AFTUR Á FORSÍÐU UM BRUNO DóMARA SAM NORVAL UM SAMKEPPNINA
Svissneski ljósmyndarinn MARCO IEMMOLA á sæti í dómnefnd Samkeppn- innar 2010. Ungur eignaðist hann sína fyrstu ljósmyndavél og komst fljótlega upp á lag með að beita henni listilega vel og lagði sig fram um að ná sem náttúrulegastri birtu í myndefnið. Landslag, arkitektúr, uppstillingar og ekki síst áhugavert fólk með sterk andlit heilluðu hann sem ljósmyndara.
Síðar lærði hann iðnhönnun og grafíska hönnun og áfram fylgdi ljósmyndavélin honum hvert sem hann fór og myndavéla-
taskan tók að tútna út af aukabúnaði ognýjum myndavélum. Ljósmyndun var orðin meira en ástríða.
Kemur sér nú vel sú kunnátta sem hann hefur öðlast í myndvinnslu í starfi sínu sem hönnuður og er Marco Iemmola nú einnig orðinn eftirsóttur ljósmyndari í tískuheiminum og myndar þá jafnt tískufatnað og skart auk annars.
Þess má geta, að þegar Samúel fór þess áleit við Marco Iemmola, að han tæki sæti ídómnefndinni, hafði ljósmyndarinn nýverið skilað af sér verkefni fyrir skartgripahönnuð í Sviss, en þar á ferð reyndist vera Magnea Zimmermann Haraldsdottir skartgripa- hönnuður, sem stendur á bak við Magnea Jewelry og starfar í Sviss.
Smella hér til að skoða heimasíðu Marco Iemmola
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.