26. MAÍ TVÍBURAMERKIÐ
VÍDEÓ NEÐST Á SÍÐU: LENNY KRAVITZ: Love Revolution
Miles Davis hlaut níu Grammy verðlaun.
MILES DAVIS OG KIND OF BLUE - MALAR ENNÞÁ GULL . .. OG PLATÍNU
Miles Dewey Davis III hefði orðið 85 ára í dag, 26. maí, en hann dó árið 1991. Hann var af einn af snillingunum í djassinum, lék á trompet, samdi tónlist og stýrði eigin hljómsveit af hörku.
Margir af þekktustu tónlistarmönnum djassins léku í hljómsveit hans og má þar m.a. nefna Garry Mulligan, John Coltrone, George Colman, Herbie Hancock, Chick Corera og Bill Evans. Hann sankaði að sér verðlaunagripum og urðu Grammy gripirnir níu talsins.
Sautján árum eftir dauða Miles Davis bættist fjórða platínuplatan við í verðlaunasafnið fyrir eina bestu plötu hans, Kind of Blue, sem var gefin út árið 1959. R aunar tveggja platna al búm. Hún hefur því sels t í yfir fjórum m illjónum eintaka og er enn í góðri sölu.
Árið 2006 var Miles Davis svo tekinn inn í Frægðarhöll rokksins og líklegt að hann hafi þá blásið nokkra bláa í efra. Kannski eitthvað af Kind of Blue. Hér er vídeó sem gert var þegar hálf öld var liðin fr á útgáfu albúmsins. SMELLA HÉR
Stevie Nicks hefur komið yfir 40 lögum á toppinn
Bandaríska söngkonan og lagasmiðurinn Stephanie Lynn "Stevie" Nicks er 63 ára. Hún náði frægð fyrir veru sína í Fleetwood Mac , sem tekin var inn í Frægðarhöll rokksins 1998. Samhliða veru sinni í bandinu hóf Stevie Nicks að sinna farsælum sólóferli, en hún hefur átt meira en 40 lög í efstu sæti vinsældalista.
Hér má sjá hana syngja lagið Seven Wonders með Fleetwood Mac á tónleikum í San Francisco árið 1987. SMELLA HÉR
Hank Williams-feðgarnir og genin
Bandaríski sveitasöngvarinn Randall Hank Williams, betur þekktur sem Hank Williams jr. er 62 ára. Hann hefur sankað að sér verðlaunum og hlaut til að mynda Grammy verðlaun fjögur ár í röð. Hann er sonur goðsagnar úr sveita- tónlistinni og hefur sjálfur getið af sér son sem hefur öðlast vinsældir á sama sviði, Hank Willilams III.
SMELLTU HÉR til að heyra Hank Williams jr syngja lagið A Country Boy Can Survive.
Til að gæta jafnræðis í myndbirtingum birtir Samúel hér nektarmynd af Kravitz.
ÞANNIG FER LENNY KRAVITZ AÐ ÞVÍ GRÆJA EITT LAG ...
Hann hóf mikið hljómleikaferðalag um Evrópu og Bandaríkin 2009 í tilefni af því að þá voru liðin 20 ár frá því hann sendi frá sér sína fyrstu hljómplötu. Vegna slæmsku í hálsi varð hann að gera nokkurra mánaða hlé hlé á þeirri ferð en efór svo af stað á nýjan leik og hljóðrita na því búnu nýja plötu. Á hljómplötum sínum spilar hann gjarnan á öll hljóðfærin sjálfur og stýrir hljóðupptökunum eigin hendi eins og sjá má myndbandinu sem þú getur linkað þig inn á með því að SMELLA HÉR
Hér fyrir neðan má sjá hann og heyra flytja lag sitt Love Revolution í blúsaðri útsetningu sem er Samúel að skapi.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.