
Bandaríska leikkonan Selma Blair á að baki fimmtán ára leiklistarferil. Hún hefur gegnt stórum hlutverkum í kvikmyndunum Cruel Intention, Legally Blonde, The Sweetest Thing, The Fog, Purple Violets og Hellboy II: The Golden Army. Þá fór hún með hlutverk Kim í bandarísku þáttaröðinni Kath & Kim. Blair giftist Ahmed Zappa árið 2004, en þau skildu tveimur árum síðar. Í byrjun þessa árs tilkynnti Blair að hún ætti von á barni með unnusta sínum, tískuhönnuðinum Jason Bleick.
Joséphine de Beauharnais fæddist 23. júní 1763. Hún var tvígift. Seinni maður hennar var Napóleons Bonaparte keisari Frakklands. Joséphine fæddist á Martinique árið 1763, dóttir franskra plantekrueigenda. Bonaperte skildi við Joséphine til að giftast Maie Louise árið 1810. Þessi mynd var máluð af þeim hjónum Joséphine og Bonaperte á meðan allt lék í lyndi, eins og það mundi vera orðað í slúðurpressunni. Þau áttu ekki barn saman, en hún átti börn í fyrra hjónabandi. Joséphine lést árið 1814 þá orðin fimmtug.
AFMÆLISBÖRN 23. JÚNÍ FORSÍÐA HRÚTAR NAUT TVÍBURAR
1980 Sóley Kristjánsdóttir (plötusnúður, ljósmyndafyrirsæta)
1977 Jason Mraz (söngvari, gítarleikari, lagahöfundur, þekktasta lag I'm Yours )
1976 Patrick Vieira (fótboltastjarna með Manchester City)
1972 Selma Blair (leikkona, Vivian, Legally Blonde, Hellboy, Cruel Intention)
1966 Chico DeBarge (R&B söngvari)
1963 Colin Montgomery (skoskur golfleikari)
1957 Frances McDormand (leikkona, Fargo, Burn After Reading Almoust Famous)
1956 Randy Jackson (Randa ll Darius Jackson) dómari í American Idol
1954 Matthías Viðar Sæmundsson (bókmenntafræðingur)
1953 Ingólfur Hannesson (fyrrv. íþróttafréttamaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi)
1949 Ragnheiður Ríkharðsdóttir (alþingismaður)
1948 Clarence Thomas (næst fyrsti svarti dómarinn í hæstarétti Bandaríkjanna)
1947 Bryan Brown (tilnefn. til Golden Globe og Emmy fyrir leik í Þyrnifuglum)
1943 James Levine (píanóleikari, hljómsvei tarstjóri. Sjá vídeó neðst á síðunni.)
1940 Adam Faith (breskur söngvari, fyrstu 7 smáskífur hans á Topp 5) 100 LÖG
1929 June Carter (sveitasöngkona, gift Johnny Cash í 35 ár) 38 LÖG
1927 Bob Fosse (stýrði frægum uppfærslum á All That Jazz, Cabaret, Chicago)
1912 Alan Turing (scientist/mathematician)
1910 Jean Marie Anouilh (leikritaskáld)
1894 Edward VIII (Englandskonungur, afsalaði sér krúnunni)
1894 Alfred Kinsey (bylti hugmyndum manna um kynhvötina)
1400 Johannes Gutenberg (hannaði fyrstu prentvélina)
1763 Joséphine de Beauharnais (fyrsta eiginkona Napoléans Bonaparte)
James Levine er 68 ára í dag. Hann er vinsæll píanóleikari og hljómsveitarstjóri. Hann hefur stjórn á Metroplitan Operunni og sömuleiðis Sinfóníuhljómsveit Boston. Hér fyrir neðan má sjá hann í miklum ham í Boston þar sem Carmen
er á dagskrá. Settu hátalarana í botn og njóttu vel! Þetta er sko alvöru.
Samúel leggur sig fram um að kynna á síðum sínum áhuga- verða ljósmyndara. Helgin er framundan, taktu þér tíma, smelltu á fyrirsögnina eða á MENNINGUNA í bláa borðanum efst á síðunni og skoðaðu hvert listaverkið á fætur öðru.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.