George Michael og Elton John sættast
George Michael er 48 ára í dag. Hann hóf frægðarferilinn 1981 í dúettinum Wham. Fyrsta sólóplatan var Careless Whisper sem tók að hljóma 1984. Dúettinn var formlega aflagður 1986 með því ágæta lagi The Edge of Heaven sem náði fyrsta sæti vinsældalista. Tveimur árum síðar hlutu þau George Michael og Aretha Franklin Grammy-verðlaunin fyrir besta R&B dúettinn, lagið I Knew You Where Waiting. George Michael hefur selt meira en 100 milljónir hljómplatna þar af hefur fyrsta sólóplata hans, Faith, selst í um 25 milljónum eintaka. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna á 30 ára ferli sínum, þar á meðal þrenn BRIT verðlaun, fern MTV-verðlaun og tvenn Grammy verðlaun eftir átta tilnefningar. Hann fór síðast í hljómleikaferð fyrir fimm árum, en sú ferð stóð líka í þrjú ár. Nýjustu fréttir herma að söngvarinn muni innan tíðar taka lagið á góðgerðarsamkomu í London ásamt Elton John til styrktar baráttunni gegn alnæmi. Söngvararnir hafa sem sé náð sáttum eftir að Michael hætti að tala við Elton, sem talaði víst ekki orðið um annað en nauðsyn þess að Michael færi í meðgerð.
AFMÆLI 25. JÚNÍ FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR
1975 Linda Cardellini (leikkona, Scooby-Doo, ER)
1971 Angela Kinsey (leikkona, The Office)
1970 Lucy Benjamin (leikkona, Lisa Fowler, EastEnders)
1963 George Michael (Yorgos Panayiotou) (söngvari, lagahöfundur) 100 LÖG
1963 Devin DeVasquez (Playboy leikfélagi 1985. Lék í fáeinum kvikmyndum)
1961 Ricky Gervais (leikari, The Office)
1954 David Paich (hljómborðsleikari, söngvari og lagahöfundur Toto) 62 LÖG
1946 Ian McDonald (hljóðfæral., stofnaði bæði rFOwaB og Foreigner )
1948 Michael Lembeck (leikari, leikstjóri, Emmy fyrir leikstjórn Friends-þáttanna)
1945 Carly Simon (söngkona, lagahöfundur) 100 LÖG
1942 Willis Reed (körfuboltahetja úr NBA, enginn hafði keppt jafn lengi í körfunni)
1940 Clint Warwick (fyrrum bassaleikari The Moody Blues) 56 LÖG
1935 Eddie Lee Floyd (R&B söngvari, lagahöfundur, Knock on Wood ) 38 LÖG
1925 June Lockhart (leikkona, móðirin í sjónvarpsþáttunum um Lassie)
1924 Sidney Lumet (leikstj., Serpico, Dog Day Afternoon, Network, 12 Angry Men)
1923 Dorothy Gilman (vinsælar kvikmyndir gerðar eftir spennusögum hennar)
1905 María Markan (óperusöngkona)
1903 George Orwell (Eric Arthur Blair) (rithöfundur, Animal Farm og 1984)
1887 George Abbott (80 ára ferill sem leikstjóri, leikhússtjóri og leikritaskáld)
Devin DeVasquez var opnustúlka Playboy í júní 1985. Hún er 48 ára í dag og nýlega gift Ronn Moss, sem leikur Ridge Forrester í The Bold and the Beautiful, sem Ríkissjónvarpið hefur sýnt samviskusamlega um langt skeið. Svo sem ekki í frásögur færandi. En myndin er góð, ekki satt?
Um hvern syngur Carly Simon?
Bandaríska söngkonan, lagahöfundurinn og barnabókahöfundurinn Carla Simon er 66 ára í dag. Hún hóf frægðarferil sinn á sjöunda áratugnum og hefur síðan veitt viðtöku tveimur Grammy verðlaunum, Óskari og Golden Globe. Árið 1972 giftist hún söngvaranum og lagasmiðnum James Taylor og eignuðust þau tvö börn sem bæði eru tónlistarmenn í dag. Hjónabandið stóð í 11 ár. Söngkonan giftist rithöfundi, ljóðaskáldi og fjármálamanni að nafni John Hart árið 1987. þau skildu 2007. Carly Simon var tekin inn í Frægðarhöll lagasmiða árið 1994. Hér fyrir neðan má sjá hana syngja eitt af sínum þekktari lögum, Your'e So Vain, sem hún kom á toppinn árið 1973. Allar götur síðan hafa menn velt því fyrir sér um hvern hún er að syngja. Til að sjá og heyra söngkonuna taka lagið á hljómleikum og lesa um leið úrdrætti úr blaðaviðtölum þar sem þessarar spurningar er spurt skaltu SMELLA HÉR.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.