Ástralska ljósmyndafyrirsætan og sýningarstúlkan Megan Gale hefur þótt skjávæn í meira lagi og því verið falin kynning í áströlsku sjónvarpi við ýmis tækifæri auk þess sem henni hafa boðist hlutverk í kvikmyndum. Ferillinn hófst með sigri í fyrirsætu- keppni í Perth þegar Gale var 18 ára. Ferðamálaráð Ástralíu valdi hana sem andlit Ástralíu í kynningarherferð á Ítalíu sem farin var 2003. Það leiddi til þess að ítölsku tiskuhúsin fengu hana til starfa og tískublöðin veittu henni verðskuldaða athygli.
Hefur flogið með marga íslenska aðdáendur
Bruce Dickinson hefur flogið með æði marga farþega Iceland Express undanfarin ár, en hann lauk flugnámi á Flórída 1990 og er í fullu starfi sem flugmaður hjá breska leiguflugfélaginu Astraeus.
Frægt er að Dickinson hefur flogið með íslenska aðdáendur
þungarokkshljómsveitarinnar
Iron Maiden
á hljómleika erlendis, en sjálfur er hann
söngvari hljómsveitarinnar og hefur samið töluvert af lögum hennar. En hann lætur sér ekki nægja að starfa sem rokkari og flugmaður, hann er einnig dagskrárgerðarmaður, markaðsstjóri og höfundur kvikmyndahandrita. Á andvökunóttum á hljómleikaferðalögum tók hann upp á því að skrifa sér til dundurs og hefur tekist að gera sér pening úr þeim skrifum. Í tómstundunum leggur hann einnig stund á skylmingar.
100 VÍDEÓ MEÐ IRON MAIDEN
Fékk fyrsta hlutverkið út á að rífa kjaft
Kvikmyndalleikkonan Charlize Theron er 36 ára í dag. Hún var hér á landi við kvikmyndaleik í júlí undir leikstjórn Ridley Scott. Fer hún með aðalhlutverkið í mynd hans Prometheus. Meðan á tökum stóð gengu sögur af stirðu samband þeirra á milli, en áður en tökuliðið kom til landsins lét Theron hafa það eftir sér í viðtali, að hana hafi verið farið að dreyma um að starfa með Scott löngu áður en hann bauð henni hlutverkið. „Ég nýt þess að vinna með mönnum sem vita hvað þeir eru að gera og taka stjórnina," sagði hún.
Charlize Theron er fædd og uppalin í Suður-Afríku. Móðirin þýsk en faðirinn hollenskur. Faðir hennar var drykkfelldur í meira lagi og gafst móðirin upp á honum og skaut hann til bana að dótturinni ásjáandi. Mæðgurnar fluttu til Los Angeles þegar Theron var 13 ára. Hún gerði margar áangurslausar tilraunir til að fá kvikmyndahlutverk með því að mæta í allar þær prufur sem í boði voru. Fyrsta hlutverkið fékk hún í framhaldi af því að kvikmyndaleikstjóri fylgdist með henni hella úr skálum reiði sinnar yfir afgreiðslumann í nýlenduvöruverslun.
Lekkonunni hefur tekist að gæða allar þær myndir sem hún hefur leikið í bæði lífi og mögnuðum tilfinningum. Hún hefur tvisvar hlotið Óskarinn, fyrst fyrir hlutverk ólaglegs raðmorðingja í myndinni Monster og síðar baráttukonu í myndinni North County. Báðar persónurnar voru til í raun og veru. Af öðrum myndum má minna á The Italian Job, Devils Advocate, Sweet November og Hancock.
AFMÆLI 7. ÁGÚST HRÚTAR NAUT TVÍBURAR KRABBI
1980 Aurélie Claudel (módel frá 13 ára aldri fyrir stóru tískuhúsin og tískutímaritin)
1975 Charlize Theron (leikkona, Monster, The Italian Job, Devils Advocate)
1975 Megan Gale (leikkona, áströlsk fyrirsæta, eftirsótt til starfa á Ítalíu)
1971 Sydney Penny (leikkona, All My Childre, The B old and The Beautiful)
1970 Melanie Sykes (ensk sjónvarpsstjarna og ljósmyndafyrirsæta)
1967 Charlotte Lewis (leikkona, Polanski sængaði hjá henni 16 ára gamalli)
1963 Harold Perrineau (leikari, Oz, Lost, Matrix, Romeo+Juliet, 28 Weeks Later)
1961 DeLane Matthews (leikkona, General Hospital, The Guding Light)
1960 Jacqui O’Sullivan (söngkona, lagahöfundur, Bananarama) 100 VÍDEÓ
1960 David Duchovny (leikari, X-Files, Californication, Evolution)
1958 Bruce Dickinson (flugmaður, söngvari, lagahöf., Iron Maiden) 100 VÍDEÓ
1955 Wayne Knight (leikari, Jurassic Park, Seinfeld, Space Jam)
1950 Rodney Crowell (sveitasöngvari, Grammy-verðlaunahafi) 73 VÍDEÓ
1948 Vilmundur Gylfason (fyrrum ráðherra)
1944 David Rasche (leikari, Sledge Hammer, West Wing, An Innocent Man)
1944 Robert S. Mueller (forstjóri F.B.I.)
1942 Tobin Bell (leikari, Saw, vakti fyrst athygli í Mississippi Burning 1988)
1942 B.J. Thomas (hlaut Óskar 1969 fyrir kvikmyndalag, sjá neðar) 100 VÍDEÓ
1941 Andrés Indriðason (rithöfundur, fyrrum á dagskrárdeild Ríkissjónvarpsins)
1928 James Randi (kanadískur efahyggjumaður, rithöf., fyrirlesari, Íslandsvinur!)
1925 Felice Bryant (samdi mörg af vinsælustu lögum Everly bræðra)
1903 Ralph Bunche (hlaut friðarverðlaun Nóbels 1950)
1903 Louis Leakey (einn frægasti mannfræðingur 20. aldar)
1884 Billie Burke (leikkona, nútímavæddi nornina í myndinni Galdrakarlinn í Oz)
1876 Mata Hari (Gertrud Margarete Zelle) (lauslát dansmey og meintur njósnari)
Franska fyrirsætan Aurelie Claudel var uppgötvuð þegar hún var aðeins 13 ára gömul. Þrátt fyrir kröftug mótmæli heimilisföðurins þáði hún boð um fyrirsætustörf og getur í dag státað af því að hafa stikað um sýningarpalla tískuhönnuða eins og Gucci, Chanel, Calvin Klein, Ralph Lauren, Ninu Ricci að ógleymdum Victoria's Secret. Myndir af henni hafa meðal annars birst í Vogue, Cosmopolitam, Allure, Marie Claire, Elle og baðfataútgáfu Sports Illustrated og hún hefur verið í öndvegi í auglýsingaherferðum fyrir stórfyrirtæki eins og Oscar de la Renta og Tommy Hilfiger.
Fékk Óskar árið sem Samúel hóf göngu sína
BJ Thomas söng lagið Raindrops Keeps Falling on my Head í myndinni Butch Cassidy and the Sundance Kid (Robert Redford og Paul Newman) og hlaut að launum Óskarsverðlaun 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Hér tekur hann lagið á tónleikum í Branson Missouri í Bandaríkjunum árið 2007. Lagið sömdu þeir Burt Bacharach og Hal David sérstaklega fyrir kvikmyndina. Varð það fyrsta lag þeirra sem seldist í yfir milljón eintökum.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.