Barack Hussein Obama Bandaríkjaforseti er fimmtugur í dag. Samúel veltir því fyrir sér hvernig hann hefði puntað upp á sig í tilefni dagsins hefði faðir hans hans haldið sig í Afríku og getið hann með afrískri konu en ekki bandarískri. Faðir hans var frá Kenýju en var í námi í Honolulu á Hawai þegar hann sáði forsetaefninu. Obama jr. lauk skyldunámi í Honolulu og fór eftir það til náms í Los Angeles í tvö ár og hélt síðan til New York þar sem hann lagði stund á stjórnmálafræði og alþjóðasamskipti. Áður en hann svo flutti frá New York til Chicago náði hann að ljúka doktorsprófi í lögfræði 1991.
AFMÆLI 4. ÁGÚST FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR KRABBI
1968 Daniel Dae Kim (þekktastur fyrir hlutverk Jin-Soo Kwon í Lost)
1965 Dennis Lehane (selur spennusögur í stórum stíl, Shutter Island)
1961 Barack Hussein Obama (44. forseti Bandaríkjanna)
1958 Kimberly (Kym) Karath (lék Gretl litlu í myndinni The Sound of Music)
1956 Meg Whitman (forstjóri eBay)
1955 Billy Bob Thornton (leikari, leikstj., handritah., söngvari) 15 bestu myndirnar
1955 Steingrímur J. Sigfússon (formaður VG, Fjármálaráðherra)
1949 Magnús Kjartansson (myndlistarmaður)
1944 Richard Belzer (uppistandari, leikari, Low and Order: Special Victims Unit)
1942 Kate Michelman (baráttukona fyrir fóstureyðingum)
1921 Herb (Mitchell) Ellis (djassgítar og söngur í Tríói Oscars Peterson) 23 VÍDEÓ
1913 Wesley Addy (leikari, Network, What Ever Happened to Baby Jane?)
1912 Raoul Wallenberg (bjargaði 100.000 ungverskum Gyðingum frá nasistum)
1910 William Schuman (bandarískt tónskáld og hljómsveitarstjóri) VÍDEÓ
1901 Louis (Satchmo) Armstrong (djassisti, trompetleikari, söngvari)
1900 Elizabeth (drottningarmóðir)
1792 Percy Bysshe Shelley (ljóðskáld)
Louis Armstrong hefði orðið 110 ára í dag, en hann lést 1971. Hann var fæddur og uppalinn í djassborginni New Orleans og gekk undir gælunöfnunum Satchmo eða Pops. Vinsældir hans sem trompetleikara og söngvara áttu sinn stóra þátt í að ryðja svörtum listamönnum brautina í Bandaríkjunum og rjúfa þá einangrun sem þeir göfðu verið í. Hann hlaut heiðursverðlaun Grammy fyrir mikilsvert framlag til tónlistarinnar og hlaut að auki fjölda tónlistarverðlauna og viðurkenninga á ferlinum, sem of langt mál yrði upp að telja. Hér fyrir neðan má sjá Satchamo syngja lagið When The Saints Go Marching In. Hann er hér með hljómsveit sinni í sjónvarpsútsendingu í Ástralíu árið 1963. Til að sjá 100 vídeó með honum til viðbótar skaltu SMELLA HÉR.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.