Leikararnir Christian Slater (t.v.) og Edward Norton fagna 42 ára afmælum sínum í dag, en þeir eru fæddir 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Báðir hafa þeir átt mikilli velgengni að fagna á leiklistarbrautinni og hlotið öll helstu verðlaunin í list- greininni og tekist að safna fúlgum fjár inn á bankareikninga sína.
AFMÆLI 18. ÁGÚST FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR KRABBI
1988 Ásgeir Erlendsson (íþróttafréttamaður)
1983 Mika (Michael Holbrook Penniman) (Líbanskur söngvari) 44 VÍDEÓ
1970 Malcolm Jamal Warner (leikari, Theo Huxtable í Fyrirmyndaföður) VÍDEÓ
1969 Christian Slater (leikari, Interview with the Vampire, Í nafni Rósarinnar)
1969 Everlast (Erik Schrody) (söngvari, lagasmiður, Grammy-hafi) 69 VÍDEÓ
1969 Edward Norton (leikari, Primal Fear, Fight Club, The Illusions, Hulk)
1962 Felioe Calderón (kosinn forseti Mexíkó 1. desember 2006)
1958 Madeleine Stowe (leikkona, Mohicans, General’s Daughter, 12 Monkeys)
1957 Ron Strykert (austurrískur sólógítarleikari, Men at Work) 38 VÍDEÓ
1954 Patrick Swayze (leikari, Dirty Dancing, Ghost, Point Break, lést 2009 )
1950 Dennis Elliot, trommari the Foreigner, síðar myndhöggvari) 99 VÍDEÓ
1944 Carl Wayne (leikari, söngvari bresku hljómsveitarinnar The Move) 67 VÍDEÓ
1939 Johnny Preston (söngvari, þekktastur fyrir Running Bear 1960) 28 VÍDEÓ
1937 Robert Redford (leikari, leikstjóri, Butch Cassidy, The Sting, Great Gatsby)
1933 Roman Polanski (franskur leikstjóri, handritsh., leikari, sex Óskars-verðlaun)
1922 Shelley Winters (leikkona, Lolita (1962), Alfie (1966), A Place in the Sun)
1922 Alain Robbe-Grillet (franskur rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður)
1904 Max Factor (Maximilian Faktorowicz) (risi á snyrtivörumakaði)
1892 Loftur Guðmundsson (ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður)
1830 Franz Jósep 1. (Austurríkiskeisari)
1750 Antonio Salieri (hirðtónskáld Austuríkiskeisara seint á 18. öld) 19 VÍDEÓ
Leikarinn, leikstjórinn og söngvarinn og Malcolm-Jamal Warner úr þáttum Bill Cosbys um Fyrirmyndarföðurinn Huxtable trúlofaðist í ársbyrjun annarri barnastjörnu frá níunda áratugnum, Reginu Kong.
Rapparinn og lagasmiðurinn Erik Schrody (betur þekktur undir sviðsnafninu Everlast) fæddist í New York 16. ágúst 1969, en þá var liðinn rétt hálfur mánuðir frá því fyrsta tölublaði Samúels var dreift á sölustaði. Auk þess að sinna sólóferli syngur Everlast með rappsveinni House of Pain og súpergrúppunni La Coka Nostra. Á aldamótaárinu hlaut hann Grammy-verðlaunin fyrir lagið Put Your Lights On sem hann söng með latin-rokkaranum Carlos Santana. Hér fyrir neðan má sjá þá og heyra taka þetta ágæta lag. 69 lög með Everlast.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.