokkrar í viðbót komu sterklega til greina. Smelltu á fyrirsögnina.
Martin Sheen komst í gær á áttræðisaldur. Til vinstri er mynd af honum er hann hóf ferilinn. Synir hans, leikararnir Charlie Sheen og Emilio og Ramón Estevez eru afar líkir honum eins og hann leit út á yngri árum. Smelltu á fyrirsögnina.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá lista Samúels yfir fólk úr röðum hinna fallegu og frægu sem áttu afmæli í fyrradag.
Birgitta Haukdal verður hiklaust að teljast fallegasta afmælisbarn fimmtudagsins. Ljósm.: ÞJM Smelltu á fyrirsögnina.
Móðir Jennifer Lopez fór á fæðingardeiildina til að eiga stúlkukindinaa daginn sem fyrsta tölublað Samúels rann af stað í prentvélunum. Samúel finnst Lopez ótvírætt vera fallegasti jafnaldri sinn. Smelltu á fyrirsögnina til að sjá meira.
Veslings Snipes komst á sex- tugsaldurinn í gær. Spurning hvort honum hafi gefist tækifæri til að fagna afmælinu, en hann er kominn skammt á veg með að afplána þriggja ára fangelsisvist vegna skattaskulda. Smelltu á fyrirsögnina.
Færeyska söngkonan og laga- höfundurinn Eyvør Pálsdóttir er 28 ára. Tólf ára gömul fór hún í söngferðalag með færeyskum karlakór og þrettán ára kom hún fyrst fram sem sólóisti. Smelltu á fyrirsögnina.
Tónlistarmenn voru áberandi á lista Samúels yfir afmælisbörn miðvikudags eins og svo oft áður. Samúel er með tengla inn á lagasyrpur með þeim öllum. Smelltu á fyrirsögnina og þú kemst í snertingu við tengla inn á vídeó með Santana, Pearl Jam, Chris Cornell, Simple Minds, Mark-Almond, Kim Carnes, T G Sheppard, John Lodge, Jo Ann Campbell og The Moody Blues.
Samúel heldur því ekki fram að leikarinn Jack Earle Haley sé fallegasta afmælisbarn föstu- dagsins og enn síður Freddy Krueger (sem hann leikur), en Stanton er óneitanlega góður leikari. Smelltu á fyrirsögnina.
Trommuleikarinn Ian Paice (63) hefur spilað með Deep Purple og Whitesnake sem báðar hafa komið hingað til lands. Einnig hefur hann spilað með Paul McCartney, Garry Moore og The Velvet Underground svo aðeins fáeinir séu nefndir. Smelltu á fyrirsögnina til að hlýða á hann með sönnum snillingum.
Hin önnum kafna söngkona Nicole Scherzinger mætti í tvö afmælisteiti í Las Vegas sem haldin voru henni til heiðurs. Bæði sama daginn og tveimur dögum áður en hún átti afmæli. Hún þurfti að vera sest í sæti dómara við hlið Símonar Cowell og Paulu Abdol í X-Factor í gær. Smelltu á fyrirsögnina og heyrðu það nýjasta með Nicole og slatta af lögum þar sem hún syngur með Pussycat Dolls.
Cyndi Lauper heillaði íslenska áhorfendur í Hörpu nýverið. Smelltu á fyrsögnina til að rifja upp 100 lög með þessum nýja Íslandsvini.
Íslandsvinurinn Ray Davies úr Kinks er á stöðugum hljóm- leikaferðlaögum en hann kemst á eftirlaunaaldur í dag, 21. júní. Hann vinnur að nýrri plöu í stúdíói sem Kinks gerðu til einkonota fyrir 40 árum. Sjáðu glænýja upptöku frá vinnslu plötunnar í stúdíóinu.
When I'm 64, söng McCartney með Bítlunum. Síðan eru liðin 44 ár og hann vantar aðeins eitt ár í sjötugt. Lifið brosir samt við honum - vel hærðum með nýja kærustu. Smelltu á fyrirsögnina og komdu þér í tengsl við 100 laga syrpu með stráknum.
Yngstu einstaklingarnir sem hafa orðið milljarðamæringar í dollurum talið af eigin rammleik. Smelltu á fyrirsögnina til sjá meira.
