AFMÆLISBÖRN 10. ÁGÚST
Angie Harmon og eiginmaðurinn.
Antonio Banderas
Roy Keane
Siv Friðleifsdóttir
Ef þetta er ekki ást við fyrstu sýn …
Bandaríska kvikmyndaleikkonan og ljósmyndafyrirsætan Angie Harmon er 39 ára í dag. Í fyrra fór hún í einu nektarmyndatökuna sem hún hefur farið í til þessa og þá fyrir kvennablaðið Allure. Áður segist hún aðeins einu sinni hafa afklæðst utan veggja heimilisins, þá hafi hún verið á afskekktri strönd með eiginmanninum og þau tekið sér sundsprett nakin. Eiginmaðurinn heitir Jason Sehorn og var atvinnumaður í knattspyrnu. Jay Leno kynnti þau haustið 1998 og fór Sehorn umsvifalaust á hnén og bað leikkonunar. Þau gengu upp að altarinu nokkrum mánuðum síðar og eiga í dag þrjár dætur.
AFMÆLI 10. ÁGÚST FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR KRABBI
1982 Devon Aoki (fyrirsæta, leikkona, Sin City, 2Fast 2Furious, DOA, War)
1972 Angie Harmon (fyrirsæta, leikkona, Law & Order, Baywatch Nights)
1971 Roy Keane (fyrrum knattspyrnumaður og fyrirliði Manchester United)
1968 Michael Bivins (New Edition (R&B) og Bell Biv Devoe (hip-hop)) 100 VÍDEÓ
1966 Þóra Kristín Ásgeirsdóttir (ritstjóri Sumgunnar, fv. sjónvarpsfréttakona)
1964 Neneh Cherry (sænsk söngkona, lagasmiður, rappari, DJ) 35 VÍDEÓ
1962 Siv Friðleifsdóttir (alþingismaður, fyrrverandi ráðherra)
1961 John Farriss (trommuleikari INXS) 100 VÍDEÓ
1960 Antonio Banderas (leikari, Zorro, Desperado, Evita, Assassins) 44 VÍDEÓ
1959 Rosanna Arquette (leikkona, The Whole Nine Yards, After Hours)
1950 Patti Austin (R&B- og djasssöngkona, Grammy-verðlaunahafi) 100 VÍDEÓ
1947 Ian Anderson (hljóðfæraleikur, söngur, lagasmíðar, Jethro Tull) 100 VÍDEÓ
1945 Jón Óttar Ragnarsson (stofnandi Stöðvar 2, athafnamaður í Los Angeles)
1940 Bobby Hatfield (söngvari, The Rigtheous Brothers) 74 VÍDEÓ
1928 Eddie Fisher (söngvari, leikari, sjónvarpsstjarna á sjötta áratug) 89 VÍDEÓ
1914 Jeff Corey (leikari, leikstjóri og síðar virtur leiklistarkennari)
1912 Jorge Amado (brasilískur rithöfundur, þýddur á yfir 50 tungumál )
1909 Leo Fender (hannaði og framleiddi Fender gítarinn)
1874 Herbert Hoover (31. forseti Bandaríkjaforseti)
Bandarísku fyrirsætuna og leikkonuna Devon Edwenna Aoki vantar aðeins eitt ár í þrítugt. Japanskur faðir hennar var Olympiu glímukappinn Hiroaki „Rocky” Aoki. Þegar hann hætti í glímunni stofnaði hann veitingahúsakeðjuna Benihana og rak hana til dauðadags, en hann lést 2008. Móðirin er skartgripahönnuður af þýskum og enskum ættum. Devon Aoki var uppgötvuð af ljósmyndara þar sem hún var á tónleikum sem hún hafði svindlað sér inná í New York. Hún var þá aðeins þrettán ára. Guðmóðir hennar kynnti hana nokkru síðar fyrir Kate Moss sem fljótlega tók fyrirsætuna ungu undir sinn verndarvæng. Aoki var komin á samning hjá Storm umboðsskrifstoffunni ári síðar. Tveimur árum síðar hafði hún tekið við hlutverki ofurfyrirsætunnar Naomi Campell sem andlit tískustórveldisins Versace.
Þrátt fyrir að vera aðeins 1.65 cm á hæð hefur Aoki gengið sýningarpalla tískuhúsanna Lancôme, Chanel og Vercase. Einnig hefur hún unnið sem fyrirsæta fyrir YSL og fleiri stór nöfn í tískuheiminum. Hún hefur sést á mörgum tímaritaforsíðum, þar á meðal í þrígang á I-D.
KVIKMYNDIR: Aoki var ekki enn komin með ökuskírteini þegar henni bauðst stórt hlutverk í hraðakstursmyndinni 2Fast 2Furious. Hún var sannfærandi í hlutverki sínu og á meðal annara kvikmynda sem hún hefur einnig leikið í má nefna Sin City, DAO:Dead or Alive, War og Mutant Chronicles. Hún býr núna í kvikmyndaborginni Hollywood og lætur fara vel um sig í stóru húsi ásamt snákunum sínum tveimur sem eru hennar gæludýr.
Unchained Melody var á B-hliðinni
Bandaríski söngvarinn Bobby Hatfield hefði orðið 71 árs í dag, en hann lést í nóvember 2003. Á skólaárunum söng hann í kór og lék hafnabolta. Hann hugleiddi að gerast atvinnumaður í íþróttinni en söngurinn hafði náð meiri tökum á honum. Hann stofnaði dúettinn Righteous bræður með félaga sínum Bil Medley 1962. Þeirra fyrsta lag á plötu var Little Latin Lupe Lu, en fyrsta lag þeirra til að komast í fyrsta sæti vinsældalista var You've Lost That Lovin Feelin'. Upptökunni stýrði Phil Spector 1964. Athyglinni var fylgt eftir með laginu Unchained Melody sem var í rauninni sólósöngur Hatfields.
Lagið var samið árið 1955 fyrir kvikmyndina Unchained. Myndin gerist í fangelsi og átti lagið að lýsa tilfinningu fanganna er þeir biðu eftir að tíminn liði. Lagið samdi Alex North, textinn er eftir Hy Zaret. Lagið söng blökkumaðurinn Todd Duncan. Tvær útgáfur komu út af laginu þegar myndin var frumsýnd, með og án söngs. Sú fyrrnefnda náði í efsta sæt vinsældalista og hin því þriðja.
Í flutningi Righteous bræðra náði lagið gríðarlegum vinsælda, en það var á B-hlið tveggja laga plötu. Vinsældirnar náðu aftur hæstu hæðum er angurvært lagið hljómaði í kvikmyndinni Ghost árið 1990. Bobby Hatfield lést af völdum hjartaáfalls árið 2003, 63. ára að aldri.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.