Á FORSÍÐU HRÚTAR NAUT TVÍBURAR NEÐST: Lareyn Hill og The Fuees.
Molly Sims er 37 ára í dag. Hún hefur verið ein vinsælasta fyrirsæta baðfataútgáfu tímaritsins Sport Illustrated. Hún hefur svo einnig landað hlutverki í NBC þáttunum Las Vegas.
Klaus Meine söngvari þýsku þungarokkshljómsveitarinnar Scorpion er 53 ára í dag. Rudolf Schenker rythmagítarleikari hóf að smala saman í hljómsveit árið 1965, en hjólin fóru þá fyrst að snúast þegar Klaus og Michael, bróðir hans, gengu til liðs við hann árið 1969, árið sem Samúel hóf göngu sína. Hljómsveitin starfar enn í dag af fullum krafti. Til að tengjast 100 laga syrpu með Scorpions skaltu SMELLA HÉR. HEIMASÍÐA.
LAURYN HILL SINNIR SÍNUM SÓLFERLI
Lauryn Hill úr The Fugees er 35 ára. Hún sinnir nú sínum sólóferli og út sólóplötu á síðasta ári. Lauryn hlaut Grammy verðlaunin sem Besti nýgræðingurinn í dægurtónlistinni árið 1998.
Hér fyrir neðan má sjá The Fugees taka Hip-H op útgáfu af laginu Killing Me Softly sem aflaði þeim mikilla vinsælda á sínum tíma. Upphaflega náði lagið vinsældum í flutningi Robertu Flack árið 1973 og færði henni Grammy verðlaunin sem söngkonu ársins auk þess sem platan hlaut Grammy sem besta plata ársins og lagið þótti vera það besta sem smellt var á plötu það árið.
Í flutningi The Fugees komst það í fyrsta sæti breskra og bandarískra vinsældalista. Hljómsveitin hafði hug á að breyta textanum þannig að hann héti Killing Him Softly og snérist um fátækt og ofneyslu eiturlyfja, en textahöfundarnir komu í veg fyrir það.
Til að sjá og heyra Robertu Flack syngja lagið skaltu SMELLA HÉR
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.