Kanye West fær rapparann Jay-Z til liðs við sig í vídeói við nýjasta lag sitt, Monster. Auk þess er puntað upp á það með nokkrum hvítum fyrirsætum sem virðast steindauðar. Það fer fyrir brjósið á mörgum. Smelltu á fyrirsögnina og dæmdu sjálfur, lesandi góður!
Þegar Sir. Tom Jones var fenginn til Íslands fyrir rúmum 20 árum þótti mönnum sem nú færi að verða síðasti séns að sjá karlinn á sviði. Hann er 71 árs og fyllir tónleikasali í Las Vegas þegar honum sýnist og nýjasta platan hans er tekin upp við undirleik rokkhljómsveitar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann flytja lag af nýju plötunni og 100 lög til viðbótar.
Dylan varð sjötugur 24. maí. Smelltu á fyrirsögnina. Samúel rifjar upp lagið sem færði Dylan Óskarinn og Gullna hnöttinn á aldamótaárinu.
Marilyn Monroe hefði orðið 91 árs 1. júní, en hún lést af of stórum skammti svefnlyfja árið 1962 aðeins 36 ára gömul. Smelltu á fyrirsögnina.
Janessa Brasil er fyrirtaks ljós- myndafyrirsæta. Smelltu á fyrirsögnina til að ganga úr skugga um það hvort þú sért ekki sammála.
Paul Simon var að hefja sinn frægðarferil um það leiti sem Samúel hóf göngu sína fyrir liðlega 40 árum. Nú er hann að senda frá sér sitt 12. albúm. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu hann flytja eitt laganna.
Texas blúsarinn Pinetop Perkins er látinn, 97 ára að aldri. Hann spilaði um tíma með Blue Ice Band (Vinum Dóra), í Chicago fyrir miðjan tíunda áratuginn og lék með þeim hér á landi. Hann sagði sjálfur að plata sem hann gaf út með Dóra og félögum væri hans besta. Þegar hann spilaði á blúshátíð í Reykjavík 2009 sæmdi Blúsfélagið hann með heiðursfélagaorðu. Perkins var margverðlaunaður. Í síðasta mánuði tók hann við sínum síðustu verðlaunum, Grammy. Smelltu á fyrirsögnina.
Tímaritið Rolling Stone dregur fram tíu bestu dægurlög sjötta áratugarins. Smelltu á fyrir-sögnina til að sjá og heyra.
Síðla sumars verður frumsýnd ný mynd um apa. Er fastlega gert ráð fyrir að hún eigi eftir að njóta sömu vinsælda og myndirnar um apaplánetuna hér á árum áður. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu fyrsta úrdráttinn úr Rise of the Planet of the Ape.
Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu þrjú vídó (neðst á síðunni) með knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo syngja rómantískt lag og spóka sig á nærbrókinni. Allt fyrir Armani.
Samúel kannaði fyrir Pressuna hvað varð af stelpunum tveimur sem hölluðu sér upp að barnum með Þorgeiri Ástvalds fyrir 30 árum og sungu um fjólublátt ljós. Smelltu á fyrirsögnina.
Arkitektarnir Tryggvi og Erla Dögg hafa rekið arkitektastofur í Kaliforníu og Luxembourg. Húsið sem þau sjálf byggðu yfir sig og börnin í Santa Monica hlaut viðurkenningu tímaritsins Interior Design 2010 sem útsjónarsam- asta hönnun ársins 2010. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndir frá heimili þeirra og einnig myndir af húsi sem þau hönnuðu fyrir kvikmyndagerðarmann í Hollywood. Mynd: David Lena.
Franz Gunnarsson hefur prófað fimmtántölvuleiki fyrir Samúel. Smelltu á fyrirsögnina til að lesa um þá og sjá vídeókynningar.
Samúel hefur spurt stúlkurnar í Samkeppninni að því, hvaða pic-up línur séu þeim minnis- stæðastar. Þær hafa allar svarað spurningunni. Ein þeirra gerði betur en það, hún gaukaði að Samúel slatta af fyndnum tilsvörum sem nota má þegar áhugi er ekki fyrir hendi. Smelltu á fyrirsögnina.
Í tilefni af því að hérlendis voru veitt í vikunni verðlaun fyrir bæði bestu og verstu auglýsingarnar í íslensku sjónvarpi skellti Samúel inn tilvísunum á nokkrar auglýs- ingar sem bannað er að sýna í sjónvarpi erlendis. Smelltu á fyrirsögnina og njóttu!
