MARCEL INDIK MARCO IEMMOLA SAM NORVAL SAMKEPPNIN
Hinn 32 ára gamli, hái, dökki og myndar- legi Bruno Santos, sem tekið hefur sæti í dómnefnd Sam- keppni Samúels, er einn hæst launaðasti karlmaðurinn í sýningar- bransanum í dag. Enginn annar hefur náð því að komast samtímis á samning hjá aðal keppinautunum í tískuheiminum, Versace og Giorgio Armani.
Fyrirsætustörf falla ekki undir hefðbundin karlmannsstörf í Brasilíu og því tók Bruno því afar fálega þegar umboðsmaður unnustu hans í módelbransanum reyndi fyrst að telja hann á að reyna fyrir sér hjá umboðsskrif-stofum í Evrópu á aldamótaárinu. Taldi það fásinnu.
ANDLIT VERSACE OG GIORGIO ARMANI
Unnustan og vinirnir linntu ekki látunum og umboðsmaðurinn bauðst til að kosta ferð hans og uppihald. Hann gaf sig og var varla lentur París þegar hann hafði heillað einn besta umboðsmanninn í Evrópu, Ike Gamez, sem ky nnti hann annars vegar fyrir ljósmyndaranum Steven Klein, sem er a ðal ljósmyndari Versace, og hins vegar fyrir ljósmyndarnum Peter Lindburgh hjá Giorgio Armani. Þeir vildu báðir fá hann sem andlit tískurisanna sem þeir unnu fyrir.
Í dag er Bruno starfandi fyrir umboðsskrifstofur bæði austan hafs og vestan og er á stöðugum ferðalögum milli heimshluta starfsins vegna.
TÖFF BERNSKUÁR Í FÁTÆKT
Bruno er frá Brasilíu og átti afar töff bernsku. Hann er elstur fimm systkina. Faðir hans var lengstum atvinnulaus og lúbarði hann iðulega og það svo, að móðirin ákvað að senda drenginn sjö ára gamlan í sveit til afa og ömmu. Þau bjiggu við kröpp kjör í húsi þar sem var hvorki rafmagn n ute; eldavél. Sveitatstörfin hertu hann og samvistanna við afann naut hann sannarlega og minnist þess gamla með miklum hlýhug.
Þrátt fyrir mikla vinnu á býlinu, sem hófst oftast klukkan fjögur á morgnana, gekk Bruno vel í námi og líka íþróttum. Var jafnvel eitt árið kosinn íþróttamaður ársins í þorpinu þar sem hann sótti skóla. Þegar foreldrar hans loks skildu seldi hann þ aacute; nautgripi sem hann hafð fengið að launum og notaði féð til að móðir hans gæti komið sér betur fyrir. Öll skólaárin sýndi hann mikla útsjónarsemi þegar kom að því að afla móður sinni aukapenings með ýmis konar sölumennsku og aukastörfum.
GLEYMIR EKKI UPPRUNANUM
Bruno tókst að fá námsstyrk til að hefja nám í vélaverkfræði og meðfram námi kenndi hann stærðfræði rétt að verða tvítugur. Það var þá sem hann leiddist út í módelbransann eins og áður segir.
Hann hefur þénað háar fjárhæðir þann áratug sem hann hefur verið eitt eftirsóttasta módel heims. Hann ferð ast mikið en hefur þó aldeilis ekki gleymt móður sinni og systkinum. Hefur meðal annars opnað myndarlegan veitingastað í heimabæ þeirra sem skapar þeim góðar tekjur.
Hann var 23 ára þegar faðir hans lést af slysförum. Bruno segist vera þakklátur fyrir að hafa náð að hitta hann nokkru áður og sættast við hann.
LJÚFUR UMHVERFISSINNI SEM LES LJÓÐ
Þeir sem kynnst hafa Bruno Santos eru á einu máli um að þrátt fyrir alla velgengnina er hann afar vingjarnlegur og gjörsamlega laus við alla stjörnustæla. Hann les ljóð og hefur gefið út bók sem hann segir eiga að vera hans framlag til að vekja fólk til umhugsunar um umhverfisvernd og mannkærleika.
„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast báðum hliðum mannlífsins, auðlegðar og fátæktar. Ég veit hvað það er að eiga vart til hnífs og skeiðar og ég veit líka hvers fjármunir geta verið megnugir til að bæta heiminn ef þeir eru rétt notaðir,” segir hann.
„Þrátt fyrir að fyrirtækin sem ég vinn fyrir ætlist til þess að ég gisti ætíð á fínustu hótelum á ferðum mínum um heiminn, borði á bestu veitingastöðum og mæti í flottustu teitin nýt ég þess best að vera einn á litlum báti, veiða fisk og elda hann sjálfur á frumstæðan hátt. Það er lífið,” bætir hann við. “Þegar ég er spurður að því hver ég er, svara ég því á þann veg, að ég verði stöðugt að læra og tek þrennt sem gefið; sönn ást er allt sem við þörfnumst, dauðinn er óumflýjanlegur og við uppskerum eins og við sáum.”
BERGLIND GEFUR HONUM FYRSTU EINKUNN
Sem fyrr segir á Bruno sæti í dómnefndinni sem velur sigurvegara Samkeppninnar 2010. Formaður dómnefndar er Berglind Ólafsdóttir, sem hefur starfað sem módel í Bandarikjunum síðastliðin 17 ár með bækistöð í Kaliforníu. Hún þekkir Bruno vel og gefur persónu has fyrstu einkunn. „Einstakur ljúflingur þrátt fyrir að líta vissulega út fyrir að vera mesta hörkutólið í bænum,” segir hún.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Chuck Close beitir flókinni tækni við gerð mynda sem eru um margt óvenjulegar. Smelltu á fyrirsögnina og sjáðu myndr og vídeó.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.