AFTUR Á FORSÍÐU BRUNO SANTOS MARCO IEMMOLA SAMKEPPNIN
Hinn vinsæli tískuljósmyndari Sam Norval hefur tekið sæti í dómnefnd Samkeppn- innar 2010 ásamt tveimur ljósmyndurum öðrum og fyrirsætunum Bruno Santos og Berglindi Ólafsdóttur, en Berglind sem er formaður dómnefndar, hefur starfað í tískubransanum í B andaríkjunum í meira en hálfan annan áratug. Það verður ekki annað sagt en að Samúel hafi náð saman í dómnefnd Samkeppninnar afar töff liði.
Sam Norval er fæddur og uppalinn í Höfðaborg, suðupotti menningar Suður-Afríku. Sköpunarþrá hans dró hann loks til London til að bæta við ljósmyndakunnáttu sína. Hann var svo lánsamur að fá tækifæri til að vinna með nokkrum af hæfileikaríkustu og frumlegustu ljósmyndurum Evrópu. Efldu kynni hans af þessum skapandi listamönnum á ljósmyndasviðinu hann verulega sem ljósmyndara.
Á þessum árum ferðaðist Sam vítt og breytt um Evrópu og dró mikinn lærdóm af kynnum sínum af tísku, list, arkitektúr, arfleifð og yfir höfuð lífsmáta Evrópubúa.Það kom að því að hann vildi kynnast nýrri heimsálfu, hann pakkaði niður ljósmynda- tækjum sínum og hélt til New York, borgarinnar sem hann hafði þráð að kynnast allt frá því hann var smá gutti í Suður-Afríku.
Sam Norval unir nú hag sínum vel í Stóra Eplinu, eins og New York hefur gjarnan verið kölluð. Orðspor hans hefur fært honum fjölda spennandi verkefna og þá einkum í tísku- geiranum þar sem hann er kominn með marga trausta viðskiptavini.
Sam Norval er með öðrum orðum mikill heimsmaður og náin kynni hans af svo ólíkum heimsálfum, sem Suður-Afríka, Evrópa og Norður-Ameríka vissulega eru, hefur honum tekist að skapa sér einstakan og dulmagnaðan stíl sem er að slkipa honum á bekk með athyglisverðustu ljós- myndurum samtímans.
Sjá nánar um Sam Norval með því að SMELLA HÉR
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.