Paul Gauguin er einn af þekktustu málurum Frakka. Hann fæddist í París árið 1848. Faðir hans var pólitískur fréttamaður og flutti með fjölskylduna til Perú. Gauguin eyddi því fyrstu sjö árum ævinnar þar. Gauguin var orðinn 35 ára þegar hann gerðist listmálari. Hann notaði tækni impressionista en gekk skrefi lengra. Þeir heilluðust af augnablikinu en Gauguin vildi að litirnir sýndu hvernig honum leið. Stefnan sem Gauguin tilheyrir kallast expressjónismi. Orðið expressjón komið úr frönsku og þýðir tjáning. Expressjónískir málarar vildu að myndirnar tjáðu eitthvað fremur en að líkja eftir raunveruleikanum. Gauguin rannsakaði franska alþýðulist til að fá hugmyndir fyrir vinnu sína. Alþýðulist hafði til að bera hið einfalda og frumstæða sem Gauguin leitaði eftir. En þetta nægði honum ekki lengi. Gauguin yfirgaf fjölskyldu sína og flutti til Tahítí. Þar bjó hann með innfæddum og drakk í sig áhrif af list þeirra.
AFMÆLI 7. JÚNÍ
1988 Michael Cera (leikari, Juno, Superbad)
1981 Anna Kournikova (tennisstjarna) MAXIM VÍDEÓ MYNDIR MYNDIR
1981 Larisa Oleynik (leikkona)
1979 Anna Torv (áströlsk sviðs- og kvikmyndaleikkona, Fringe) Myndir í Esquere
1978 Bill Hader (leikari, grínistin, Saturday Night Live, kvikmyndin Superbad)
1972 Karl Urban (leikari)
1970 Helen Baxendale (Helen Victoria Baxendale) (leikkona, Cold Feet)
1967 Dave Navarro ( gítarleikari Spread, dómari í Supernova)
1966
Eric Kretz
(tónlistarmaður)
1958 PRINCE (Prince Rogers Nelson ) (söngvari) 100 LÖG
1956 L.A. Reid (upptökustjóri)
1955 William Forsythe (leikari)
1954
Louise Erdrich
(rithöfundur)
1953
Johnny Clegg
(söngvari, lagahöfundur)
1953 Colleen Camp (leikkona)
1952 Liam Neeson (leikari, Schindlers List)
1946 Jenny Jones (leikkona, sjónvarpsstjarna)
1943 Nikki Giovanni (ljóðskáld)
1941 Nína Björk Árnadóttir (rithöfundur, ljóðskáld)
1940 Tom Jones (Thomas Jones Woodward) (söngvari) NÝR CD HEIMASÍÐA
1928 James Ivory (leikstjóri)
1928 Charles Strouse (tónlistarmaður)
1917
Gwendolyn Brooks (ljóskáld, hlaut Pulitzer verðlaunin)
1917
Dean Martin
(Dino Paul Crocetti) (söngvari, leikari)
UMFJÖLLUN SAMÚELS
1909 Jessica Tandy (leikkona)
1848 Paul Gauguin (Eugène Henri Paul Gauguin) (mynd listarmaður) Allar myndrnar
1778 Beau Brummel (George Bryan Brummell) (áhrifavaldur í herratísku í Englandi)
Tom Jones er 71 árs. Hann hefur staðið í sviðsljósdinu í um hálfa öld. Fyrir stuttu kom út tveggja platna albúm með broti af því besta á tveimur diskum, en fyrra kom út diskur þar sem hann fer á kostum við undirleik rokkhljómsveitar. Fyrir nokkrum vikum stóð hann á sviðinu og söng við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Atlanta. Hann fyllti tónleikasali í Las Vegas þegar Samúel var að hefja göngu sína 1969 og troðfyllir þar ennþá þegar honum sýnist. Tom Jones hefur selt yfir 100 milljónir platna með poppi, rokki, R&B, söngleikjalögum, sveitasöngvum, danstónlist, teknó, sálar- og gospel tónlist. Hér má sjá hann í hljóðveri við upptöku á laginu Run On sem finna má á diskinum Praise and Blame frá í fyrra. Hér eru svo 100 eldri lög.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.