1979 Evangeline Lilly (leikkona, tilnefnd til Golden Globe fyrir leik í Lost)
AFMÆLI 3. ÁGÚST FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR KRABBI
1981 Jonathan Murphy (leikari, Ready or Not, Life on Mars, October Road)
1968 Eyjólfur Sverrisson (fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu, þjálfari)
1966 Shirley Manson (leikkona, syngur með Garbage) 100 VÍDEÓ
1963 James Hetfield (gítar, söngur, lagasmíðar, Metallica) 100 VÍDEÓ
1959 John C. McGinley (leikari, Scrubs, Office Space, Platoon)
1952 Jay North (Hopper) (lék Denna dæmalausa í sjónvarpi 1959 til 1963)
1950 John Landis (handritahöfundur, leikstjóri, Blues Brothers, Animal House)
1946 Jack Straw (fyrrverandi utanríkisráðherra Breta, þingm. Verkalýðsflokksins)
1941 Martha Stewart (veitir allar mögulegar leiðbeiningar í sjónvarpi og í bókum)
1941 Beverly Lee (söngkona, stelpnasöngkvartettinn The Shirelles) 100 VÍDEÓ
1940 Martin Sheen (leikari, Apocalypse Now, West Wing, The Departed)
1937 Steven Berkoff (leikari, höfundur, leikstjóri, Octopussy, Rambo: First Blood)
1927 Gordon Scott (Werschkul) (lék Tarsan í fimm kvikmyndum 1955 til 1960)
1926 Tony Bennett (söngvari, 15 sinnum Grammy og þrisvar Emmy) 100 VÍDEÓ
1924 Leon Uris (þekktur fyrir framtíðarskáldskap, Exodus, Battle Cry, Topaz)
1920 P.D. James („drottning sakamálasögunnar", Heltekinn, Children of Men)
1917 Charlie Shavers (djasstrompetleikari, lagasmiður)
1915 Agnar Kofoed-Hansen ( fyrrum flugmálastjóri)
1905 Delores Del Rio (Lolita Dolores Martinez Asunsolo Lopez Negrette) (leikk.)
Amy Winehouse tók því boði fagnandi að fá að syngja dúett með Tony Bennett á plötu sem á að koma út í september. Hún hafði haldið mikið upp á karlinn alla tíð og farið á tvenna tónleika með honum þegar hann tróð upp í London í byrjun þessa árs. Mun hún hafa óttast að annað tækifæri gæfist ekki þar eð Bennett er orðinn aldraður, en hann er einmitt að halda upp á 85 ára afmæli sitt í dag. Örlygin hafa hins vegar hagað því þannig, að það er búið að jarða Winehouse. Lag þeirra hafði blessunarlega verið hljóðritað, nánar tiltekið í Abbey Road stúdíóinu.
Bennett hefur viðurkennt að hann hafi verið með hnút í maganum þar eð honum hafði verið sagt hve óáreiðanleg Winhouse gat verið. En hann segir að hún hafi mætt stundvíslega og skilað sínu óaðfinnanlega. Hafi verið best að öðrum ólöstuðum. Þess má geta, að Lady GaGa er einnig með á dúettaplötu söngvarans.
Tony Bennett hóf að syngja ungur að árum. Á þessu ári eru liðin slétt 60 ár síðan hann kom sínu tinymce/jscripts/tiny_mce/themes/advanced/langs/en.js" type="text/javascript"> fyrsta lagi á topp inn. Síðan hefur hann selt 50 milljónir platna og veitt viðtöku fimmtán Grammy verðlaunum og tveimur Emmy verðlaunum. Listmálun er hans tómstundagaman.
Hann hefur haldið sér ferskum með því að starfa sem mest með yngri tónlistar- mönnum. Þeirra á meðal er Elvis Costello, sem er á leið hingað til tónleikahalds i Hörpu. Hér má sjá þá taka saman lagið They Can't Take That Away From Me.
SMELLA HÉR til að sjá og heyra 100 laga syrpu með Tony Bennett.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.