Nicholas Cage er öflugur leikari, enda með Óskar á arinhillunni. En hann er ekki eins klár í að útfylla skattskýrsluna. Skattmann hefur nú sakað hann um að hafa snuðað hið opinbera um sem nemur nálægt 400 milljónum íslenskra króna. Það á hann að hafa gert með því að færa persónuleg útgjald óleyfilega á fyrirtæki sem hann rekur. Eða öllu heldur fyrirtæki sem starfrækir hann.
Fyrirtækið kallar hann Saturn Production of Los Angeles og hafa ýmis útgjöld verið skrifuð á það sem skatturinn vill meina að færa eigi í heimilisbókhald leikarans. Eins og limmósía, máltíðir, gjafir, ferðalög og turboþota af gerðinni Golfstream 1159A. Nær skatt- rannsóknin til áranna 2002 til 2004.
DÝR ÖRYGGISGÆSLA
Samuel J. Lewin er framkvæmdastjóri fyrir- tækis leikarans og fullyrðir að bókhaldið sé rétt fært og í samræmi við það sem gengur og gerist í skemmtanabransanum. Mikið af tilkostnaðinum falli til vegna strangra öryggisráðstafana sem viðhafa þarf þegar um svo fræga persónu er að ræða.
ÓTRAUSTAR TE KJUR Í LEIKLISTINNI
Cage vann Óskarinn 1995 fyrir leik í myndinni Leaving Las Vegas en hefur ekki komist á lista Forbes yfir auðugustu stjörnurnar síðan 2001. Skattskýrslurnar, sem almenningur hefur nú fengið niðurstöðutölur úr, sýna hve laun vesalings stjarnanna geta rokkað upp og niður. Árið 2003 gaf Cage upp ríflega 50 milljónir í skattskyldar tekjur, en árið eftir, þegar hann hafði m.a. fengið launatékkann fyrir myndina National Treasure, gaf hann upp tvo milljarða í tekjur. Skattmann hækkaði raunar báðar upp- hæðirnar eftir rannsókn sína. Fyrra árið úr 50 í 180 milljónir króna og síðara árið í 2,2 milljarða.
SAFNAR KASTÖLUM ÚT UM ALLT
Skattauppgjör Cage á síðasta ári gefur nokkra hugmynd um það í hvaða munaði leikarinn getur leyft sér að lifa. Þar kemur fram að hann keypti kastala í Oberpfalz í Þýskalandi árið 2006, en amma hans var fædd og uppalin í Moseldalnum. Ári síðar keypti hann svo 2.200 fermetra herragarð á 65 hektara landi á Rhode Island. Þar eru tólf svefnherbergi og 10 fullbúin baðherbergi. Af veröndinni er þetta líka fína útsýni út á Atlantshafið. Eins og þetta hafi ekki verið nóg þá keypti hann sama ár Midford kastala í Somerset í Englandi.
Á LÍKA HUGGULEGA EYJU
Þess má svo geta að fyrir átti Cage 112 hektara eyju sunnan við Bahamaeyjar. Einn- ig er í fasteignasafni hans það hús í Bandaríkjunum sem sagt er að hýsi mestan draugagang. Það er myndarlegt hús í franska hluta New Oreans.
Það er skiljanlegt að bara launatengd gjöld af starfsfólki á einu ári skuli vera ríflega 20 milljónir króna, en skattinum reiknast til að rekstur einkaþotunnar hafi hins vegar kostað jafnvirði 60 milljóna króna.
KVÆNTUR DÓTTUR PRESLEYS Í FJÓRA MÁNUÐI
Og fyrst Samúel er nú búinn að fara yfir bókhald leikarans er kannski rétt á að gera líka grein fyrir fjölskylduhögum hans. Fyrir það fyrsta er hann þríkvæntur. Giftist til að byrja með leikkonunni Patriciu Aquette (sem lék miðil í sjónvarpsþáttunum Medium). Þau giftust 1995 og stóð hjónabandið í sex ár. Næst kvæntist hann Lísu Maríu, dótt- ur Elvis Presley. Hjónabandið stóð stutt. Þau létu pússa sig saman 10. ágúst 2002 og skildu 25. nóvember það sama ár. Tilstandið vegna skilnaðarins stóð lengur en sjálft hjónabandið.
Hann er nú kvæntur Alice Kim, sem starfaði á kóreískum veitingastað. Þau eiga saman soninn Kal-El, en þeir sem eru vel að sér í fræðunum vita að það er skýrnar- nafn Supermans, sem hefur alla tíð verið í uppáhaldi hjá Cage. Til stóð að hann léki ofurhetjuna í mynd sem Tim Burton hafði hug á að gera forðum daga.
Smelltu á fyrirsögnina til að sjá tengla HEIMSMYNDAR inn á fjölbreytt efni frá því í fyrra. Tónlistarvídeó, grín, flottar píur, fréttaskýringar, listrænar ljós- myndir, bílar, frægt fólk, furðufréttir og minningar frá gömlu góðu dögunum.
Ferill Elvis Costello spannar óhemju víðan völl, svo sem djass, nútímaklassík, hrátt rokk og búggí. Hann er á sextugsaldri en eldhress og nú er komið að íslenskum aðdáendum að njóta nærveru hans, nánar tiltekið á hljómleikum í Hörpu 10. júní. Smelltu á fyrir- sögnina og kynntu þér ferilinn.
Forvitnilegar staðreyndir um mannslíkamann sem Samúel efast um að þú hafir vitað. Smelltu á fyrirsögnina. Þú hefur gagn og gaman af lestrinum.