AFMÆLISBÖRN 27. MAÍ
Denis Kathleen Outen er 36 ára í dag. Hún er söngkona, leikkona og upprennandi sjónvarpsstjarna í Bretlandi, en hún er nú kynnir í nýjum þætti á Stöð 5. Hún hefur leikið á sviði, bæði á West End og Broadway. Meðal annars farið með hlutverk Roxie Hart í söngleiknum Chicago.
Fyrsti kærasti Denis Kathleen Outen var hinn óttalegi Gary Glitter, en þá var Outen aðeins 17 ára. Síðan hóf hún samband við Andy Miller gítarleikara Dodgy og því næst var það aðal söngvarinn í Jamiroquai, Jay Kay. Þau slitu trúlofun 2001. Þá tók við sambúð með næturklúbbaeiganda í London, en það fór allt út um þúfur eftir að Outen hafði kysst móttleikara í sjónvarpsþætti. Árið 2007 fann hún loks ástina í lífi sínu, mann sem hún var tilbúin að giftast og eignast barn með. Sá heitir Lee Mead og sigraði í sjónvarpsþættinum Any Dream Will Do. Þau gengu upp að altarinu vorið 2010 mánuði áður en dóttirin Betsy fædist. Þá vitið þið það.
AFI RÉTTI HONUM KJUÐA 3 ÁRA OG RÉÐI HANN Í BAND SITT 9 ÁRA
Sean Howard Kinney, trommari Alice in Chains, er 45 ára.
Afinn rétti stráksa trommukjuða þegar hann var aðeins þriggja ára og örlögin voru þar með ráðin. Aðeins níu ára var hann byrjaður að spila í hljómsveit afa síns. Hljómsveitin hét The Cross Cats og ferðaðist Howard með henni vítt og breitt um Bandaríkin til að spila í brúðkaupum.
Howard lék með Alice in Chain á öllum plötum hljómsveitarinnar þar til hún hætti árið 2002 eftir 15 ára frægðarferil. Bandið kom saman að nýju 2005 og hefur loðað nokkuð vel saman síðan og Howard komið þar meðal annars við sögu.
Sjáðu gott vídeósafn með Alice in Chain með því að SMELLA HÉR
CILLA BLACK VAR GJARNAN KÖLLUÐ FIMMTI BÍTILLINN
Breska söngkonan Priscilla Maria Veronica White, betur þekkt sem Cilla Black, er 68 ára.
Ung að árum var hún strax staðráðin í að ná frægð og frama sem söngkona. Fyrsta skrefið í þeirri áætlun var að fá vinnu í fatahenginu í Cavern klúbbnum í Liverpool þar sem The Beatles og fleiri góðir voru þá að stíga sín fyrstu spor á þeim tíma. Það tókst góður vinskapur með henni og Bítlunum og var hún gjarnan kölluð fimmti Bítillinn.
Meðal eftirminnilegra laga hennar má nefna Anyone Who Had a Heart, You’re My World og Alfie. Í tilefni af því að í september voru liðin 45 ár frá því hún hóf söngferilinn gaf EMI út geisladisk með endurhljóðblönduðum útgáfum af því besta með henni á ferlinum, Cilla All Mixed Up.
SMELLTU HÉR til að sjá Cillu Black koma fram í sjónvarpi ásamt Cliff Richard og syng ja lagið Walk On By árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. (Einhver brandarakall hefur dundað við að bæta dósahlátri við upptökuna.) Hér fyrir neðan er svo öllu nýrri upptaka með þeim þar sem þau taka saman lagið It Takes Tw o og Castle In the Air.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.