Olivia-Newton John er 63 ára í dag. Myndirnar hér fyrir ofan eru teknar með þriggja áratuga millibili og sýna hana með John Travolta. Það eru liðin 33 ár siðan þau fóru með aðalhlutverkin í kvikmyndinni Grease. Diskar með tónlistinni og kvikmyndinni seljast í vænum upplögum enn í dag og alltaf er verið að sýna söngleikinn einhvers staðar í heiminum. Um þessar mundir er hann meðal annars á fjölunum í New York, Los Angeles og London.
Smelltu á nöfn afmælisbarnanna 26. sept.
Vídeó neðst á síðunni: Boyz II Men - A Song For Mama
Afmælisbörn 18. sept. 19. 20. - 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30.
1888 T.S. Eliot bresk/bandarískur rithöfundur og ljóðskáld
1897 Páll páfi VI (dó 1978)
1898 George Gershwin bandarískt tónskáld (dó 1937)
1925 Marty Robbins bandarískur söngvari, lagasmiður og hljóðfæral. (dó 1982)
1926 Julie London söng Cry Me a River árið 1955 (dó 2000)
1930 Fritz Wunderlich þýskur tenórsöngvari (dó 1966)
1932 Richard Herd bandarískur kvikmyndaleikari
1932 Dr. Manmohan Singh varð forsætisráðherra Indlands 2004
1936 Winnie Mandela Suður-Afrísk, fyrrverandi eiginkona Nelsons Mandela
1937 Valentin Pavlov forsætisráðherra í Sovétríkjunum í hálft ár 1991 (dó 2003)
1945 Bryan Ferry söngvari (Roxy Music) Heimasíða
1946 Louise Simonson bandarískur ritstjóri og rithöfundur hasarblaða Vídeó viðtal
1947 Lynn Anderson bandarísk sveitasöngkona. Heimasíða
1948 Olivia Newton-John áströlsk söng- og leikkona Heimasíða
1949 Jane Smiley bandarískur rith. Höf. formála að mörgum Laxness-þýðingum
1949 Minette Walters margverðlaunaður, breskur höfundur spennubókmennta
1953 Dolores Keane írsk söngkona einn stofnenda De Dannan þjóðlagasveitarinnar
1954 Cesar Rosas mexíkóskur gítarleikari, söngvari og lagahöfundur Los Lobos
1954 Craig Chaquico bandarískur gitarleikari Jefferson Starship Heimasíða
1955 Carlene Carter bandarísk veitasöngkona og lagasmiður Heimasíða
1956 Linda Hamilton leikkona, the Terminator Sena úr Terminator
1962 Melissa Sue Anderson bandarísk leikkona María Ingalls í Húsinu ute; sléttunni
1962 Tracey Thorn bresk söngkona dúettsins Everything But The Girl
1962 Gunnar Svavarsson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og þingmaður
1962 Ólafur Jóhann Ólafsson framkvæmdastjóri, rithöfundur
1963 Lysette Anthony bresk leikkona. Andlit áttunda áratugarins. Kvikmyndabrot
1964 Eyjólfur Jóhannsson gítarleikari (Tappi Tíkarrass/Síðan Skein Sól)
1965 Cindy Herron bandarísk R&B söngkona í En Vogue
1966 Eiður Arnarsson (Stjórnin/Todmobile/Tweety)
1967 Shannon Hoon söngvari Blind Melon. (Dó 1995 vegna ofneyslu eiturlyfja)
1968 James Caviezel lék Jesú Krist í The Passion of the Christ (2004)
1970 Sheri Moon Zombie bandarísk leikkona ( Halloween o.fl. hrollvekjur)
1972 Shawn Stockman bandarískur R&B söngvari ( Heimasíða Boys II Men )
1972 Ras Kass bandarískur rappari
1973 Marty Casey bandarískur söngvari ( Lovehammers )
1975 Emma Härdelin sænskur fiðluleikari og sönkona ( Garmarna and Triakel )
1981 Christina Milian R&B söngkona ( A.M. to P.M.)
1981 Serena Williams stórstjarna í tennis, yngri systir tennisleikarans Venusar
Hér má sjá og heyra bandaríska söngtíóið Boyz II Men syngja eitt af sínu ljúfu lögum, A Song For Mama. Einn strákanna, Shawn Stockman, er 39 ára í dag. Tríóið hefur hlotið margvíslegar viðurkennningar þar á meðal nokkur Grammy-verðlaun.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.