Dustin Hoffman leikari er 74. ára í dag. Frumraun hans í leiklist var 1966 í Off-Broadway leikritinu Eh? Hann vann til verðlauna fyrir frammistöðuna. Það leiddi til þess að honum bauðst hlutverk í kvikmyndinni The Graduate.
Hillurnar í stássstofu leikarans eru væntanlega drekkhlaðnar verðlaunagripum, en hann hefur brillerað í hverri myndinni á fætur annari. Samúel minnir á myndirnar Kramer vs. Kramer, Midnight Cowboy, Papillion, Marathon Man, Little Bg Man, Lenny, All the Presidents Men, Tootsie, Rain Man, Wag the Dog og Meet the Fockers.
Viðfangsefni Hoffmans þessa stundina er kvikmyndagerð eftir metsölubókinni The Given, vísindaskáldsögu sem Lois Lowrey sendi frá ser 1993 og hefur selt í meira en 5 milljónum eintaka. Fylgir sagan drengnum Jónasi í tólf ár.
Ítalski kvikmyndaframleiðandinn Dino DeLaurentis lést í fyrra 91. árs að aldri. Á hálfri öld átti hann þátt í gerð um 500 kvikmynda á einn eða annan hátt og hlutu fjölmargar þeirra mikið lof, sæg af verðlaunum og mikla aðsókn. Meðal kvikmynda sem Dino átti þátt í að framleiða má nefna Fellini-myndina La Strada, The Death Zone, Serpico, Barabas, Death Wish, Blue Velvet, Ragtime, Manhunter og síðast en ekki síst myndirnar um Hannibal Lecter. Dino var tvíkvæntur. Síðari konunni kvæntist hann 1989. Sú er kvikmyndaframleiðandinn Martha Schumacher , 57 ára gömul.
AFMÆLI 8. ÁGÚST FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR KRABBI
1988 Jóhanna Margrét Gísladóttir (fréttamaður, Stöð 2)
1988 Beatrice Elizabeth Mary (dóttir Söru Ferguson og Andrews Bretaprins)
1981 Bradley McIntosh (leikari, söngvari, sá ljóshærði í S Club 7) 61 VÍDEÓ
1979 Guðjón Valur Sigurðsson (landsliðsmaður í handbolta)
1979 Ósk Norðfjörð (ljósmyndafyrirsæta)
1976 J. C. Chasez (dansari, söngvari, lagahöf., upptökustj., ‘N Sync) 97 VÍDEÓ
1961 The Edge (Dave Evans) (gítar, hljómborð, bakrödd, lagah., U2) 100 VÍDEÓ
1959 RikkiRockett (trommuleikari, Poison) 100 VÍDEÓ
1957 Dennis Drew (hljómborðsleikari, 10,000 Maniacs) 59 VÍDEÓ
1955 Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) (söngkona) VÍDEÓ Við stóran stein
1955 Chris Foreman (gítarleikari, lagahöfu ndur, Madness)
1952 Jostein Gaarder (norskur rithöfundur, Kapalgátan, Veröld Soffíu)
1949 Keith Carradine (leikari, Óskar og Golden Globe fyrir lagasmíðar)
1944 Peter Weir (leikstjóri, Witness, The Truman Show, Dead Poets Society)
1938 Connie Stevens (Concetta Ingolia) (söngkona, leikkona) 14 VÍDEÓ
1937 Dustin Hoffman (leikari, Kramer vs. Kramer, Tootsie, Rain Man, Hook)
1933 Joe Tex (Arrington, Jr)(söngvari, Show Me) 100 VÍDEÓ
19 26 Webb Pierce (vinsæll honky tonk söngvari á sjötta áratugnum) 94 VÍDEÓ
1922 Rudi Gernreich (tískuhönnuður, ábyrgur fyrir fyrstu topplausu baðfötunum)
1919 Dino DeLaurentis (kvikmyndaframleiðandi, gerði 500 kvikmyndir, Hannibal)
1866 Matthew Henson (landkönnuður, fyrstur manna á Norðurpólinn)
The Edge (réttu nafni Dave Evans) er fimmtugur í dag. Hann er gítar- og hljómborðsleikari írsku hljómsveitarinnar U2. Hann syngur einnig bakrödd og er iðinn við tónsmíðar fyrir hljómsveitina. The Edge er númer 24 á lista tímaritsins Rolling Stone yfir stórkostlegustu gítarleikara allra tíma. Hann hefur spi lað með U2 á öllum tólf breiðskífum þeirra og auk þess sent frá sér sólóplötu.
Það er nýjast af The Edge að frétta, að hann býr sig undir málaferli í Kaliforníu þar eð byggingayfirvöld hafa staðið í vegi fyrir því að hann geti byggt lúxus íbúðir búnar nýtískulegasta búnaði svo sem sólskermum til raforkuframleiðslu. Íbúðirnar hugðist hann byggja á 156 ekrum sem hann hafði keypt við strönd Malibu þar sem íbúarnir munu hafa útsýni út á Kyrrahafið.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.