Leikstjórinn Sam Mendes 46 ára í dag. Hann kvæntis leikkonunni Kate Winslet árið 2003 og eiga þau tvö börn saman. Mendes hlaut Óskar og Golden Globe fyrir myndina American Beauty, frumraun hans sem leikstjóra. Síðan kom myndin Cabaret, sem færði honum Tony, og myndirnar Oliver, Company, Gypsy og síðast en ekki síst Revolutionary Road, þar sem Kate Winslet fór með aðalhlutverkið og nældi sér þannig í fern kvikmyndaverðlaun, þar á meðal Golden Globe. Þau Mendes skildu í fyrravor. Mynd: Anna Leibovitz fyrir VF.
AFMÆLI 1. ÁGÚST FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR KRABBI
1973 Tempestt Bledsoe (leikkona, Vanessa Huxtable í Fyrirmyndarföður)
1965 Sam Mendes (leikstjóri, American Beauty (Óskar), Cabaret, Gypsy)
1963 Coolio (rappari, hip hop tónlistarmaður) 100 VÍDEÓ
1960 Chuck D (rappari, lagahöf., aðal sprautan í Public Enemy) 100 VÍDEÓ
1960 Joe Elliot (söngvari, lagahöfundur, söngvari Def Leppard) 100 VÍDEÓ
1958 Rob Buck (gítarleikari 10.000 Maniacs til dauðadags 2000) 62 VÍDEÓ
1951 Tom Bachman (gítar, söngur, lagah., Bachman-Turner Overdrive) 79 VÍDEÓ
1950 Árni Þórarinsson (blaðamaður og rithöfundur, Tími nornarinnar)
1946 Boz Burrell (bassaleikari, söngvari, King Crimson, Bad Company) 100 VÍDEÓ
1943 Denis Playton (saxafónleikari með Dave Clark Five) 100 VÍDEÓ
1942 Giancarlo Giannini (ítalskur leikari, Darkness, Hannibal, Casino Royal)
1942 Jerry Garcia (gítar, banjó, söngur, lagasmíðar, Grateful Dead) 100 VÍDEÓ
1936 Yves St. Laurent (Henry Mathieu) (tískuhönnuður)
1933 Dom DeLuise (uppistandar i, leikari, History of the World, Cannonball Run)
1819 Herman Melville (skáld, þekktastur fyrir skáldsöguna Moby Dick)
1774 Jean Baptiste Lamarck (náttúrufr., ruddi þróunarkenningu Darwins braut)
Halda lífi í minningunni um Grateful Dead
Jerry Garcia var sá sem réði ferðinni í hljómsveitini Grateful Dead. Hljómsveitin var stofnuð árið 1965 og var ein af stóru nöfnunum á Woodstock 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Hljómsveitin lagði upp laupana árið 1995, en það ár lést Garcia af völdum hartaáfalls. Hann hafði þá lengi barist við eitulyfjafíkn og lagst inn á stofnanir hvað eftir annað til að leita sér hjálpar. Grateful Dead átti gríðarlega stóran hóp dyggra aðdáenda sem eltu hljómsveitina á hljómleikaferðum og hafa byggt upp öflugt samskiptanet sín á milli til að halda lífi í minningunn um G. Dead. Enn í dag eru plötur þeirra sem og minjagripir fínasta söluvara.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.